Síða 1 af 1

Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Sun 14. Feb 2016 22:59
af Njall_L
Sælir vaktarar.

Nú er ég að fara til Þýskalands í mánuðinum og hef verið að velta því fyrir mér hvernig það er að kaupa áfengi úti og koma með heim. Í Þýskalandi er kaupaldurinn 18 ára og er ég akkúrat á þeim aldri en hér heima 20 ár. Ég er því að velta fyrir mér hvort að ég gæti komið heim með flöskur af áfengi, innan leyfilegra marka miðað við tollinn, án þess að eiga það á hættu að þær væru teknar af mér í einhverju tjekki.

Veit einhver hvernig þessu er háttað þar sem að ég er ekki að finna neinar alminnilegar upplýsingar um þessi mál á netinu?

Re: Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Sun 14. Feb 2016 23:07
af sverrirgu
Nei, þú verðu að vera búinn að ná aldrinum hér heima annars eru viðkomandi vörur gerðar upptækar.

https://www.tollur.is/einstaklingar/tol ... -farangur/
Lágmarksaldur til að flytja inn áfengi er 20 ár og 18 ár til að flytja inn tóbak.

Re: Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Sun 14. Feb 2016 23:18
af Njall_L
sverrirgu skrifaði:Nei, þú verðu að vera búinn að ná aldrinum hér heima annars eru viðkomandi vörur gerðar upptækar.

https://www.tollur.is/einstaklingar/tol ... -farangur/
Lágmarksaldur til að flytja inn áfengi er 20 ár og 18 ár til að flytja inn tóbak.
Ahh var ekki búinn að sjá þetta. En ætli þetta bíði þá ekki bara betri tíma.

Re: Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Mán 15. Feb 2016 10:43
af Quemar
Það má alltaf reyna, ekki eins og þeir tékki alla...

Re: Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Mán 15. Feb 2016 11:31
af KermitTheFrog
Quemar skrifaði:Það má alltaf reyna, ekki eins og þeir tékki alla...
18 ára gutti að koma einn í gegn? Líkurnar á því að hann verði ekki tekinn eru hverfandi.

Re: Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Mán 15. Feb 2016 20:54
af zedro
KermitTheFrog skrifaði:18 ára gutti að koma einn í gegn? Líkurnar á því að hann verði ekki tekinn eru hverfandi.
Mynd

Re: Koma með áfengi heim frá útlöndum?

Sent: Þri 16. Feb 2016 09:25
af snaeji
Svo þarftu að borga förgunargjald á áfenginu sem er gert upptækt og það er há upphæð minnir mig, hef borgað einhvern 8þ í sekt þegar ég hafði ekki náð aldri fyrir áfengi ](*,)

Þú getur hins vegar keypt fjall af neftóbaki úti í þýskalandi sem er kostar ekkert þarna úti og selt það hérna heima með miklum hagnaði, og farið svo bara í ríkið fyrir mismuninn \:D/

Btw 900 kr sekt á 50 gr af neftóbaki og það eru 7gr í einni president dollu, svo það eru 900 kr sekt fyrir 14 dollur.