Síða 1 af 1
Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 03:26
af itme
Ég er búin að vera að spá í að kaupa mér sjónvarp inní herbergið mitt og veit ekki alveg hvaða sjónvarp ég ætti að taka, sá eitt í elko sem er 48 tommu(
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Sjonvo ... etail=true) er það of stórt fyrir svefnherbergi? og hvaða örðum sjónvörpum mæliði með fyrir ps4?

Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 03:31
af HalistaX
Hvað ertu venjulega langt frá sjónvarpinu? Eða þú veist, hvað verður langt í það frá þér miðað við hvert þú ætlar að setja það?
Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 03:41
af itme
Það eru svona sirka 2,6 metrar
Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 03:47
af HalistaX
Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 03:57
af itme
Okay takk kærlega, en er þetta alveg gott sjónvarp, eða er eitthvað annað sem þú mælir með ?

Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 04:15
af HalistaX
Ef planið er að nota það bara í PS4 þá sé ég ekkert að því.
Hinsvegar fann ég þetta á google eða googlaði þetta öllu heldur,
https://www.google.ch/webhp?sourceid=ch ... pport%204k
http://www.gamefaqs.com/boards/691087-p ... 4/71301536
Ef þú vilt vera Future Proof þá væri nátturulega toppurinn að fá sér 4k fyrst PS4 styður 4k afspilun á vídjóum á meðan max upplausn á leikjunum er bara 1080p.
Ég er svo sem enginn sjónvarpa kall þannig að ég get eiginlega ekki bennt þér á nein en eins og Vesi kom með á öðrum þræði, sem er að skoða sjónvörp líka, er þetta ekki slæmt, kostar ögn meira en er, sýnist mér, bara helvíti gott.
http://ormsson.is/samsungsetrid/vorur/1076/
Spurningin er; Hvort viltu 1080p eða 4K?
EDIT: En já, mér sýnist þetta sem þú linkar á bara fínt. Ég myndi samt fá second opinion á það frá einhverjum sjónvarpskalli, þeir eru allir farnir að sofa eins og er haha

Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 07:45
af nidur
Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 08:29
af audiophile
Hvaða bull verð er þetta? Þetta tæki er á 189þ í Elko og 55" á 239þ
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Sjonvo ... 005XXE.ecp
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Sjonvo ... 005XXE.ecp
Annars er tækið sem OP er að spyrja um mjög gott tæki fyrir peninginn og 48" er mjög vinsæl stærð í litlar til miðlungs stofur í dag þar sem setið er 2-3 metra frá.
Re: Sjónvarps pælingar
Sent: Mán 04. Jan 2016 09:59
af isr
itme skrifaði:Það eru svona sirka 2,6 metrar
Ég keypti þetta tæki fyrir jól og er mjög sáttur
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Sjonvo ... 005XXE.ecp
Ég er um tvo metra frá tæki þannig að ég þorði ekki að fá mér stærra,var bara með 32" og hélt að uppfærsla í 48" væri nóg,en sé það núna að 55" hefði verið betri kostur,jafnvel stærra.