Síða 1 af 1
búið að breita nafninu á Linux korkinum?
Sent: Þri 11. Jan 2005 17:59
af CraZy
er búið að breita nafninu á Linux korkinum?
eða er ég bara svo heiladauður að hafa ekki tekið eftir þessu
Sent: Þri 11. Jan 2005 18:03
af MezzUp
Þú ert ekki heiladauður
gumol skrifaði:Ég breytti 'Linux / *NIX' flokkinum í 'GNU/Linux og *NIX' þar sem það er í raun réttara heiti (eins og fólk sem fór á rglug fyrirlestuinn veit)
Sent: Þri 11. Jan 2005 18:49
af skipio
Svakalega er hann mikið nutcase hann Stallman! Ýmislegt áhugavert hjá honum auðvitað en maður sér alveg að markmiðið hjá honum er ekki að búa til gott stýrikerfi og annan hugbúnað sem allir geta notað og breytt að vild heldur er GNU í raun aðeins leið að öðru markmiði hjá honum sem er ákveðin þjóðfélagsbreyting.
Allavega er ég svakalega feginn að það er svona pragmatískur norðurlandabúi, Linus Torvalds, sem er persónugervingur Linux en ekki Richard Stallman.
Eins fannst mér fáránlegt hversu mikla aðdáun fólk í salnum hafði á Stallman. Þetta minnti mig eiginlega á flokksþing Repúblíkana í BNA sl. sumar. Langverst þegar hann sagðist myndu bjarga öllum frá drukknum nema honum vini okkar GWB og allir klöppuðu vel og innilega. Er ekki í lagi með fólk??? Nú er ég enginn aðdáandi Bush en að segja þetta er eins ósmekklegt og mögulegt er - og að klappa fyrir því er jafn ósmekklegt! Er nokkur furða að það vilji fáir taka þennan mann alvarlega þrátt fyrir að hann sé með ýmsar ágætar hugmyndir?! (Ekki um t.d. tónlistina þó, allt sem hann sagði um tónlistariðnaðinn hefur verið nefnt áður og betur af öðrum.)
Og ég er líka virkilega ósammála því (eins og margir aðrir) að GNU/Linux sé eitthvað betra en bara Linux. Auðvitað er leiðinlegt að Stallman skuli ekki fá heiðurinn af GNU-kerfinu sem hann á með réttu skilið en hinsvegar er voðalega margt sem mælir frekar með því að kalla Linux bara Linux. Ég ætla svosem ekkert að fara nánar út í það hér en bendi á ágæta
grein um málið í Wikipedia.
En maður virðir það auðvitað við hann að hafa komið því þrekvirki sem GNU er, af stað! Og auðvitað Emacs ... en ég nota samt frekar Vi hans Bill Joy (reyndar Vim).
Og svo er hann auðvitað frábær
söngvari.
Sent: Þri 11. Jan 2005 22:31
af halanegri
skipio skrifaði:Langverst þegar hann sagðist myndu bjarga öllum frá drukknum nema honum vini okkar GWB og allir klöppuðu vel og innilega. Er ekki í lagi með fólk??? Nú er ég enginn aðdáandi Bush en að segja þetta er eins ósmekklegt og mögulegt er - og að klappa fyrir því er jafn ósmekklegt! Er nokkur furða að það vilji fáir taka þennan mann alvarlega þrátt fyrir að hann sé með ýmsar ágætar hugmyndir?! (Ekki um t.d. tónlistina þó, allt sem hann sagði um tónlistariðnaðinn hefur verið nefnt áður og betur af öðrum.)
Þetta
var
brandari.
Sent: Þri 11. Jan 2005 22:57
af Birkir
halanegri skrifaði:skipio skrifaði:Langverst þegar hann sagðist myndu bjarga öllum frá drukknum nema honum vini okkar GWB og allir klöppuðu vel og innilega. Er ekki í lagi með fólk??? Nú er ég enginn aðdáandi Bush en að segja þetta er eins ósmekklegt og mögulegt er - og að klappa fyrir því er jafn ósmekklegt! Er nokkur furða að það vilji fáir taka þennan mann alvarlega þrátt fyrir að hann sé með ýmsar ágætar hugmyndir?! (Ekki um t.d. tónlistina þó, allt sem hann sagði um tónlistariðnaðinn hefur verið nefnt áður og betur af öðrum.)
Þetta
var
brandari.
Maður á samt ekki að láta þetta út úr sér á fyrirlestri.
Sent: Mið 12. Jan 2005 01:23
af skipio
halanegri skrifaði:Þetta var brandari.
Og afskaplega lélegur brandari þar að auki og það ber vott um algera vöntun á dómgreind að láta þetta út úr sér opinberlega eða klappa fyrir þessu.
Það er nefnilega hægt að gera grín að fólki án þess að niðurlagið í brandaranum sé að viðkomandi eigi skilið að deyja! Maður segir allavega ekki þannig um nokkurn mann nema manni finnist hann raunverulega eiga skilið að deyja!
Myndi einhverjum detta í hug að segja þetta sama um Davíð Oddsson eða Ólaf Ragnar Grímsson í fyrirlestri? Varla, en ef einhver myndi gera það myndi fólk ekki klappa jafn innilega fyrir brandaranum eins og költ-meðlimirnir í gær. Fólk á að vera hafið yfir þetta.
Sent: Mið 12. Jan 2005 02:00
af djjason
Nákvæmlega......alveg sama hversu innilega maður þolir ekki einhvern..sama hvort það er pólitíkus eða einhver annar..þá óskar maður ekki neinum einstakling dauða né segist ekki veita hjálparhönd ef svo ber upp á. Það er bara barnaskapur.
Sent: Mið 12. Jan 2005 13:02
af gumol
Ég er sammála, þetta fannst mér einum of mikið (þótt ég hafi reyndar hlegið að þessu).
En seinni fyrirlesturinn um einkaleifi á hugmyndum í hugbúnaðargeiranum var mjög athyglisverður. Er þetta virkilega rétt sem hann var að segja?
Sent: Mið 12. Jan 2005 14:26
af Birkir
Hvaða fyrirlestur var þetta? Og er einhvers staðar hægt að nálgast hann á netinu?
Sent: Mið 12. Jan 2005 14:33
af gumol
Það verður hægt að nálgast hann á
http://www.rglug.org einhvertíman. Meira um fyrirlesturinn
hér
Sent: Mið 12. Jan 2005 15:39
af skipio
gumol skrifaði:En seinni fyrirlesturinn um einkaleifi á hugmyndum í hugbúnaðargeiranum var mjög athyglisverður. Er þetta virkilega rétt sem hann var að segja?
Hvað var hann að segja? Ég missti því miður af síðari fyrirlestrinum því ég var í tíma.
En einkaleyfin í hugbúnaðariðnaðinum eru auðvitað orðin verulega klikk! Vonandi að það takist að halda uppi mótstöðu gegn þeim í ESB.
Sent: Mið 12. Jan 2005 16:52
af gumol
Hann var akkurat að nefna dæmi um hvað þau væru orðin verulega klikk. Þetta er samt ekki vandamál á Íslandi ennþá. Þetta ætti heldur aldrei að verða vandamál fyrir þá sem eru ekki að selja hugbúnað:
Lög um einkaleyfi skrifaði:Einkaréttur tekur ekki til:
1. athafna sem ekki tengjast atvinnustarfsemi,
Lög um einkaleyfi