Síða 1 af 1
Bleikur skjár
Sent: Sun 26. Des 2004 17:46
af Palm
Ég er með tveggja ára gamlan Sampo (19") skjá sem keyptur var í tölvulistanum. Núna er skyndilega komin bleik eða ljósrauð slikja yfir allan skjáinn - vitið þið hvað það er eða hvar/hvernig er best að laga það?
Skjárinn er held ég kominn úr ábyrgð - hvert er best/órdýrast að fara með hann í viðgerð?
Getur maður nokkuð lagað þetta sjálfur?
Re: Bleikur skjár
Sent: Sun 26. Des 2004 22:21
af ponzer
Palm skrifaði:Ég er með tveggja ára gamlan Sampo (19") skjá sem keyptur var í tölvulistanum. Núna er skyndilega komin bleik eða ljósrauð slikja yfir allan skjáinn - vitið þið hvað það er eða hvar/hvernig er best að laga það?
Skjárinn er held ég kominn úr ábyrgð - hvert er best/órdýrast að fara með hann í viðgerð?
Getur maður nokkuð lagað þetta sjálfur?
Ertu með einnhvern
segul hjá skjánum ?
Sent: Sun 26. Des 2004 22:35
af Pandemic
Annað hvort ertu með hátalara eða segul of nálægt skjánum eða hann hefur lent í einhverju hnjaski
Sent: Sun 26. Des 2004 22:44
af ParaNoiD
ég lenti nú í því að sony skjárinn minn varð allt í einu grænn ...
þá var hann bara ekki alveg í sambandi við skjákortið .. gætir ath hvort það sé eitthvað sambandsleysi

Sent: Sun 26. Des 2004 22:51
af noizer
Ég er með hátalara uppá skjánum, og hjá báðum hliðunum (frekar nálægt), allt í lagi með skjáinn minn

Sent: Sun 26. Des 2004 23:16
af Palm
Takk fyrir þessi svör - ég ætla að athuga málið með segulinn og hvort eitthvað sé ekki rétt tengt (er ekki með skjáinn þar sem ég er núna).
Ef það er ekki málið - hvað annað getur þetta verið og hvað get ég gert?
Sent: Sun 26. Des 2004 23:40
af MezzUp
Ég myndi giska á þetta væri eitthvað í snúrunni/tengingunni. Skalt prófa að 'wiggla' snúrunni.
Hilmar skrifaði:Ég er með hátalara uppá skjánum, og hjá báðum hliðunum (frekar nálægt), allt í lagi með skjáinn minn

Tölvuhátalarar eru vitaskuld segulvarðir og (samkvæmt nýlegum þræði) eru margir venjulegir hátalarar það líka.
Sent: Mán 27. Des 2004 13:33
af TechHead
Ég hef mikið rekist á að spennubreytar nálægt skjám valdi svona leiðindum...
Sent: Mán 27. Des 2004 17:37
af Palm
Takk kærlega fyrir öll þessi svör.
Prófaði að hreyfa snúruna til og liturinn breyttist á skjánum - úr því að vera bleikur yfir í að vera grænn og svo yfir í eðlilegan lit.
Þarf greinilega að skipta um snúru - takk fyrir þetta - var næstum rokinn af stað með skjáinn
