Síða 1 af 1
Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 20:10
af tomasandri
Sælir

Ég er semsagt ap spá hver hættan er að vera með eitt venjulegt fjöltengi tengt í vegg og annað rosaflott(u get me, lights and stuff) frá Tölvulistanum tengt í það og svo eru 2 skjáir, 2.1 hátalarar, borðtölva og USB hub tengdir í þetta flotta. Er einhver hætta með þessu?
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 21:20
af nidur
Ætti ekki að vera mikil hætta í þessu nema að tækin séu að taka yfir 3-3,5KW Það sem þú ert með er kannski að taka 1-1,5KW
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 22:08
af jonsig
Þú ert að nota undir kW , þessi fjöltengi eiga vera miðuð við 16A . En það er ekkert hægt að stíla á kínverska framleiðsu, soo.
Þú ættir að vera safe undir 1500W .
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 22:39
af Dúlli
jonsig skrifaði:Þú ert að nota undir kW , þessi fjöltengi eiga vera miðuð við 16A . En það er ekkert hægt að stíla á kínverska framleiðsu, soo.
Þú ættir að vera safe undir 1500W .
Þessi venjulegu fjöltengi eru aldrei 16A, þau eru lang oftat 3x0,75q og það er fyrir 10A max sleppur með 13A, myndi aldrei keyra 16A grein á svona fjöltengi.
Ég tel líka að þú þarft 5 tengla hví ekki bara vera með eitt fjöltengi ? af hverju hafa auka ?
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 22:50
af jonsig
þarna sýndiru vanþekkingu á ist200;2006
manvirkjastofnun á að sjá til þess að þannig fjöltengjum sé fargað , 2x0.75q og 3x0,75q . Einu fjöltengin sem maður sér án
varnarsnertu eru þannig útfærð að einungis IEC 60320 style kaplar eru að fara passa í .
Við tvö skilyrði máttu nota 0,75q . Taugin sé ekki lengri en 10m OG þjónar ekki tengli.
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 22:53
af Dúlli
Öll fjöldtengi sem eru framleidd eru 3x0,75q, hvar sagði ég að þetta væri yfir 10m ?
Þráðar höfundurinn er sjálfur að tala um að þetta sé basic fjöltengi, farðu í næstu raftækjaverslum og skoðaðu hvað er í þessum fjöltengjum, þetta er allt. 3x0,75q snúrur.
Innfeldar lagnir, það er að segja lagnir sem eru í inn í röri eða veggjum meiga ekki vera smærri heldur en 1,5q en það er ekkert sem bannar það með fjöltengi. Flest öll algengu fjöltenginn eru 1-5m
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 23:00
af jonsig
Rafmagnseftirlit á Íslandi er líka bara jók . Efast samt að þín túlkun haldi vatni , þó trúi ég þeirri kenningu þinni að þessar útfærslur eru útbreiddar á klakanum .Og sérstaklega í ljósi allra bruna sem tengjast bráðnuðum fjöltengjum.
uppá jókið , athugaði ég öll þrjú fjöltengin í stofunni hjá mér , á kaplinum stendur á þeim öllum 3x1,5q

