Síða 1 af 1

Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 07:27
af HalistaX
Sælt veri fólkið.

Fyrst ég er búinn að selja tölvuna mína sem ég notaði nær engungis í Skype, þá var ég að pæla hvort þig nerðirnir hérna á síðuni gætuð bent mér á einhver góð leikja headset?

Ég veit ekki almennilega hvað ég er tilbúinn til þess að eyða. Það væri kannski bara best ef menn kæmu með eitt fyrir 20, eitt fyrir 30 og svo eitt fyrir 40 eða eitthvað álíka. Svo veg ég og met bara hvað mér finnst passa best.

Ég hef heldur ekki pælt í því hvort ég vilji þráðlaus eða með snúru eða eitthvað svoleiðis, svo ég hvet ykkur bara til þass að koma með uppástungur :) Það væri náttúrulega klassi ef hægt er að fá headphones með hleðslubatterý sem er hlaðanlegt með þessu klassíska Android pluggi, hvað sem það hét nú aftur, líkt og músin mín. :)

Allavegana, ég treysti á að þið reddið þessu fyrir mig, komið með einhverjar góðar uppástungur að minnsta kosti. Takk og bless í bili :D

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 11:39
af nidur
Sennheiser eru með þetta, pfaff.is :)

Annars finnst mér Corsair 7.1 fínt með pc vélinni

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 11:46
af DJOli
Fer eftir því hversu miklu þú tímir að splæsa :P

Ég splæsti fyrir tveim árum held ég að séu liðin, í Mxl Tempo usb míkrafón með innbyggðu hljóðkorti (Hjá Hljóðfærahúsinu) , og fyrir sjö árum í Sennheiser HD 215 heyrnatól.

Bæði virka mjög vel enn þann dag í dag, og það er bara ekki hægt að toppa þægindin sem því fylgja að vera með usb mæk á míkrafónstand sem einnig geymir heyrnatólin.

t.d. eru Skype, Teamspeak og allir tölvuleikir stilltir á að senda sitt hljóð út í usb hljóðkortið, en google chrome, vlc, splayer, spotify, osfv eru að senda hljóð í hljóðkort tölvunnar sem er tengt við græjurnar í stofunni hjá mér. Algjör draumur.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 12:39
af siggi83
Bara fara í Pfaff og prufa nokkur Sennheiser tól. Allavega mjög góð þjónusta hjá þeim.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 13:10
af dabbihall
Sennheiser er málið held ég. Er sjálfur með G4me Zero og er að fýla þau mjög vel.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 13:19
af ZoRzEr
Sennheiser og Modmic. Ég er með HD700 og Modmic 3.0 og það þrælvirkar. Gríðarlega þægilegt að geta tekið míkrafóninn af.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Mið 01. Jún 2016 13:51
af L4Volp3
Kingston hyperx clouds bæði 1 og 2 eru talin vera með betri leikjaheyrnatólum á markaðnum í dag. Getur keypt þau í Elko

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fim 02. Jún 2016 05:47
af HalistaX
http://pfaff.is/game-zero-svart

Þessi eru víst að koma mjög vel út í reviewum, mjög flott hljóð í mic'num og svona. Ætla að rúlla í Pfaff einhvern tímann við tækifæri og tjékka á þeim. Takk fyrir hjálpina, drengir.

Endilega koma með fleiri uppástungur ef þið haldið að þið getið komið með eitthvað sem toppar þessi. :)

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fim 02. Jún 2016 07:12
af salisali778
Sennheiser zero/one eða pc 363d. Virkilega góður mic og nátturlega sennheiser hljómgæði.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fim 02. Jún 2016 10:56
af thorgeiro
Ég get mælt með kinston hyperx 2, þægilegustu headphone sem ég hef átt, búinn að vera með nokkur sennheiser áður.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fim 02. Jún 2016 10:58
af Haukursv
Ég var með Sennheiser HD 598 og modmic...Geggjað kombó fannst mér. Game zero eru líka flott en ekki hægt að taka micinn af en ég vildi geta notað heyrnatólin mín líka annarsstaðar. Ef það er ekki issue myndi ég fá mér game one eða zero

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fim 02. Jún 2016 23:33
af Steini B
Ég mæli alveg með Game Zero
Þeir eru greinilega búnir að breyta þeim smá, voru fyrst 150ohm, en eru núna aðeins 50ohm, svo það þarf ekki lengur magnara með þeim. :happy
Held það sé samt alltaf betra að vera með utanályggjandi Dac/Magnara

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fös 03. Jún 2016 00:56
af fallen
Ég hef verið með Sennheiser HD 570, 590 og 595 og er núna með Game One. Build qualityið í þessum game headphonum er rusl miðað við hitt, eitthvað plastdrasl sem ískrar í.. eitthvað sem ég lenti aldrei í með hin heyrnatólin. Ágætis hljómur í þessu og mic-inn er fínn, en ef ég væri að versla mér í dag þá færi ég í HD 598 + ModMic.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fös 03. Jún 2016 21:13
af Snikkari
Ég er með Sennheiser Game One, sonur minn er með Sennheiser Game Zero.
Við erum búnir að fara í gegnum frumskóg að headsettum og þetta eru virkilega góð kaup.
Strákurinn minn var að kaupa nýja snúru fyrir Game Zero í Pfaff fyrir stuttu, kostaði 3 þús kall, þeir eiga allt í þetta.
598 + ModMic hljómar ekki illa :)

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Fös 03. Jún 2016 22:34
af daremo
Sennheiser er ekki sama merkið og það var fyrir 10 árum. Allt undir HD 600 er kínverskt rusl í dag.
Vara ykkur sérstaklega við HD 598 sem byggir mikið á orðspori gömlu HD 595. Þau eru hlægilega léleg í samanburði við þau og allt of dýr miðað við gæði.


Edit: Sjálfur nota ég Beyerdynamic 770 Pro, Sennheiser HD 600 og Neewer lapel mæk. Fékk 5x svoleiðis fyrir $10 á ebay.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Lau 04. Jún 2016 10:08
af Varg
Ég er að nota AKG K7XX með ModMic 4.0 helvíti skemtilegt combo. Eini gallinn við ModMic er að þá eru 2 snúrur úr hedsetinu.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Lau 04. Jún 2016 20:54
af htmlrulezd000d
daremo skrifaði:Sennheiser er ekki sama merkið og það var fyrir 10 árum. Allt undir HD 600 er kínverskt rusl í dag.
Vara ykkur sérstaklega við HD 598 sem byggir mikið á orðspori gömlu HD 595. Þau eru hlægilega léleg í samanburði við þau og allt of dýr miðað við gæði.


Edit: Sjálfur nota ég Beyerdynamic 770 Pro, Sennheiser HD 600 og Neewer lapel mæk. Fékk 5x svoleiðis fyrir $10 á ebay.
get ekki verið sammála þinni skoðun á HD 598, keypti þá á Ebay fyrir einhvern 20k og ég er fáránlega sáttur með þau. Mjög þægileg og gott hljóð.

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Lau 04. Jún 2016 21:08
af muslingur

Re: Hvaða headphoneum/m mic mæliði með?

Sent: Lau 04. Jún 2016 22:21
af Macgurka
Game zero eru á 19 þús í elko á granda út morgunndaginn.

Svo eru hyper x mjóg fín fyrir penninginn.