Síða 1 af 3

Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 18:27
af chaplin
Eru ekki örugglega allir að fylgjast með?

http://www.ruv.is/ruv

"It's important to build trust in the government"

"You have a responsibility to pay taxes"

- Sigmundur Davíð

Blaðamaður:
"Did you have any connection to offshore accounts?"

Sigmundur Davíð:
"Me? Uhm.. no? I have always given my assets information to the table, it's unusual question for Icelandic politician to be asked this question, I've always been honest and paid my taxes"

Blaðamaður:
"Þú seldir félag fyrir einn dollara"

Sigmundur Davíð:
"Ég? Neineineinei.."

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 19:02
af rapport
Þessi þáttur er samt bara til að starta umræðunni þegar gögnin komast til almennings þá verður allt crazy.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 19:07
af Revenant
hook, line, and sinker

Kudos til sænska fréttamannsins og Jóhannes hjá Reykjavík Media með þetta.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 19:16
af hagur
Makalaust alveg.

En kemur samt ekki á óvart.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 19:51
af jonsig
Gleymist eftir 2 mánuði .

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 19:57
af bigggan
Núna kemur han bráðum og seigir allar fréttaveiturnar i Evrópu er með áróðursherferð gegn honum, og ekki aðeins rúv...

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 20:10
af HalistaX
bigggan skrifaði:Núna kemur han bráðum og seigir allar fréttaveiturnar i Evrópu er með áróðursherferð gegn honum, og ekki aðeins rúv...
http://www.ruv.is/frett/forsaetisradher ... dum-um-ruv

God damn, þú ert skyggn. Geturu sagt mér hvað ég fæ í hádeginu á morgun?

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 20:13
af GullMoli
Mynd

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 20:42
af bixer
https://youtu.be/S9j1Y9TrmzI?t=420
Mér finnst mjög ósanngjarnt að gefa það í skyn að hann hafi verið giftur í kringum þessi skjöl

Annars finnst mér verið að gera úlfalda úr mýflugu ef félagið er metið á $2, jafnvel þó það sé verið að svíkja undan skatti þá er þetta nú ekki merkileg upphæð

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 20:43
af GuðjónR
Siðlausasta þjóð í heimi?
Getur Forsetinn ekki rofið þing?
Af hverju er ekki búið að handtaka þetta fólk og setja í gæsluvarðhald?
Selja og kaupa 50% hluti í milljarða sjóði á skattaskjólseyju fyrir $1 er þá virði milljarðins $2 og þá skattar greiddir af $2 ?
Er það ekki gjafagjörningur? og eru slíkir gjörningar ekki skattskyldir?

Á sama tíma og Íslendingar búa við gjaldeyrishöft og skilaskyldu á gjaldeyri þá geta menn eins og Júlíus Vífill stofnað sjóð á skattaskjólseyju og dælt í það peningum? Gilda önnur lög um þetta fólk en okkur? Það var slæmt þegar bankabófarnir settu allt á hausinn, en þeir sitja líka inni og verða þar næstu árin, þetta er VERRA, þetta eru landráð!

Svo situr þetta lið sem fastast og tautar og raular tóma þvælu og ber síðan við minnisleysi.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 21:04
af HalistaX
GullMoli skrifaði:Mynd
Ég, no joke, sé hvernig og afhverju Áramótaskaup Stundarinnar Okkar fékk Jabba the Hutt útúr honum. Hann er með þessa helvíti myndarlegu undirhöku og mjög svo þybbið andlit. :lol:

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 21:24
af jericho
Treysti á landa mína sem búa á klakanum að fjölmenna á Austurvöll á morgun!

