Síða 1 af 1

Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 10:21
af C3PO
Sælir vaktarar

Hef verið að skoða að uppfæra tölvuna mína.
Nota tölvuna í blandaða vinnslu, í leik og starfi. Er að keyra Fallout 4, Farcry 4 og fleiri leiki og allt í topp gæðum.

Er sem sagt með eftirfarandi tölvu í dag.
móðurborð: ASUS P8P67-M
örgjörva: Intel Core i7-2600K 3.4GHz
Vinnsluminni: Mushkin 8GB kit (2x4GB) DDR3 1600MHz, CL9, PC3-12800, Blackline
Skjákort: Nvidia GTX 980Ti, 6Gb
HDD: 250 Gb Samsung EVO SSD.

Pælinginn er hvort að ég muni eitthvað finna fyrir því að uppfæra í Intel Core i7-6700, ásamt DDR4 minni og móðurborði.??
Myndi ég finna mun á getu tölvunar? Hún virkar mjög vel, ennþá með 2600K örgjafanum.
Spurning hvort að marr bíður lengur þar sem að þörfin er ekkert endilega mikil, þ.e.a.s. ég keyri allt hratt og vel á þessari.??

Eða hvað finnst ykkur??

Kv. D

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 11:43
af Hannesinn
Þú færð eitthvað betra performance, en hann verður aldrei í samræmi við kostnaðinn við að uppfæra. Myndi sjálfur sleppa því. Fín vél.

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 12:37
af C3PO
Hannesinn skrifaði:Þú færð eitthvað betra performance, en hann verður aldrei í samræmi við kostnaðinn við að uppfæra. Myndi sjálfur sleppa því. Fín vél.
Einmitt það sem að ég hef verið að hugsa. Of dýrt miðað við performance aukningu.

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 15:00
af kizi86
ert náttúrulega með 980TI, svo ertu með geggjaðan örgjörva til að overclocka, hefur þú eitthvað verið að skoða overclock? ættir léttilega að geta fengið amk 4.4GHz jafnvel alveg upp í 5.1GHz ef ert með gott batch af örgjörva og góða kælingu: https://www.youtube.com/watch?v=OazidwptwqQ

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 18:39
af kunglao
Þú sérð 33 % hækkun á 6700K á móti 2600K örgjafanum + ert að fá möguleika á NVME SSD og U.2

sjá þessa bls á http://www.pcper hjá Ryan Shrout en hann fer yfir kynslóðirnar Fra Sandy bridge sem þú ert á.

http://www.pcper.com/reviews/Processors ... e-Broadwel

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 21:25
af Lallistori
Gætir auðvitað uppært ssd diskinn og farið í pci-e ssd..
annars ertu alveg með rock solid vél.

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 22:00
af C3PO
Lallistori skrifaði:Gætir auðvitað uppært ssd diskinn og farið í pci-e ssd..
annars ertu alveg með rock solid vél.
Hefu hugsað um það :) Kosta svolítið en ættu að vera þess virði.

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 22:31
af kunglao
snýst þetta ekki líka um að vera ánægður og sáttur með það sem þú ert að nota og mér heyrist það vera raunin hjá þér í O.P ?

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 22:54
af C3PO
kunglao skrifaði:snýst þetta ekki líka um að vera ánægður og sáttur með það sem þú ert að nota og mér heyrist það vera raunin hjá þér í O.P ?
Jebbs er ánægður með mína vél. Bara svona að hugleiða og fá ráð hjá ykkur og reyna að fylgjast með.
Fer að verða frekar gamall í þessu og næ ekki alveg að fylgjast eins mikið með og í the old days :)

Re: Uppfærsla

Sent: Fös 18. Des 2015 23:20
af nidur
Er sjálfur að pæla í E3 xeon v5 og Supermicro með ddr4 Ecc minni uppfærslu.

Re: Uppfærsla

Sent: Lau 19. Des 2015 02:16
af Hnykill
Core i7-2600K er alveg topp örgjörvi enn í dag.. overclocka hann bara með góðri kælingu og þú ert góður næstu árin.