Síða 1 af 1

Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 21:49
af GuðjónR
Markmið allra starfsmanna BSV er að þjónusta viðskiptavini okkar sem best og bjóða gæðavörur á verði sem erfitt er að keppa við.
Verð 5.750 með afslætti 3.450.-
https://www.hopkaup.is/newton-balls-pendulum

Sjáið svo hvað þetta kostar á aliexpress...
http://www.aliexpress.com/wholesale?sto ... =200000156
Heimkomið með flutnkingskostnaði innan við 500kr. ef það lendir í tolli þá fer það rétt yfir 1000 kr.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 21:54
af Hannesinn
Gjöf, en ekki gjald.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 22:08
af k0fuz
Góð regla að kíkka inná aliexpress áður en maður kaupir eitthvað :fly

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 22:39
af depill
bsv er reyndar eiginlega bara með drasl frá ali

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 22:46
af GuðjónR
depill skrifaði:bsv er reyndar eiginlega bara með drasl frá ali
Á vel uppsprengdu verði sem engin keppir við, nema þá aliexpress.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 22:49
af lukkuláki
Hérna er síða sem sérhæfir sig í að panta af ali og selja á Íslandi á OFURVERÐI
http://musthave.is/

Það var um daginn á hópkaup
Bluetooth búnaður í bílinn "Verð. 6.990 kr." Tilboð 3990 kr.!!!
Þetta kostar ekki 9 Dollara með sendingarkostnaði frá aliexpress sem er innan við 1200 kr.
Segjum að tollurinn setji á þetta skatt og hugsanlega eitthvað meira þá færi þetta aldrei yfir 2000 kr. stk.
musthave.jpg
musthave.jpg (86.94 KiB) Skoðað 3458 sinnum

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Sun 27. Sep 2015 23:22
af kizi86
en þar sem þetta er verslun á íslandi þá þurfa þeir að bjóða upp á tveggja ára ábyrgð á raftækjum svo það er aðeins skiljanlegra að það sé smurt smá á verðið, en með svona newton's cradle, þá er þetta algerlega óskiljanlegt okur

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Mán 28. Sep 2015 10:00
af GuðjónR
Sá svona hleðslutæki fyrir iphone4 á aha eða hópkaup á sínum tíma, kostaði þá á tilboði um 2500, fór á ali og fann sömu vöru á $1.94 (260 kr.) með sendingu frá kína, 10 dögum síðar datt hleðslutækið inn um lúguna hjá mér.
Ég er búinn að nota það daglega síðan, virkar 100%.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Mán 28. Sep 2015 11:18
af toaster
http://www.musthave.is/vara/veidiflugur ... ungsveidi/

Sama box á aliexpress á 15 dollara: http://www.aliexpress.com/item/New-80-p ... 5,201409_3

Ég hef prófað flugur frá Ali, lélega hnýttar og krókarnir veikir í lang flestum tilfellum. En þetta er rosalegur díll, úr 15þusund niður í 6þ. ](*,)

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fim 19. Nóv 2015 19:53
af zedro
Í alvöru talað.... vara sem kostar 500kr heim, 1000kr ef tollað.
Á tilboði á 1990kr frá 3390kr..... kommon ég skil að það þarf álag en að segjast lækka voruna finnst mér vera shady....
hopkaup.jpg
hopkaup.jpg (510.11 KiB) Skoðað 2783 sinnum

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 00:13
af vesley
Hvað ætli salan sé mikil hjá þessu fyrirtæki ekki í gegnum hópkaup ?

Grunar að það lifi á þessum hópkaupstilboðum og hafi jafnvel ekki selt eitt einasta stykki af tiltekinni vöru áður en það fer á tilboð. Kæmi mér allavega ekki á óvart.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 08:47
af Black
Ég pantaði einusinni 20stk Griffin Dual USB hleðslutæki fyrir bíl.Kostaði 1$ stk á ebay þannig það var tæpur 3.000kr komið inn um lúguna hjá mér.
Sama dag og ég fékk mín hleðslutæki þá fór vinnufélagi minn að ná í "dót" niðrí verslun aha og þá var það svona Griffin hleðslutæki nákvæmlega sama stikkið og ég var með meirasegja í sömu umbúðum.Hann borgaði 2999kr fyrir 1stk :guy Ég gat ekki annað en hlegið að honum

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 12:40
af Klemmi
Auðvitað er þetta shady, en það má heldur ekki gleyma að Hópkaup taka 30% af söluverðinu til sín, auk fulls verðs ef varan er keypt en ekki sótt.