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Sun 03. Apr 2016 22:49
af zurien

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 00:18
af DJOli
jericho skrifaði:Treysti á landa mína sem búa á klakanum að fjölmenna á Austurvöll á morgun!
Ég væri til í það, og tæki vini og vandamenn með, ef bara ríkið væri til í að dekka bensínkostnað.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 00:23
af chaplin
bixer skrifaði:https://youtu.be/S9j1Y9TrmzI?t=420
Mér finnst mjög ósanngjarnt að gefa það í skyn að hann hafi verið giftur í kringum þessi skjöl

Annars finnst mér verið að gera úlfalda úr mýflugu ef félagið er metið á $2, jafnvel þó það sé verið að svíkja undan skatti þá er þetta nú ekki merkileg upphæð
Það er bara tvennt sem kemur til huga þegar ég las þetta.

a. Þú skilur ekki alveg hvað er að gerast, félagið er ekki metið á $2, það er verið að tala um hálfa milljarð en þó ekki alveg komið á hreint.
b. Þú ert Sigmundur eða Bjarni, ef svo er, boo on you sir.
DJOli skrifaði:
jericho skrifaði:Treysti á landa mína sem búa á klakanum að fjölmenna á Austurvöll á morgun!
Ég væri til í það, og tæki vini og vandamenn með, ef bara ríkið væri til í að dekka bensínkostnað.
Ef allir myndu hugsa svona væru aldrei mótmæli og engin pressa fyrir þessa glæpamenn til að segja af sér.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 00:24
af dori
bixer skrifaði:https://youtu.be/S9j1Y9TrmzI?t=420
Mér finnst mjög ósanngjarnt að gefa það í skyn að hann hafi verið giftur í kringum þessi skjöl

Annars finnst mér verið að gera úlfalda úr mýflugu ef félagið er metið á $2, jafnvel þó það sé verið að svíkja undan skatti þá er þetta nú ekki merkileg upphæð
Ég ætla að gera ráð fyrir því að þú sért að grínast af því að ef þér er alvara með þessu þá lýsir það eiginlega frekar mikilli heimsku.

Hann seldi [núverandi] konunni sinni 50% af félaginu á $1. Það er ekki rangt að tala um hana sem konuna hans í þessu samhengi þó svo að þau hafi gift sig tæpu ári seinna. Svo er, eins og var bent á þarna, ekkert víst að þessi "sala" hafi komið til á þeim tíma sem skjalið er dagsett.

Félagið er augljóslega ekki $2 virði þar sem það á samþykktar kröfur upp á hálfan milljarð króna í þrotabú bankanna.

Annars er ég á því að þó það sé slæmt að þessir ráðamenn eigi eignir í aflandsfélögum (og þá sérstaklega svona skattaskjólum) þá afsagnarsök að gefa það ekki upp í hagsmunaskráningu (þetta, æi, ég hélt að félagið væri í Lúxemborg er ekki afsökun - það þarf líka að gefa það upp). Og alveg á öðru leveli að spila leikinn sem SDG fer í að biðja um umboð til að semja við kröfuhafa þegar hann er einn af þeim (og gefa það ekki upp). Þetta er svona skólabókardæmi um spillingu.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 02:51
af Black
Copy paste af Facebook-

Milljarðamæringur og æðsti valdamaður þjóðarinnar mætir í viðtal til að rausa um mikilvægi þess að skila sínu til samfélagsins, er svo gerður uppvís um hræsni sína þegar fréttamaður vísar til aflandseyjufélags sem hann hafði átt frá því löngu áður en hann settist á þing og sagt engum frá. Félag sem var meira að segja kröfuhafi í gjaldþrotabú gömlu bankanna, bankar sem hann í forsvari ríkistjórnarinnar sá um að semja fyrir gagnvart þeim kröfuhöfum. Hann og konan hans, í gegnum sameiginlegan fjárhag sama hver átti svosem bréfin á hverjum tíma, sátu þ.a.l. báðu megin við borðið í samningaviðræðum sem vörðuðu milljarða milljarða króna og voru afsprengi viðskipta- og stjórnsýsluhátta sem nær eyðilögðu þetta land. Það er á góðri Íslensku kallað hagsmunaárekstur og þykir ekki voðalega kúl í pólitík þar sem menn þurfa að uppfylla mjög há skilyrði um heiðarleika og sannsögli þar sem þeir eru, jú, að basla með hagsmuni allrar þjóðarinnar.

