Ég er yfirlett ekki spenntur fyrir leikjum en þessi vekur svo sannarlega athygli mína.
Eins blanda af Spore og Elite Dangerous. Heimasíðan.
Re: No Man’s Sky
Sent: Fim 08. Okt 2015 20:33
af I-JohnMatrix-I
Ég er virkilega spenntur fyrir þessum og er búinn að vera það síðan ég sá hann kyntan á E3. Það eru spennandi tímar framundan fyrir okkur nördana.
Re: No Man’s Sky
Sent: Fim 08. Okt 2015 20:44
af g0tlife
Afhverju held ég að þetta verður spennandi fystu klukkutímana en svo smá svona alltaf að gera það sama kind of game ?
Re: No Man’s Sky
Sent: Fim 08. Okt 2015 21:32
af Klara
Er þetta leikur? Hvað gerir maður í þessu ?
Re: No Man’s Sky
Sent: Fim 08. Okt 2015 22:08
af GuðjónR
g0tlife skrifaði:Afhverju held ég að þetta verður spennandi fystu klukkutímana en svo smá svona alltaf að gera það sama kind of game ?
Það er reyndar hætt við því. Er reyndar með einn 6 ára sem virðist aldrei fá leið á Spore, þessi myndi henta honum mjög vel.
Klara skrifaði:Er þetta leikur? Hvað gerir maður í þessu ?
Nenntirðu ekki að horfa á youtube?
Re: No Man’s Sky
Sent: Fim 08. Okt 2015 22:30
af Klara
GuðjónR skrifaði:
Klara skrifaði:Er þetta leikur? Hvað gerir maður í þessu ?
Nenntirðu ekki að horfa á youtube?
Jú ég horfði. Spurningin stendur. Annað en að heimsækja plánetur og horfa á einhverjar risaeðlur, út á hvað gengur þessi leikur?
Hvað er það sem gerir þetta að leik en t.d. ekki gönguhermi?
Re: No Man’s Sky
Sent: Fim 08. Okt 2015 22:48
af GuðjónR
Klara skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Klara skrifaði:Er þetta leikur? Hvað gerir maður í þessu ?
Nenntirðu ekki að horfa á youtube?
Jú ég horfði. Spurningin stendur. Annað en að heimsækja plánetur og horfa á einhverjar risaeðlur, út á hvað gengur þessi leikur?
Hvað er það sem gerir þetta að leik en t.d. ekki gönguhermi?
Þeir segja sem minnst, það á örugglega eitthvað spennandi eftir að koma í ljós.
Annars er framleiðandinn þögull sem gröfin. Líklega til að byggja upp netta spennu og pælingar.
En það sem þegar sést er að þú getur fundi sólarsystem, í því plánetu og á henni allskonar dýr, sem sum hver vilja drepa þig.
Re: No Man’s Sky
Sent: Fös 09. Okt 2015 08:57
af jericho
Fyrst ein spurning, af hverju er þetta í "Leikir - til sölu / óskast / WoW umræður" spjallborðinu?
Annars er þessi leikur mjög jákvætt skref fyrir leikjaflóruna. Minnir mig örlítið á Stranded Deep. Hlakka til að prófa hann.
Re: No Man’s Sky
Sent: Fös 09. Okt 2015 10:09
af GuðjónR
jericho skrifaði:Fyrst ein spurning, af hverju er þetta í "Leikir - til sölu / óskast / WoW umræður" spjallborðinu?
Sm mistök, fixed.
Annars er þessi leikur mjög jákvætt skref fyrir leikjaflóruna. Minnir mig örlítið á Stranded Deep. Hlakka til að prófa hann.
Já það er slatti af leikjum núna sem kannsi minna á hann, en engin svona umfangsmikill.
Re: No Man’s Sky
Sent: Fös 09. Okt 2015 20:10
af Crush1234
Þú safnar auðlindum til þess að uppfæra skipið og búnaðin þinn, getur farið í geimbardaga og fleira...