Síða 1 af 1
Hvaða skjákort á ég að fá mér?
Sent: Mán 28. Mar 2016 09:36
af audiophile
Góðan dag.
Ég er búinn að vera truntast lengi á gömlu Nvidia 570GTX korti sem hefur staðið eins og hetja en langar að uppfæra fljótlega í eitthvað sem keyrir þá fáu leiki sem ég spila aðeins betur.
Ég er semsagt að leita af enhverju sem keyrir BF4, CoD og BF5 þegar hann kemur í 1920x1080 í nánast max gæðum á góðu framerate án þess að splæsa í 100þ kr. skjákort. Það þarf að vera ágætis uppfærsla úr 570 kortinu en ekki of dýrt. Má líka vera notað kort.
Hef verið að skoða 970 kortið en væri til í að komast upp með eitthvað ódýara. Eru kort eitthvað að fara að lækka á næstunni? Eitthvað nýtt á leiðinni?
Re: Hvaða skjákort á ég að fá mér?
Sent: Mán 28. Mar 2016 13:08
af Emarki
Það styttist í kynslóðaskipti frá nvidia. Það verður ráðstefna frá þeim í apríl sem mun varpa hulunni.
Ég er sjálfur að bíða eftir þessu, þess vegna myndi ég segja að það væri best að bíða aðeins með kaup.
Googlaðu um nvidia pascal.
Re: Hvaða skjákort á ég að fá mér?
Sent: Mán 28. Mar 2016 15:02
af Alfa
Þar sem ég spila mikið BF seríuna þá get ég svarað þessu ágætlega. Persónulega er ég með 980 GTX sem gerir það fínt nema að ég er í 2560x1440 sem eru um 70% fleiri pixlar en 1080P svo mun þyngra. Ég nota 144hz skjá svo ég reyni að nálgast það sem mest með því að læsa leiknum í 144fps til að fá "flatline" og um leið spara afl og hita í kortinu ef það nær 144fps (90% tilvika á mínum stillingum) en ég nota reyndar ekkert AA í leiknum heldur SweetFX layer. En nóg um það.
Sennilega bestu kaupin í dag í 1080P eru MSI 390 8GB á um 60 þús í Att, því miður er allt of langt stökk niður í annaðhvort 380/380X og 960GTX eða um í 40 þús kallinn. Segjandi það þá væru besti sénsinn fyrir þig að kaupa notað 970, 290/290X eða 980 (keypti mitt notað á 62 þús). Verðin muni ekki lækka 1-2-3 á næstu mánuðum sama hvað nvidia gerir. Finally ekki spila leikinn í Ultra, það gerir nánast ekkert nema kötta niður FPS um meira en 25% vs HIgh. Og AA bætir hellings Input laggi í hann líka.
kv Kristján
Re: Hvaða skjákort á ég að fá mér?
Sent: Mán 28. Mar 2016 15:57
af audiophile
Takk fyrir innleggin.
Já ég hef verið að skoða muninn á 380X/960 kortin á móti 390/970 og það er töluvert stökk þarna á milli í performance og verði. Það er eins og það vanti eitthvað þarna á milli. En ég er einmitt að skoða frekar 40þ og undir verðflokkinn því ég get bara ekki réttlætt 60þ+ fyrir skjákort þar sem ég spila svo lítið og nóg af öðrum áhugamálum til að sökkva pening í
Samkvæmt þessari grein er þetta 380X kort flott í 1080p leiki
http://www.hardocp.com/article/2016/01/ ... 0p_review/
Re: Hvaða skjákort á ég að fá mér?
Sent: Mán 28. Mar 2016 16:04
af Alfa
Eflaust, ég held ég hafi bara séð eina verslun með 380X það er kísildalur.
http://kisildalur.is/?p=2&id=3051