Síða 1 af 1

Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 15:28
af Nats
Sælir, fékk þessa tölvu árið 2012 til að spila LoL og hún var mjög fín þá en er valla að fá yfir 100fps í counter strike í dag :svekktur
Væri mest til í að kaupa nýja tölvu en get það ekki atm þannig væri til í að uppfæra hana eitthvað smá..

Gigabyte AM3 GA-970A-DS3 móðurborð
2TB Sata3 seagate diskur
120gb ssd
Muskin 8gb ddr3 1600MHz 2x4gb ram
AM3+ bulldozer x8 fx-8120 örri keypti nýja viftu fyrir hann á þessu ári, Cooler Master Hyper 412S
Inter tech SL-500 500w aflgjafi 120mm vifta
GT 630 PCI-E2.0. 2gb skjákort
svo einhver basic ATX kassi

langar í intel örgjörva þannig þyrfti þá að kaupa nýtt móðurborð líka,
var þá að pæla í i5 4690 og Z97X gaming 5 og reyna þá að redda einhverju gömlu skjákorti.
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2741
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2730

Veit samt ekki mikið um þetta þannig væri fínt að fá einhverjar tillögur og hjálp :megasmile

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 16:22
af Lallistori
Bara það að uppfæra skjákortið myndi gera helling fyrir þig, náðu þér í GTX960 og þú nærð langt yfir 100fps í CS:GO

Uppfærðu svo örgjörva/móðurborð/minni seinna þegar þú getur.

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 18:52
af Nats
Lallistori skrifaði:Bara það að uppfæra skjákortið myndi gera helling fyrir þig, náðu þér í GTX960 og þú nærð langt yfir 100fps í CS:GO

Uppfærðu svo örgjörva/móðurborð/minni seinna þegar þú getur.
Já var búnað vera pæla í því en skildist að CS væri meiri cpu leikur frekar en Gpu

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Fös 20. Nóv 2015 22:47
af mind
Það er alveg rétt að CS:GO er CPU bound leikur, gefið að þú sért með sæmilegt leikjaskjákort, sem þú ert ekki með.

Það er því rétt hjá Lallistori, GTX960 myndi senda þig í 200+ ramma í bæði LoL og CS:GO auðveldlega með þessa tölvu.

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 00:55
af Nats
okok snilld takk fyrir þetta, er einhver tegund af gtx960 sem þið mælið með framyfir aðrar?
Leyst best á kortið frá gygabyte, lítið og nett.... er þetta ekki alveg solid?

https://tolvutek.is/vara/gigabyte-gtx-9 ... -2gb-gddr5

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 03:59
af Lallistori
Nats skrifaði:okok snilld takk fyrir þetta, er einhver tegund af gtx960 sem þið mælið með framyfir aðrar?
Leyst best á kortið frá gygabyte, lítið og nett.... er þetta ekki alveg solid?

https://tolvutek.is/vara/gigabyte-gtx-9 ... -2gb-gddr5
Ég myndi persónulega taka þetta en jú það sem þú minnist á myndi henta vel.

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 10:44
af mind
Tek undir með Lallistori aftur, plúsarnir við ITX kort nýtast þér lítið eða ekkert, betur settur með fullvaxið kort og kostina sem þau bera.

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Lau 21. Nóv 2015 20:40
af Nats
okei snilld, takk kærlega fyrir svörin ætli maður taki þá ekki msi kortið :megasmile

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 14:07
af Nats
mind skrifaði:Tek undir með Lallistori aftur, plúsarnir við ITX kort nýtast þér lítið eða ekkert, betur settur með fullvaxið kort og kostina sem þau bera.
Ein spurning enn.. aflgjafinn er greinilega bara með 4 pin en skjákortið þarf 1x6 pin.. Myndi ég lenda í einhverju veseni með það?

Re: Hjálp við uppfærslu á tölvu?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 14:39
af FreyrGauti
Nats skrifaði:
mind skrifaði:Tek undir með Lallistori aftur, plúsarnir við ITX kort nýtast þér lítið eða ekkert, betur settur með fullvaxið kort og kostina sem þau bera.
Ein spurning enn.. aflgjafinn er greinilega bara með 4 pin en skjákortið þarf 1x6 pin.. Myndi ég lenda í einhverju veseni með það?
Já, þessi 4pin er fyrir auka rafmang til örrgjörva, ekki fyrir skjákortið.