Síða 1 af 1
Suð í heyrnatólum ..
Sent: Fös 07. Jan 2005 10:02
af MuGGz
jæja ég var að uppfæra tölvuna mína og er að nota onboard hljóðkorið á MSI K8N Neo2 Platinium..
og það er alltaf eitthvað leiðindar suð eitthvað sem heyrist, virðist vera tengt hreyfingu á músinni og vinnslu á vélinni þá eykst þetta ...
einhver ráð ? frekar pirrandi

Sent: Fös 07. Jan 2005 11:52
af CendenZ
fá þér sb kort
kosta um 2000 kall eða e-h og þetta suð hefur verið í mínum 3 MSI móðurborðum.
jamm, mjög pirrandi hljóð
Sent: Fös 07. Jan 2005 12:30
af MuGGz
got damnit!
jæja, geri það þá bara

Sent: Fös 07. Jan 2005 13:10
af einarsig
búinn að prófa mute-a dót í sound control dótinu ? eins og line in, aux in, mic og allt það ? prufa að drepa eitt í einu af þessu
Sent: Fös 07. Jan 2005 14:00
af MuGGz
nei reyndar ekki
enn ég fann hérna gamalt soundblaster live hljóðkort og skellti því bara í vélina, virkar fínt
fæ mér einhverntímann þegar ég á pening audigy2 zs hljóðkort
Sent: Fös 07. Jan 2005 15:18
af Pandemic
ég uppfærði bara AC97 driverana mína og þetta hætti

Sent: Fös 07. Jan 2005 15:35
af MuGGz
ertu með msi k8n neo2 platinum ? eða ertu með eins onboard hljóðkort ?

Sent: Lau 08. Jan 2005 00:19
af Cascade
ég er með k8n.. fékk þetta..
Það var nóg að Mute-a CD Player og það hætti.
Svona var það í mínu tilviki
Sent: Lau 08. Jan 2005 00:25
af noizer
Ég er líka með eitthvað svona suð í hátölurunum mínum (er með AC97 innbyggt hljóðkort) en það hættir ekki þótt ég mute'i CD Player
Sent: Lau 08. Jan 2005 01:03
af skipio
Hilmar skrifaði:Ég er líka með eitthvað svona suð í hátölurunum mínum (er með AC97 innbyggt hljóðkort) en það hættir ekki þótt ég mute'i CD Player
Fara í mixerinn, properties, velja allt í playback og fikta sig áfram í að gera mute á það sem þar er. Annars er auðvitað að vinna suðvaldinn með því einfaldlega að gera mute á master rásina. Ef það virkar þarf að gera mute á einhverri undirrásinni.
Sent: Lau 08. Jan 2005 01:54
af noizer
skipio skrifaði:Fara í mixerinn, properties, velja allt í playback og fikta sig áfram í að gera mute á það sem þar er. Annars er auðvitað að vinna suðvaldinn með því einfaldlega að gera mute á master rásina. Ef það virkar þarf að gera mute á einhverri undirrásinni.
Gerði þetta, lagaðist ekkert hjá mér
Sent: Lau 08. Jan 2005 02:06
af skipio
Þá er bara lélegt hljóðkort á móðurborðinu. Þannig var það allavega hjá mér. Gamli SB-Live-inn var miklu betri og því notaður þar til ég skipti því út fyrir M-Audio kort.
Sent: Lau 08. Jan 2005 13:57
af Snorrmund
þetta var svona hjá mér þegar ég tengdi tölvuna við græjurnar. . þá var þetta snúran að klikka eitthvað..