Þannig að þessi fyrirtæki sem virðast nánast eingöngu reiða sig á sölu í gegnum Hópkaup þurfa að hafa verðið hærra sem því nemur :/

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 13:33
af rapport
Klemmi skrifaði:Auðvitað er þetta shady, en það má heldur ekki gleyma að Hópkaup taka 30% af söluverðinu til sín, auk fulls verðs ef varan er keypt en ekki sótt.

Þannig að þessi fyrirtæki sem virðast nánast eingöngu reiða sig á sölu í gegnum Hópkaup þurfa að hafa verðið hærra sem því nemur :/
WUT!!!

Góður business WTF

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 15:38
af vesley
Klemmi skrifaði:Auðvitað er þetta shady, en það má heldur ekki gleyma að Hópkaup taka 30% af söluverðinu til sín, auk fulls verðs ef varan er keypt en ekki sótt.

Þannig að þessi fyrirtæki sem virðast nánast eingöngu reiða sig á sölu í gegnum Hópkaup þurfa að hafa verðið hærra sem því nemur :/

Þannig fyrirtækið leggur auka álagningu á vöruna sem nemur 30% þóknun Hópkaupa. Topp viðskipti.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 16:01
af Klemmi
Þetta var auðvitað áður þannig að fyrirtæki voru jafn vel að borga með vörum sem þeir settu á Hópkaup, bara til að vekja athygli á sér og fá fólk á staðinn.

Það er hins vegar langt síðan að það var nokkuð merkilegt á Hópkaup, þetta er allt orðið einhverjar vörur af AliExpress eða þjónusta sem enginn kaupir sér nema hann sé einmitt að leita að henni á þeim tímapunkti.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 20. Nóv 2015 17:34
af svanur08
Ég keipti svona litla vigt sem vigtar í grömmum á ebay á 500kr, alveg námkvæmlega eins vigt á íslandi kostaði 9000kr!

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Lau 21. Nóv 2015 02:28
af einarhr
Um útsölur og tilboð er fjallað í 11. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Þar segir að óheimilt sé að auglýsa eða tilkynna útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, nema því aðeins að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þá er einnig kveðið á um það að verðmerkingin þurfi greinilega að sýna hvert upprunalegt verð vörunnar var.
http://www.neytendastofa.is/neytendur/utsala-og-tilbod/

Varan sem er í upphafspósti var/er auglýst á BSV.is en sennilega uppseld frá byrjun, svo er svínað á þessum lögum með þvi að auglýsa á afslætti.

PS. ég var að surfa BSV netverslun þar sem er auglýstur hringur sem stöðvar Hrotur en í nánari lýsingu er þetta !
Hringur á litlafingur sem verður þess valdandi að sá sem ber hann hrýtur ekki eða minnkar líkur þess umtalsvert, kínversk speki. Rannsóknir hafa sýnt að í 68% tilfella sem hringurinn er notaður hætta hrotur eða menna verulega. sjá umfjöllun hér: http://www.dailymail.co.uk/news/article ... ights.html
Já það er vitnað í Dailymail

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Mán 30. Nóv 2015 23:10
af Lexxinn
Mynd
Mynd

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Þri 01. Des 2015 11:13
af CendenZ
einarhr skrifaði:

:face neiiiii

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Þri 01. Des 2015 11:19
af dori
Mér finnst furðulegast að þeir skuli ekki allavega splæsa í sínar eigin myndir. En þetta er væntanlega keypt inn af aliexpress (eða álíka) eftir að pöntunin er komin og viðkomandi hefur aldrei séð vöruna áður þannig að það er ekkert til að taka mynd af.

Meh, þetta er bara svo rosalegt. Ef þeir gætu náð verðinu niður fyrir verðið sem þú borgar þegar þú borgar fullan sendingarkostnað og lætur tolla sjálfur. Þá væri þetta einhvers virði. Eins og þessir aðilar í dag starfa er þetta bara scam.

Re: Verð sem engin keppir við...

Sent: Fös 23. Ágú 2019 14:44
af Rabbar