Síða 1 af 1

Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Fös 20. Maí 2016 13:50
af Hallipalli
Er með Gigabyte a55m s2v moðurborð með fm1 socket. Cpu viftan var farinn að vera med leiðindi og eg tók eftir að annað bracketið sem togar kælinguna niður er brotið. Keypti cou cooler sem átti að passa og virtist gera það fyrir utan að bracketið passaði ekki á moðurborðið.

Min spurning er vitiði hvar eg fæ rett bracket a netinu buin að leita talsvert en finn ekkert eins og min (þessi ljosblau stykki sja mynd i viðhengi)

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Fös 20. Maí 2016 16:40
af baldurgauti

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Fös 20. Maí 2016 18:35
af Moldvarpan
Afhverju skilaru ekki þá þessari kælingu sem passar ekki?

Ef kælingin er gefin út fyrir að passa í FM1 socket, þá á hún að passa í það socket. Punktur.

Annars gætiru líka bara haft samband við kísildal t.d. og heyrt í þeim, gætu jafnvel átt gamalt bracket eins og brotnaði hjá þér.
Ég nefni kísildal, því þeir eru mjög liðlegir og oft með töluvert af AMD vörum til.

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Sun 22. Maí 2016 09:33
af Hallipalli
Eg skilaði henni. Eins og eg segi allt virðist smell passa nema þessi festinginn. Er buin að hafa samband við tölvutek þeir skilja ekki afhverju þetta passar ekki

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Sun 22. Maí 2016 13:09
af Klemmi
Moldvarpan skrifaði:Afhverju skilaru ekki þá þessari kælingu sem passar ekki?

Ef kælingin er gefin út fyrir að passa í FM1 socket, þá á hún að passa í það socket. Punktur.
Gott að hann gat skilað, en það er ekki við kælinguna sem slíka að sakast, þessar festingar eru partur af því sem fylgir socketinu. Móðurborð fyrir socket FM1 eru með þessum festingum, og ef þær eru brotnar og kælingin helst því ekki á, þá er það ekki kælingunni að kenna... :)

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Sun 22. Maí 2016 13:34
af Moldvarpan
Vissulega eru retail bracketin fyrir retail kælingarnar.

En þarna var hann að kaupa sér nýja kælingu og með þessari nýju kælingu eru öðruvísi festingar.
Þá þarf að skipta út bracketinu, en nýja bracketið hjá honum passar engann veginn við FM1.

Ég var aldrei að kenna kælingunni um. Bara benda honum á að ef þetta er gefið út fyrir að passa í FM1, þá á það að vera svo.

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Sun 22. Maí 2016 16:57
af Hallipalli
Er ad gera mig bilaðann finn þetta fok dyrt a ebay en tekur 30 daga plus ad fa afhent. Otrulegt hvað svona litið vesen getur skemmt mikið. Finnst einkennilegt ad það koma ekki fleiri bracket með...eda moboið se ekki með fleiri götum

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Sun 22. Maí 2016 17:13
af Klemmi
Moldvarpan skrifaði:Vissulega eru retail bracketin fyrir retail kælingarnar.

En þarna var hann að kaupa sér nýja kælingu og með þessari nýju kælingu eru öðruvísi festingar.
Þá þarf að skipta út bracketinu, en nýja bracketið hjá honum passar engann veginn við FM1.
Flestar kælingar eru fyrir ýmsar gerðir sökkla. Þær sem styðja FM1 gera flestar ráð fyrir þessu bracketi :) Þannig það er ekki hægt að kalla þetta retail bracket fyrir retail kælingar, þettar einfaldlega bracket fyrir kælingar :D

En það er þó ekki ólíklegt að einhverjar kælingar með FM1 stuðningi biðji þig um að fjarlægja þetta því þær noti sitt eigið bracket, það er bara spurning um að finna slíka kælingu.

Búinn að skoða þessa Hallipalli? http://www.xigmatek.com/console/uploadf ... rGuide.pdf
http://kisildalur.is/?p=2&id=2667

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Sun 22. Maí 2016 17:37
af Moldvarpan
Ég er of illa sofinn til að fara í rökræðu á þessu.

Ég veit að t.d. Noctua kæling kemur með mörgum bracketum fyrir mismunandi móðurborðs socket.

En það þýðir ekki að bracketin sem fylgja móðurborðunum virki með Noctua.

Margar kælingar eru með sínar eigin festingar, og þá þarf og nota bracket frá þeim framleiðanda til að festa þær.

Það er það eina sem ég hef verið að reyna koma frá mér.

Re: Brotið bracket fyrir cpu viftu

Sent: Lau 28. Maí 2016 13:01
af Maniax
Getur fengið eitthvað svona notað hjá Tölvutek eða flestum tölvu verslunum hefði ég haldið.
Annars var ég líka að uppfæra í Contac 21 í gær https://tolvutek.is/vara/thermaltake-co ... cox-con-21
og þurfti að taka úr þessa festingu úr AM3 borðinu mínu, Gætir fengið bracketið hjá mér frítt ef þú sækir :)
Mynd