Síða 1 af 1

9600SE vandræði í Medal of Honor Pacific Assault

Sent: Mið 22. Des 2004 22:08
af hsm
get ekki spilað leikin ekki einu sinni í lægstu upplausn.
Er þetta skjákortið eða eitthvað annað.
er búinn að prufa nýjustu driverana bæði catalog og DNA!!

Ég veit að kortið er úrelt, það var það þegar ég fékk það fyrir rúmu ári síðan :oops: .
En ég verð að getað spilað eitthvað áður en ég fer út í endan Febrúar(USA) þá ætla ég að fá mér nýtt kort.

Er að spá í þessum kortum á meðan.
hvort kortið er betra.

5700 Ultra 128mb 16.999kr http://www.bt.is/BT/Tolvubunadur/vara.a ... %c3%a1kort

ATI 9600XT 256mb 16.990kr http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=858

Sent: Mið 22. Des 2004 22:38
af einarsig
ég hef ekki verið að heyra góðar sögur af 5700 ultra.. næla sér bara í 6600 GT og þá ertu í ágætismálum.

Sent: Mið 22. Des 2004 23:39
af hsm
Þá er ég kominn í 25.000kr og mér finst það heldur mikið því að ég er að fá nýtt kort í feb-mar. ætlaði bara að fá mér eitthvað sem ég gæti notað þangað til og sett það í aðra tölvu sem ég er með þegar nýtt kæmi í hús. :)

Sent: Fim 23. Des 2004 01:01
af Stutturdreki
Kíktu á VGA Charts IV á Tomshardware. Eða jafnvel hluta III, bæði kortin eru þar líka.

Síðan er bara að google kortin og finna reviews.

Myndi samt mæla með því að þú findir þér kort með minnst 8 rendering pipelines (kortin sem þú spyrð um eru bæði með 4 pípum og gamla kortið þitt líka) getur munað svakalega um það.

Sent: Fim 23. Des 2004 01:04
af hahallur
held þú ættir bara að pína þig fram í febrúar og kaupa en betra kort en þú ætlaðir þér að kaupa í staðin fyrir að vera að eiði í þessi ofantöldu sem eru ekkert góð.

Sent: Fös 24. Des 2004 23:36
af hsm
hahallur skrifaði:held þú ættir bara að pína þig fram í febrúar og kaupa en betra kort en þú ætlaðir þér að kaupa í staðin fyrir að vera að eiði í þessi ofantöldu sem eru ekkert góð.
Já ég veit ekki hvað ég geri en það er gott að þú veist hvaða kort ég ætla að kaupa :D en ég var að hugsa um x800 xt kanski að það verði komið betra kort í feb-mar.

en ef að það sem Stutturdreki segir með pípurnar þá getur vel verið að ég bíði en mér vantar samt ágætis kort í aðra vél sem ég á.

Hugsa málið en takk samt fyrir ábendingarnar. :8)