þannig að ég lifi til næsta dags XD
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 23:09
af Dúlli
Það gæti vel verið að þú sért með fjöltengi sem hafa 3x1,5q það er líka slatti til af þeim en margir staðar selja samt sem áður mikið af fjöltengjum sem eru með 3x0,75q en ætla ekkert að fara þræta um það því hvorugur okkar veit hvað notandinn er með.
Meira að segja á mörgum fjöltengjum er ekki einu sinni tekið fram, en ef þú klippir í sundur sérðu að kápan er oft óvenjulega þykk og þá sést að þetta sé 0,75q.
En það skiptir engu máli þar sem hann er ekki með það mikið álag ef þetta er það sem hann mun notast við. Ef þetta er bara basic stuff, einföld leikja tölvu og ekki neinir ofur hátalarar er hann max að nota líklegast 1000w og það myndi ég halda sé hámark. En, en og aftur ætla ég ekki að þræta um þetta því hvorugur okkar veit nákvæmlega hvað hann er með.
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 23:21
af Galaxy
Er semsagt venjulegt fjöltengi í annað venjulegt fjöltengi eitthvað sem maður á að forðast?
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Sun 06. Des 2015 23:31
af arons4
Dúlli skrifaði:Öll fjöldtengi sem eru framleidd eru 3 x 0,75q
Mesta kjaftæði sem ég hef nokkurn tímann heyrt. Hef ekki séð fjöltengi sem er 3x0,75q og ekki eldgamalt lengi. Alltaf annaðhvort 3 x 1q eða 3 x 1,5q.
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 01:24
af jonsig
Galaxy skrifaði:Er semsagt venjulegt fjöltengi í annað venjulegt fjöltengi eitthvað sem maður á að forðast?
Þú getur haft 300 fjöltengi tengd saman eins lengi og heildar raunaflið(Wöttin) sem hvílir á þeim fari ekki yfir ákveðið hátt gildi, lítið mál fyrir þig að sjá það aftaná tækjunum sem þú stingur í samband .
Þú getur stundið einum 2000W hitablásara við fjöltengið og þá er það líklega maxxað út , eða stungið 20stk af 100W jólaseríum í nokkur fjöltengi og kemur útá það sama nokkurnvegin + spennufall við að bæta við fullt af fjöltengjum en þarft líklega ekki að pæla í því

Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 09:08
af arons4
Galaxy skrifaði:Er semsagt venjulegt fjöltengi í annað venjulegt fjöltengi eitthvað sem maður á að forðast?
Stendur yfirleitt á þeim hvað þau þola mikið afl(oft 2000-3500W). Heildaraflið á öllu sem er stungið í fjöltengið má ekki fara yfir það(Þá telurðu með allt sem stungið er í samband við bæði fjöltengin).
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 15:29
af Galaxy
700w aflgjafi+skjár+hátalarar+lampi er það eitthvað að fara yfir 2000w?
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 16:32
af jonsig
Fer eftir hvort þú sért með crap fjöltengi eða ekki .. ef þú ert með good shit fjt 3x2.5q þá er öryggið að fara slá út fyrst og þú lifir til að sjá annan dag

en ef þú ert með crap fjöltengi þá bráðnar það bara vonandi og kveikir ekki ì einhverju . Ef þú ert í vafa þuklaðu á kaplinum sem liggur að fjöltenginu og umlykju fjöltengisins ,eftir klukkustund jafnvel fyrr . Ef allt er stofuhiti og ekki 60°c þá er líklegast enginn að fara brenna lifandi inní húsinu .
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 16:41
af Dúlli
Besta sem ég veit með fjöltengi, er að fara í byku, kaupa kló, og 5 tengja fjöltengi og búa til sjálfur með 1,5q eða 2,5q. Þá getur maður ráðið lengd og ef síðar þarf að breita er ekkert mál.
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 16:47
af jonsig
Best að leikmenn séu ekki að reyna tengja neitt sjálfir . Slæmar tengingar eru ábyggilega ástæða 90% bruna í húsum .
Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 16:49
af nidur
Ég held að gæjinn sem spurði að þessu hafi gefist upp og hætt við þetta allt saman, orðið svo flókið

Re: Fjöltengi í fjöltengi
Sent: Mán 07. Des 2015 16:51
af Dúlli
jonsig skrifaði:Best að leikmenn séu ekki að reyna tengja neitt sjálfir . Slæmar tengingar eru ábyggilega ástæða 90% bruna í húsum .
Þess vegna sagði ég besta sem ég veit um.
nidur skrifaði:Ég held að gæjinn sem spurði að þessu hafi gefist upp og hætt við þetta allt saman, orðið svo flókið

Mjög líklegt hehehe
