Síða 1 af 1

Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 01:08
af Swanmark
Góðann dag, ég var að skipta um móðurborð hjá mér þar sem að mitt móðurborð var farið að haga sér skringilega, USB tæki að detta út og aftur inn og hætta svo að virka alveg. Svo ég keypti móðurborð af vaktinni (http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 94#p605794). Nú þegar ég starta vélinni fer allt í gang, en ekkert á skjáinn. Búinn að prufa 2 mismunandi skjákort og onboard. HDD teknir úr sambandi og minnin líka. Ekkert skeður. Fæ ljós á USB mic sem ég er með, en ekkert ljós á lyklaborðið (Corsair K70, nóg af ljósum á því). Get ekki hugsað mér annað en bilað móðurborð? Ég vona að ég hafi ekki keypt bilað móðurborð :/. Það eina sem ég hef ekki prufað er aflgjafinn, en hann virkaði 100% fyrir móðurborðsskipti. Corsair GS 700w.

Þetta mobo er ASrock z68 Pro3, z68 er sandy bridge chipset en á að virka með ivy bridge líka, veit ekki hvað það ætti að segja til um þetta annars. Með fyrirfram þökkum og vonandi ekki of mikið af stafsetningavillum þar sem að ég er að skrifa þetta á síma.
Edit: búinn að prufa 2 skjái.

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 01:13
af BugsyB
búinn að prufa að reseta biosinn

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 01:31
af pwr
unplugga alla harða diska nema stýrikerfisdiskinn ?

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 01:53
af Swanmark
BugsyB skrifaði:búinn að prufa að reseta biosinn
Nei, hvernig fer ég að því? og hvaða afleiðingar hefur það?
pwr skrifaði:unplugga alla harða diska nema stýrikerfisdiskinn ?
Tók alla diskana úr sambandi eins og ég sagði í fyrsta pósti. Ég ætti allavega að fá upp bios eða bara EITTHVAÐ á skjáinn ef þetta væri eitthvað af diskunum. :/

Þakka þessi svör :) ömurlegt að vera tölvulaus haha. :)

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 02:26
af DJOli

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 02:31
af Swanmark
DJOli skrifaði:http://www.wikihow.com/Reset-Your-BIOS

Leið 3 er skotheld.
Þakka þér fyrir, ég prufa þetta á morgun.

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 06:05
af Bioeight
Er búið að uppfæra BIOS-inn á móðurborðinu í útgáfu 2.1 ?

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 10:34
af Swanmark
Bioeight skrifaði:Er búið að uppfæra BIOS-inn á móðurborðinu í útgáfu 2.1 ?
Get ekki uppfært bios þar sem að ég fæ ekkert á skjáinn

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 10:54
af rapport
Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum, alltaf var það vegna þess að skjákortið vantaði rafmagn s.s. ég hafði gleymt að setja það í samband :popeyed

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 16:34
af Swanmark
rapport skrifaði:Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum, alltaf var það vegna þess að skjákortið vantaði rafmagn s.s. ég hafði gleymt að setja það í samband :popeyed
Bæði skjákortin voru alveg 100% í sambandi við prófun. Hef hinsvegar gleymt því og þá var ég bara beðinn um að stinga því í samband áður en að hún bootaði inn í wi dows.

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 16:45
af Swanmark
Það virkaði ekki að reseta bios. Ég fylgdi leið 3 á wikihow linknum hér að ofan. Hun reyndar startaði sér skringilega eftir það, eða ræsti í eina sek og restartaði sér, og fór svo í gang. Öll hjálp vel þegin. :)

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 18:22
af DJOli
prufaðu að taka minnin úr og setja hana í gang.

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 18:54
af Swanmark
Það eru engin minni í henni eins og er.

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Lau 05. Sep 2015 20:24
af BugsyB
verður að hafa minni í vélinni minnir mig til að geta startað henni

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Sun 06. Sep 2015 02:12
af Swanmark
BugsyB skrifaði:verður að hafa minni í vélinni minnir mig til að geta startað henni
upp í windows, já. BIOS, nei.

Vandamálið er að ég fæ ekkert display output, með minni eða ekki með minni. Prufaði bara að taka minnin úr til að útiloka þau sem valdurinn af þessu.

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Sun 06. Sep 2015 02:34
af Bioeight
Swanmark skrifaði:
Bioeight skrifaði:Er búið að uppfæra BIOS-inn á móðurborðinu í útgáfu 2.1 ?
Get ekki uppfært bios þar sem að ég fæ ekkert á skjáinn
Það er ekki support fyrir Ivy Bridge örgjörva nema í BIOS útgáfu 2.1, ef að BIOS-inn er ekki uppfærður í útgáfu 2.1 þá getur það alveg útskýrt af hverju þú ert ekki að sjá neitt. Þyrftir þá að fá Sandy Bridge örgjörva til að keyra upp BIOS-inn og uppfæra hann, ef móðurborðið virkar ekki með honum þá er eitthvað annað í gangi, en þetta er líklegasta útskýringin sem ég sé. Gætir fengið hann lánaðan einhverstaðar eða mögulega geta tölvuverslanir gert þetta fyrir þig.

http://www.asrock.com/mb/Intel/Z68%20Pro3/?cat=CPU

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Sun 06. Sep 2015 21:31
af Swanmark
Bioeight skrifaði:
Swanmark skrifaði:
Bioeight skrifaði:Er búið að uppfæra BIOS-inn á móðurborðinu í útgáfu 2.1 ?
Get ekki uppfært bios þar sem að ég fæ ekkert á skjáinn
Það er ekki support fyrir Ivy Bridge örgjörva nema í BIOS útgáfu 2.1, ef að BIOS-inn er ekki uppfærður í útgáfu 2.1 þá getur það alveg útskýrt af hverju þú ert ekki að sjá neitt. Þyrftir þá að fá Sandy Bridge örgjörva til að keyra upp BIOS-inn og uppfæra hann, ef móðurborðið virkar ekki með honum þá er eitthvað annað í gangi, en þetta er líklegasta útskýringin sem ég sé. Gætir fengið hann lánaðan einhverstaðar eða mögulega geta tölvuverslanir gert þetta fyrir þig.

http://www.asrock.com/mb/Intel/Z68%20Pro3/?cat=CPU
Þakka þetta svar, hvar væri ódýrast að lata gera þetta, hef ekki aðgang að sandy bridge neinstaðar.

Tölvulistanum?

Re: Fæ ekkert diaplay output

Sent: Sun 06. Sep 2015 22:05
af Bioeight
Það var einhver umræða um að verslunin Íhlutir gæti gert þetta, prófa að tala við þá, annars voru þetta mjög algengir örgjörvar svo það er líklegt að flest tölvuverkstæði geti gert þetta, hvað varðar verð þá veit ég ekki, ég vel oftast Kísildal þegar ég get vegna þjónustu.