Síða 1 af 1

Smá pæling með FPS

Sent: Mán 27. Des 2004 11:31
af Pepsi
Sælir, eitt sem ég var að spá í sambandi við fps í CS:Source. Ég er að fá svona fra 40-80 og dett stundum uppfyrir 80 stöku sinnum. Er samt að skora frekar vel í 3dMark05 (sem kemur kanski cs:source ekkert við). Ég er að spila á LCD upplausn 1280x1024 og fps eykst ekkert þó að ég breyti stillingum eitthvað. Er þetta ekki örgjörfinn eða minnið sem er að flöskuhálsa kortið hjá mér? Ef það er örrinn hvað gerist þá ef ég fæ mér AMD64.

Sent: Mán 27. Des 2004 11:33
af einarsig
ég klukkaði örrann um 340 mhz og við það fékk auka 10 fps :) þú getur prufað o'c örgjörvann og tekið stress testið

Sent: Mán 27. Des 2004 12:01
af Pepsi
já það er alltaf svona aukakostur hjá mér, þá meina ég aukakostur þar sem ég hef bara ekki þekkinguna í það að overclocka, spurning að uppfæra bara í amd64, allveg ótrúlegt hvað nýjir hlutir kalla alltaf á eitthvað meira. ég verð bara að setja my mobo, örgjörva og minni á sölu, Anyone interested?????

Sent: Mán 27. Des 2004 13:34
af TechHead
Ég skal kaupa örrann á 4000 :D

Sent: Mán 27. Des 2004 14:10
af Pepsi
hehe ég ætla að reyna að láta pakkann fara allan saman

Sent: Mán 27. Des 2004 18:10
af Daz
Þú segir að minnið sé 266 mhz, ég myndi halda að það væri þá flöskuháls 333mhz minni (og augljóslega 400mhz osfrv. en líklega ekkert betur en 333mhz) virkar betur með þínum örgjörva. Spurning aftur á móti hvort það er þess virði að eyða 15-20 þúsund í nýtt minni sem skilar kannski 5% aukningu í fps.

LCDinn getur verið flöskuháls, en hann takmarkar samt bara hámarks FPSið sem þú færð, svo flöktandi FPS eru ekki skjánum að kenna.

Sent: Mán 27. Des 2004 20:19
af Pepsi
Já einmitt, menn eru búnir að vera að segja mér að kaupa bara nýtt minni, moboið styður dual channel og 400mhz minni. En er þá 1 512mb góður minniskubbur að vinna betur en 1024mb 3 kubbar?? Getur ekki verið stórkostlegur munur. Ef maður ætlar svo á annað borð að kaupa amd 64 þá fær maður sér bra einhvern uppfærslupakka sem inniheldur minni. Bara andskoti erfitt eftir að vera nýbúinn að fjárfesta í svo dýru skjákorti.

Sent: Þri 28. Des 2004 11:28
af Daz
Pepsi skrifaði:Já einmitt, menn eru búnir að vera að segja mér að kaupa bara nýtt minni, moboið styður dual channel og 400mhz minni. En er þá 1 512mb góður minniskubbur að vinna betur en 1024mb 3 kubbar?? Getur ekki verið stórkostlegur munur.
Já einn 512 mb 333 eða 400 mhz kubbur mun skila þér hraðaaukningu, en hversu mikilli veit ég ekki, kannski í kringum 5-10%, hvort það er peninganna virði verður þú að dæma sjálfur. En munurinn á 512 og 1024 er aftur á móti ekki stórkostlegur nema þú sért mikið í þungri vinnslu (og ef svo er þá veistu af því). Ég held að það séu ekki margir leikir sem nýta 1024 mb betur en 512 mb.
En dual channel á AMD móðurborði, eitthvað hljómar það nú loðið.

Sent: Þri 28. Des 2004 13:43
af einarsig
sko það sem ég er búinn að vera var við undanfarið er að margir nýjir leikir eru að nota mjög mikið minni.... t.d vampire the masqurade : bloodlines er að loada allt að gíg í ramið sem gerir það að verkum að ég lagga á opnum svæðum í leiknum... urr eins með half-life 2 og EQ2.. þess vegna er næsta uppfærsla hjá mér sennilega annar minniskubbur

Sent: Þri 28. Des 2004 16:18
af Pepsi
já ok, maður hefur ekki allveg efni á amd64 og moboi uppfærslu yet þannig að maður tekur sé eitthvað geggjað minni til að byrja með held ég

Sent: Þri 28. Des 2004 16:21
af Cascade
lýst þér á einhver minni þarna?

Sent: Fim 30. Des 2004 01:35
af Pepsi
já heldur betur