Síða 1 af 1

Kísildalsmenn fá A+ fyrir vörulýsingu

Sent: Þri 15. Mar 2016 10:48
af AntiTrust
http://kisildalur.is/?p=2&id=3088
Verkfræðingarnir hjá Raidmax hafa skapað svarthol sem lætur tíma og rúm falla saman eða það er allavega eina sem okkur dettur í hug til að skýra það hvað þú kemur miklu inn í þennan kassa
Maður bíður hreinlega eftir því að það stökkvi hópur af trúðum og fíll út úr kassanum svona til að kóróna það en best er að taka fram að þeir eru ekki innifaldir í verðinu.
=D>

Re: Kísildalsmenn fá A+ fyrir vörulýsingu

Sent: Þri 15. Mar 2016 11:53
af worghal
Snilld :lol:

Re: Kísildalsmenn fá A+ fyrir vörulýsingu

Sent: Þri 15. Mar 2016 14:31
af pattzi
Þetta er snilld :megasmile

Re: Kísildalsmenn fá A+ fyrir vörulýsingu

Sent: Þri 15. Mar 2016 15:03
af vesi
Þetta er svona með því betri sem maður hefur rekist á.
Langt frá ofurýktum,ofnotuðum lýsingarorðum í bæklingum tölvuteks t.d.

Mættu hinns vegar bæta við nokkrum myndum til að sýna uppröðunina.

Re: Kísildalsmenn fá A+ fyrir vörulýsingu

Sent: Þri 15. Mar 2016 15:08
af worghal
vesi skrifaði:Þetta er svona með því betri sem maður hefur rekist á.
Langt frá ofurýktum,ofnotuðum lýsingarorðum í bæklingum tölvuteks t.d.

Mættu hinns vegar bæta við nokkrum myndum til að sýna uppröðunina.
hvað meinaru, gtx 960 skjákortin sem tölvutek eru að selja eru klárlega "ein bestu skjákort í heimi"

Re: Kísildalsmenn fá A+ fyrir vörulýsingu

Sent: Þri 15. Mar 2016 21:51
af Spekingur
Hópur af trúðum og fíll eru ekki innifalin í verðinu er alveg svona hint í að þeir bjóði samt upp á hóp af trúðum og eitt stykki fíl svona til viðbótar við gefið verð...