Síða 1 af 1

Rispaður gluggi

Sent: Fös 29. Jan 2016 21:02
af baldurgauti
Hæhæ, ég vildi bara deila því með ykkur, að ef turninn ykkar er með glugga á hliðinni sem er eitthvað rispaður (Eins og minn var), er hægt að spreyja smá WD-40 í tusku og þurka yfir, virkar ekki með mjög djúpar rispur en þetta svín virkaði hjá mér,
þetta er kannski eitthvað sem allir hérna vita, en ég vildi bara deila þessu með ykkur því þetta bjargaði deginum mínum alveg í gegn! \:D/

Re: Rispaður gluggi

Sent: Fös 29. Jan 2016 23:43
af jonsig
Hvernig gluggi er þetta ? plast? gler? acrilic?

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 00:10
af baldurgauti
Acrylic held ég að ég sé með, gleymdi að taka fram á hvernig glugga þetta virkar, en ég er með Thermaltake Versa H24

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 00:23
af MatroX
þetta býr samt bara til smá filmu og um leið og hún fer þá eru rispurnar enþá þarna

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 00:50
af baldurgauti
Já, þá gæti ég annahvort sett meira eða keypt eitthvað kitt sem ég er búinn að vera að lesa um sem ætti alveg að halda þessu, alskonar efni til þess að nudda á gluggann, veit einhver hvort þetta fáist hérlendis?

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 01:19
af rapport
Bara ekki... alls ekki nota sítrónudropa eða svona orange hreinsiefni.

Þá geta plast/plexi gluggarnir farið að springa/molna.

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 01:51
af baldurgauti
Nú skil ég ekki, sítrónudropar? Ég ekki að fatta hvernig þeir koma efninu við :S

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 16:57
af Skippó
Citrus er oft notaður til að losa sig við skít af gleri, citrus er tildæmis í rúðupissi og hann er mjög góður til að ná af eins og afgangi af límmiða í glugganum hjá þér.

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 16:58
af rapport
Skippó skrifaði:Citrus er oft notaður til að losa sig við skít af gleri, citrus er tildæmis í rúðupissi og hann er mjög góður til að ná af eins og afgangi af límmiða í glugganum hjá þér.
Jamm, bara ekki nota á plast/plexy...

Kannski tilgangslaus ábending... en learn from my mistakes guys/gals...

Pirrandi að eiga tölvukassa með stóru gati en ekki glugga :guy

Re: Rispaður gluggi

Sent: Lau 30. Jan 2016 20:23
af Skippó
rapport skrifaði:
Skippó skrifaði:Citrus er oft notaður til að losa sig við skít af gleri, citrus er tildæmis í rúðupissi og hann er mjög góður til að ná af eins og afgangi af límmiða í glugganum hjá þér.
Pirrandi að eiga tölvukassa með stóru gati en ekki glugga :guy
Haha já það yrði svolítið böggandi að lenda í því

Re: Rispaður gluggi

Sent: Fim 11. Feb 2016 00:11
af baldurgauti
Update,
Rispan sem átti sér stað er enþá ósjáanleg, þannig ég get staðfest að þetta dugar í þónokkurn tíma. :)