Síða 1 af 1

Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:02
af Steinman
Er að fá mikið af villum í Event Viewer sem benda mér alltaf á að uppfæra BIOS, sem er með nýjustu uppfærslu. Svo mér datt í hug að hreinsa CMOS og uppfæra aftur. Hef svo sem ekki hugmynd um hvort þetta lagi eithvað eða hvort ég þurfi að standa í þessu. Kannski að einhver hérna getur sagt mér það?
En mig langaði athuga hvort maður þurfi, eða kannski mællt með því, að setja upp stýrikerfið aftur eftir að hreinsa CMOS? Getur eithvað í windows farið í steik eða breytir það kannski enngu máli?

Re: Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:07
af nidur
Þú clerar bara bios stillingar með cmos ferð ekki aftur í eldri útgáfu af bios.

Og hefur engin áhrif á stýrikerfið annað en að kannski veit vélin ekki frá hvaða disk á að boota.

Kannski batterýið orðið eitthvað slapt.

Re: Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:29
af Steinman
Og er þá enngin leið til að fara í orginal bios útgáfu?
Þetta er aðeins 2 mánaða gamallt borð svo batteríið er vonandi ekki að valda neinum vandræðum...

Re: Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:50
af Njall_L
Steinman skrifaði:Og er þá enngin leið til að fara í orginal bios útgáfu?
Þetta er aðeins 2 mánaða gamallt borð svo batteríið er vonandi ekki að valda neinum vandræðum...
Spurning um að hafa samband við Asus, mögulega er einhver Beta Bios í gangi. Yfirleitt er ekki hægt að downgreida Biosinn á auðveldan hátt

Re: Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:57
af Steinman
Njall_L skrifaði:

Fjandinn... þetta er bios uppfærsla sem kom út seinnt í janúar. Ég hugsa að ég geri það þá, hafi samband við Asus.
Er annars eina lausnin að bíða eftir næstu bios uppfærlsu og vona að þetta lagist?

Re: Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Lau 20. Feb 2016 17:23
af Njall_L
Steinman skrifaði:
Njall_L skrifaði:
Steinman skrifaði:Og er þá enngin leið til að fara í orginal bios útgáfu?
Þetta er aðeins 2 mánaða gamallt borð svo batteríið er vonandi ekki að valda neinum vandræðum...
Spurning um að hafa samband við Asus, mögulega er einhver Beta Bios í gangi. Yfirleitt er ekki hægt að downgreida Biosinn á auðveldan hátt
Fjandinn... þetta er bios uppfærsla sem kom út seinnt í janúar. Ég hugsa að ég geri það þá, hafi samband við Asus.
Er annars eina lausnin að bíða eftir næstu bios uppfærlsu og vona að þetta lagist?
Jabb það eru góðar líkur á því ef að Biosinn er pottþétt að valda villunum

Re: Hreinsa CMOS og stýrikerfi

Sent: Lau 20. Feb 2016 18:25
af Steinman
Aha! það var að koma út ný BIOS útgáfa í gær (sem styður MAC OS wtf?). Ætli þeir hafi ekki séð þráðin hjá mér og brugðist við í snarræði ;)
Vonandi að það reddi þessum villum og errorum hjá mér. Takk fyrir hjálpina báðir tveir, ég hefði sennilega verið búin að hreinsa cmos og enduruppsetja windows án árangurs :dontpressthatbutton hjúkket.