Ofan á það er Sigmundur Davíð einn nojaðasti, skrítnasti og minnst sjarmerandi stjórnmálamaður síðari tíma og bregst við allri gagnrýni með því að verða pirraður, skríða inn í sig og lifa í draumaheimi þar sem allir eru að leynimakka gegn honum. Það sem var kannski mest sláandi við þetta viðtal sem sýnt var í kvöld var hve bersýnilega þessi karakter hans skein í gegn - þetta var eins og þegar morðinginn er böstaður í einhverri einræðu einkaspæjarans í stofunni í breskri sakamálasögu. Núna er þetta golden moment Sigmundar Davíðs ásamt fréttinni um skattaskjólstengsl hans á forsíðu sumra af stærstu fjölmiðla heims og andlit hans á myndum með flottum gæjum á borð við Pútín, Assad Sýrlandsforseta og Sádi-Arabískra prinsa. Þeir sömu fjölmiðlar furða sig á hversu veigamikil tengsl Íslendinga við þessi skattaskjól eru, og hve margir starfandi stjórnmálamenn eru tengdir við þau (3 ráðherrar núverandi ríkistjórnar) - þetta er það sem er að vekja heimsathygli.

Þetta er rosalega stórt mál og mun, verður, að hafa með sér veikamiklar afleiðingar. Þeir hérna sem tala um að það breytist ekki neitt og að það dugi ekkert að pæla í þessu eru hluti af vandamálinu. Stjórnmálamenn myndu aldrei haga sér svona, og gera það hérumbil ekki í engu öðru vestrænu landi, án þess að sæta afleiðingum nema ef fólk leyfir þeim að komast upp með það. Ríkisstjórnarflokkarnir eru fullir af gjörspilltum milljónamæringum sem eru í engum raunhæfum tengslum við þjóðina sem þeir fá sitt umboð frá. Við getum ekki látið þetta yfir okkur ganga ef hér á að heita heilbrigt og starfandi samfélag.

TL;DR: Sigmundur Davíð er moldríkur hræsnari og skúrkur sem kann ekki á pólitík og átti pening í skattaskjóli. Líka tveir ráðherrar og hellingur af öðru valdafólki. Þetta er sannað með gögnum og þykir svo ótrúlegt, jafnvel fyrir litla klikkaða Ísland, að það er að vekja heimsathygli. Við, fólkið, verðum að koma þessi liði frá völdum eða gefast hreinlega upp á þessu landi.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 08:17
af Pandemic
Ég er að vinna hérna í Kaupmannahöfn í fjármálafyrirtæki og þetta var áhugaverður morgunmatur í dag. Það eru margir að tala um þetta og spyrja mig hvenar hann ætli að segja af sér.
Einn fjármálasérfræðingurinn hérna sagði mér líka að það væru þunn rök að geyma peninga á þessum eyjum nema þú ætlaðir að hafa einhvern ávining af því.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 09:17
af bixer
Mér finnst mjög lélegt af simma og bjarna ad draga alla athyglina frá gott talent, ætlar enginn að ræða gott talent?

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 09:57
af Tiger
Pandemic skrifaði:Ég er að vinna hérna í Kaupmannahöfn í fjármálafyrirtæki og þetta var áhugaverður morgunmatur í dag. Það eru margir að tala um þetta og spyrja mig hvenar hann ætli að segja af sér.
Einn fjármálasérfræðingurinn hérna sagði mér líka að það væru þunn rök að geyma peninga á þessum eyjum nema þú ætlaðir að hafa einhvern ávining af því.
Það er nefnilega málið, það er engin að nota þetta "afþvíbara"og þetta heitir ekki skattaskjól bara vegna þess að það er svo mikið logn þarna.

