Síða 1 af 1
Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 18:29
af Framed
Það er kominn nýr samfélagsmiðill sem heitir tsū (borið fram sem "sue"). tsū stækkaði hraðar á fyrstu sex mánuðum fyrirtækisins heldur en bæði Facebook og Twitter.
Þá er það mergur málsins. Facebook er svo hrætt við tsū að þeir blokkuðu addressuna þeirra frá öllum þeirra miðlum með þeim rökum að tengillinn væri hættulegur. Ef maður reynir að pósta eða jafnvel bara senda í PM linkinn
tsu.co þá fær maður villuskilaboð þess efnis. Huffington Post fjallar um
þetta hér. Hvað finnst mönnum? Eru þetta eðlilegir viðskiptahættir?
tsū gengur út á hugmyndafræði sem er aðeins frábrugðin þeirri hefðbundnu sem m.a. Facebook notar. Þ.e. það er ekkert verið að fegra eða fela að þeir selja upplýsingar notenda. Munurinn er að þeir skila því til baka til notendanna. Af innkomunni fara 10% í rekstur tsū en 90% er skilað aftur til notenda. Notendur geta svo notað sinn hluta til að auglýsa sig, gefa til góðgerðamála eða jafnvel innleysa sinn hluta.
Edit: tók út shortcode vegna gagnrýni. Þá er hægt að ræða meginefni póstsins.
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 19:02
af worghal
er ekki svona afiliation dót bannað hérna
?
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 19:04
af Nariur
Eftir snöggskoðun hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta er líklega pyramid scheme.
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 19:06
af Framed
Tilgangur póstsins var að koma af stað umræðum um miðilinn annars vegar og framkomu Facebook hins vegar. Ef það að ég hafi látið shortcode-inn minn fylgja með til að fólk gæti skoðað um hvað ég var að tala þá er lítið mál að fjarlægja hann.
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 19:29
af Crush1234
Allt fyrirnefnt er ekki einusinni ástæðan fyrir því að ég er pirraður út í Facebook, ég er mest pirraður yfir hvað þeir eru latir að hafa appið og mobile síðuna up to date, það þarf algjöra endurhönnun og leyfa mér að sjá posta eftir alla sem ég fylgi og í rétta röð. Síðan popar lyklaborðið upp í hvert einasta skipti sem ég ætla að skoða komment. Algjörlega óásættanlegt frá billion dollara fyrirtæki.
Síðan er engin samstæða milli tækja
Android vs iOS
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 20:42
af hakkarin
Framed skrifaði:Það er kominn nýr samfélagsmiðill sem heitir tsū (borið fram sem "sue"). tsū stækkaði hraðar á fyrstu sex mánuðum fyrirtækisins heldur en bæði Facebook og Twitter.
Er það ekki bara að því að þeir eru nýir?
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 21:32
af Framed
Nariur skrifaði:Eftir snöggskoðun hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta er líklega pyramid scheme.
Það er vissulega pýramídi í þessu. Það er samt ekki aðalmálið í þessu að mér finnst heldur framkoma Facebook gagnvart þeim. Ég viðurkenni fljótfærni mína í að láta shortcode-inn minn fylgja með enda tók ég hann út.
Óháð pýramídanum þá virðist þetta alveg vera legit samfélagsmiðill. Það er enginn, eða í það minnsta mjög fáir, að fara að græða eitthvað á að vera þarna. Ég get ekki talað fyrir aðra en ég er mjög hrifinn af hugmyndinni um að fyrirtækið sem rekur miðilinn sé ekki eini aðilinn sem fær fjárhagslegan ávinning af notkun minni á þjónustunni.
hakkarin skrifaði:Framed skrifaði:Það er kominn nýr samfélagsmiðill sem heitir tsū (borið fram sem "sue"). tsū stækkaði hraðar á fyrstu sex mánuðum fyrirtækisins heldur en bæði Facebook og Twitter.
Er það ekki bara að því að þeir eru nýir?
Það spilar vafalaust inn í hraða stækkunarinnar. Ég tel samt líklegt að það spili líka mikið inn í þessi hugmyndfræði þeirra. Hvort sem fólk heldur að það verði ríkt á þessu eða bara það að það sé ekki bara rekstraraðilinn sem græðir á kerfinu.
Til þess að koma þræðinum aftur on topic þá endurtek ég: Finnst fólki það vera eðlilegir viðskiptahættir hjá Facebook að blokka samkeppnisaðila með öllu? Meira að segja í einkaskilaboðum.
Og hitt, hvað finnst ykkur um þetta viðskiptamódel að leyfa notendum að fá hlut í ágóðanum?
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 23:22
af intenz
If you can't beat them, join them.
If you can't join them, buy them.
If you can't buy them, block them.
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Lau 31. Okt 2015 23:36
af nidur
facebook skrifaði:The content you're trying to share includes a link that our security systems detected to be unsafe:
tsu.co
Please remove this link to continue.
Magnað stuff
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Sun 01. Nóv 2015 01:02
af beatmaster
Eftirfarandi er núverandi statusinn minn á FB:
Magnað! ég póstaði í dag link á Facebook keppinautinn tsu(punktur)co með því að skrifa það svona tsu(punktur)co/einartryggva því að Facebook bannar að það sé linkað á tsu síðuna (sem er það sem gerði mig forvitinnn um tsu til að byrja með)
Mér fannst það ekki nógu elegant þannig að ég notaði bit.ly sem er þjónusta til að stytta url og eyddi þá upphaflega póstinum og gerði nýjan þar sem að ég linkaði á tsu síðuna mína með því að birta bit.ly link
Það er búið að eyða þeim pósti, hann er horfinn!!! Stay classy Facebook.
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Sun 01. Nóv 2015 15:47
af intenz
Þótt tsu sé invite-only þá er þetta lélegasta invite system í heimi. Bara með því að vita tsu notandanafn einhvers kemstu inn í gegnum hann.
Þið sem eruð ekki á tsu, prófið bara að opna
http://www.tsu.co/foobar
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Þri 03. Nóv 2015 13:19
af GuðjónR
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Þri 03. Nóv 2015 14:54
af zedro
Hve mikið hver notandi fær borgað byggir á fjölda vina og hve marga hver notandi hefur fengið til að skrá sig á Tsu og koll af kolli.
Get on the bandwagon now people! Use my shortcode:
GiveMeAllTheMoney!
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Þri 03. Nóv 2015 18:13
af BugsyB
hey þið sem eruð komir á tsu - addið mér @kjarri79
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Fim 05. Nóv 2015 21:42
af Stuffz
stutt í ritskoðunar fasismann
Facebook á notendurna and they dont feel like sharing lol
Re: Facebook hræddir við keppinauta (tsū)
Sent: Fim 05. Nóv 2015 22:50
af chaplin
Affiliation/reference, fá borgða fyrir að bjóða fólki, sem reynir svo að bjóða fleira fólk os.frv.
Nei takk.