Síða 1 af 1

Eh. með 3 Way SLI?

Sent: Þri 22. Des 2015 03:58
af Templar
Sælir

E-h með 3 Way SLI? Andskotið þröngt þegar maður er með 3 kort. Einhver sem veit hvar er hægt að fá 3 WAY SLI Bridge en greinilegt að menn hafa enga reynslu af þessu í búðum hérna.

Takk

Re: Eh. með 3 Way SLI?

Sent: Þri 22. Des 2015 06:58
af flottur
Ég pantaði mína SLI brú á ebay.com sá að það var líka hægt að panta 3way einnig.

Re: Eh. með 3 Way SLI?

Sent: Þri 22. Des 2015 09:26
af Klemmi
Það er almennt þannig að 3-way brýrnar fylgja með móðurborðunum :)

Annars kæmi mér mikið á óvart ef að Tölvutækni ætti ekki 3-way brú á einhverjum góðum stað. Efast enn fremur um að verslanir hér heima hafi enga reynslu af þessu, við hrúguðum út X58 setupum á sínum tíma sem studdu 3-way SLI, þó að fáir hafi farið út í það.

Re: Eh. með 3 Way SLI?

Sent: Þri 22. Des 2015 10:59
af Templar
Sæll Klemmi - Það er rétt hjá þér og rangt mér að segja að almennt sé ekki kunnátta í þessu, réttara væri að segja reynsluleysi enda fáir kaupendur. Stórt séð er hérna ótrúlega gott verð á búnaði og þjónustan framúrskarandi.

Það fannst 3WAY brú í verslun eins og þú sagðir.