Síða 1 af 1

Nýr skjár og skjákort .. What to get.

Sent: Mið 03. Feb 2016 21:11
af Snikkari
Sælir.
Strákurinn minn er með 24" 60hz skjá frá Benq og GTX 760, spilar mest 1st person shooter og langar í nýjan skjá og skjákort.
Ég var að spá í að kaupa handa honum 27-28" 2560 x 1440, 120-144hz skjá og GTX 980 eða 980ti.

Hvaða leikjaskjáir með þessum speccum eru best bang for the buck í dag ? Vill helst ekki fara mikið yfir 120 þús í skjá.

Out.

Re: Nýr skjár og skjákort .. What to get.

Sent: Mið 03. Feb 2016 21:30
af mercury
fékk mér þennan. http://tl.is/product/27-asus-vg278he-14 ... -ips-skjar
sé ekki eftir því. virkilega flottur skjár.

Re: Nýr skjár og skjákort .. What to get.

Sent: Mið 03. Feb 2016 21:34
af skirnirm
BenQ GW2765HT er 2560 x 1440 en samt aðeins 60hz en getur fengið hann fyrir 90þ sem sparar þgi doldið :happy

2560 x 1440

Re: Nýr skjár og skjákort .. What to get.

Sent: Mið 03. Feb 2016 21:39
af Frost
skirnirm skrifaði:BenQ GW2765HT er 2560 x 1440 en samt aðeins 60hz en getur fengið hann fyrir 90þ sem sparar þgi doldið :happy

2560 x 1440
Er með þannig skjá og get sagt að hann er virkilega flottur og góður.

Mæli samt enn frekar með ASUS PG278Q... :sleezyjoe

Re: Nýr skjár og skjákort .. What to get.

Sent: Mið 03. Feb 2016 21:57
af Njall_L
Persónulega myndi ég aðallega horfa á að skjárinn væri með G-Sync ef að ég væri að uppfæra í dag og að panillinn væri 100Hz+

Re: Nýr skjár og skjákort .. What to get.

Sent: Mið 03. Feb 2016 22:58
af Hnykill
27" 120/144 Hz skjár og Geforce 980 TI á 1080/1440 upplausn er nákvæmlega það sem þú þarft til að spila FPS leiki á 100+ FPS í dag. allir leikir í high eða Ultra stillingum. Þarft ekkert G-sync þar sem það stillir bara Hz á skjánum á sama og skjákortið skilar í FPS til að minnka ""Tear".. það virkar mjög vel saman til að synca saman skjáinn og skjákortið en gefur engin meiri afköst af neinu.. með 980 Ti og 120/144 ertu bara ekkert að fá neitt "tear sem þú tekur eftir"

ASUS PG278Q 144 Hz eins og Frost segir.. Geforce 980 TI ..Allir leikir með Anistropic 16X og Anti-aliasing ekki yfir 4X. þá ertu góður næsti 3-4 árin með hörðustu leikina á High-Ultra stillingum.

Vildi ég ætti peninginn í þetta því það er nákvæmlega það sem ég vill sjálfur.

Þessi skjár.
Asus 27" PG278Q
http://www.att.is/product/asus-27-pg278q-leikjaskjar

Og þetta skjákort.
Palit GeForce® GTX 980 Ti Super JetStream
http://www.start.is/index.php?route=pro ... ct_id=1208

Kostar þig 284.850 saman sem er um það bil kostnaður á góðri nýrri tölvu í dag :klessa

Þetta er það besta sem þú gætir keypt í dag fyrir FPS leiki. :happy

Stefni sjálfur á þetta kort í sumar og skjáinn næsta haust. þetta er ekki "Bang for the buck" setup eins og þú segir.. bara það besta :D

Fyrir "Bang for the buck" myndi ég mæla með AMD Radeon R9-390x 8GB og ódýrasta 24" 120 Hz skjá sem þú finnur. það klikkar heldur ekki .

Er sjálfur með 24" 144 Hz skjá og spila aðallega FPS leiki. systir mín er með 27" 60 Hz og ég hef prófað að spila í hennar tölvu. ég vil langt um frekar 24" 144 Hz en örfáum cm stærri skjá á helmingi minni Hz-um. það munar öllu í FPs leikjum.