Þetta er eins og að brjótast inní banka um miðja nótt, vera bustaður og segja þá "æji það var svo kalt úti, ætlaði ekki að taka neitt"

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 10:18
af dori
Pandemic skrifaði:Ég er að vinna hérna í Kaupmannahöfn í fjármálafyrirtæki og þetta var áhugaverður morgunmatur í dag. Það eru margir að tala um þetta og spyrja mig hvenar hann ætli að segja af sér.
Einn fjármálasérfræðingurinn hérna sagði mér líka að það væru þunn rök að geyma peninga á þessum eyjum nema þú ætlaðir að hafa einhvern ávining af því.
Það er náttúrulega hagræðið af því að geyma peninga fyrir utan íslenska hagkerfið og núna lítur út fyrir að Landsbankinn í Lúxemborg hafi stundað þetta grimmt fyrir hönd viðskiptavina sinna. Mér finnst líklegt að fólk sem er staðsett í alvöru hagkerfum átti sig ekki á því hversu stór þáttur það er.

Það er auðvitað aldrei afsökun að hafa bara gert það sem bankinn sagði. En getur ekki verið að margir af þessum eigendum aflandsfélaga hafi bara treyst bankanum í blindni og ekki vitað betur? Bara til að árétta. Mér finnst þetta klárlega vera afsagnarsök fyrir ráðherra.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 10:35
af GuðjónR
Tiger skrifaði:
Pandemic skrifaði:Ég er að vinna hérna í Kaupmannahöfn í fjármálafyrirtæki og þetta var áhugaverður morgunmatur í dag. Það eru margir að tala um þetta og spyrja mig hvenar hann ætli að segja af sér.
Einn fjármálasérfræðingurinn hérna sagði mér líka að það væru þunn rök að geyma peninga á þessum eyjum nema þú ætlaðir að hafa einhvern ávining af því.
Það er nefnilega málið, það er engin að nota þetta "afþvíbara"og þetta heitir ekki skattaskjól bara vegna þess að það er svo mikið logn þarna.

Þetta er eins og að brjótast inní banka um miðja nótt, vera bustaður og segja þá "æji það var svo kalt úti, ætlaði ekki að taka neitt"
Þetta er algjörlega óþolandi, "hann græddi ekkert á þessu" eða "það var engin ávinningur" eða "hann tapaði á þessu" ... það skiptir bara engu máli, þeir sem rændu bankanum í Borgartúni á síðasta ári græddu ekkert, þurftu að skila ránsfengnum og "græddu" fangelsisdóm.

Þetta er ástæða þess að kerfið okkar er í rúst! Allt að molna niður, vegirnir, heilbrigðistþjónustan...allt!
Allt sem einhvers virði er tekið og ávinningurinn falinn á skattaskjólum, svo má almenningur éta það sem úti frýs með ónýtri krónu, háum vöxtum og verðstryggingu. VIÐBJÓÐUR!
Fólkið sem á að vinna fyrir þjóðina er að vinna fyrir sjálft sig, moka undan eins og það getur meðan það getur því það eru engar afleiðingar.
Þetta hyski á ekki að fá að segja af sér, það á að reka það og henda í gæsluvarðhald meðan mál þess eru rannsökuð.
Af hverju eru ekki viðurlög við landráði?

Bjarni þorir ekki heim, hann þykist hafa misst af flugi frá Florida, ætli hitt fíflið noti ekki sömu afsökun og í síðustu viku "er veikur" ... sem er náttúrulega alveg rétt, hann er fársjúkur þó hann sé kannski ekki með hita.

Ríkisstjórnin mun samt reyna að hanga á völdum eins og hundur á roði, aðalmarkmiðinu hennar er ekki náð, þ.e. að helmingaskipta bönkunum á milli sjálftökuflokkannna og fjölskyldum þeirra.

Svo það ömurlega við þetta allt er sú staðgreynd að þrátt fyrir að allt fari í háaloft og kosið verði uppá nýtt þá mun ALLT þetta hyski sitja áfram á þingi, bara í öðrum stólum.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 13:27
af GuðjónR
Afsakið double post.
En svona líður mörgum í dag, þar á meðal mér.

Mynd

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 13:53
af chaplin
Mikið rosalega er maðurinn veruleikafirrtur! Það er enginn með neitt í skattskjóli "af því bara".

Hann er að spila sig sem Séra Saklaus og ætlar ekki að segja af sér. Sannur siðblindur pólitíkus!

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 14:05
af einarhr
Fyrir 3 árum !

Mjög áhugavert að lesa þetta í dag

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... =kosningar