Síða 1 af 1
Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 11:14
af akij
Daginn félagar,
Vonandi eru starfsmenn tölvuverslanna á landinu að skoða þetta því mig vantar að vita hvaða móðurborðaframleiðandi er að bila minnst í dag?
2006 keypti ég EVGA (Enn í topp standi). 2011 keypti ég ASUS (Enn í topp standi).
Á ég að halda mig við ASUS? Á þessum árum var Gigabyte að bila mikið en einhver var að ljúga því að mér að þeir væru að bila minnst í dag.
Endilega deilið með mér tölunum. Hvaða framleiðandi er að bila minnst hlutfallslega (í móðurborða-bransanum)?
Með fyrirfram þökkum.
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 11:29
af Frost
Ég er nokkuð viss um að þú ert að fá solid móðurborð í dag hvort sem þú kaupir Gigabyte, Asus, ASRock, EVGA eða MSI.
Ég er með ASRock móðurborð frá 2012, hefur ekki slegið feilpúst. Keypti ASUS móðurborð 2009 og er ennþá í gangi. Félagi minn er með Gigabyte móðurborð frá 2008.
Eins og með flesta tölvuhluti getur þú fengið gott eintak og slæmt eintak.
https://www.techpowerup.com/forums/thre ... fr.207128/ Þetta er RMA rate frá 2014 sem einhver frönsk síða gaf út (veit ekki alveg hvað það er hægt að treysta þessu en þetta sýnir að RMA rate hjá Gigabyte var lægst.
Að mínu mati myndi ég bara halda mig við ASUS ef þú vilt vera handviss um að fá gott móðurborð.
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 12:23
af DJOli
Ég hef átt góð msi móðurborð, og helling af þeim, frá 2004. gerði þau mistök að kaupa Asus móðurborð 2009 minnir mig, M2A-VM, og það var hræðilegt. það las örgjörvahraðann aldrei rétt og vegna þessa móðurborðs, gat tölvan á þeim tíma ekki spilað gta 4.
Ég uppfærði seinna í AsRock 770DE+ og það hefur ekki slegið stakt feilpúst og verður pottþétt notað aftur ef ég finn önnur not fyrir gömlu vélina mína.
Ég er þó hrifnastur af Msi.
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 13:15
af akij
Takk fyrir skjót svör, ánægður með þau og staðfesta það sem maður hélt.
Stundum eru menn heppnari með eintök en aðrir.

Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 19:18
af Hnykill
Gigabyte, MSI, ASUS ..þetta eru topp 3 móðurborðs framleiðendur í dag. þeir eru allir með úrval af borðum, enda í samkeppni við hvort annað. en það veltur mest á því hvað þú ert tilbúinn að borga fyrir, hvað þú færð.
Því dýrara sem móðurborðið er, því betri hlutir eru notaðir í það. nokkurn veginn svo einfalt. svo ef þú ert að bera saman móðurborð milli framleiðanda, berðu þau þá saman í verðflokki í leiðinni .
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 19:53
af Nördaklessa
ég keypti mína fyrstu PC 2004 ef ég man rétt og hún var með MSI. Ég er ennþá dag í dag msi maður því msi hefur ekki tekið eitt feilpús á mér.

MSi IMO
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 20:54
af GuðjónR
Þetta eru allt flottir framleiðendur með flottar vörur sem eru nefndir hér að ofan.
En af hverju minnist engin á "Rollsinn" ?
SuperMicro
Hefur engin reynslu af þeim?
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 21:32
af nidur
GuðjónR skrifaði:af hverju minnist engin á "Rollsinn" ?
SuperMicro
Var einmitt að lesa í gegnum þráðinn og ætlaði að skrifa nákvæmlega þetta.
Næsta uppfærsla sem ég fæ mér á mína vél verður supermicro með Ecc minni og Xeon. Er nú þegar með 2x supermicro borð.
Hef samt verið að velta fyrir mér Z170 borðunm sem þeir eru að bjóða upp á núna, reyndar ekki Ecc support á þeim.
Re: Hvaða móðurborða framleiðandi?
Sent: Mið 26. Ágú 2015 21:44
af hagur
GuðjónR skrifaði:Þetta eru allt flottir framleiðendur með flottar vörur sem eru nefndir hér að ofan.
En af hverju minnist engin á "Rollsinn" ?
SuperMicro
Hefur engin reynslu af þeim?
Í mínum huga er SuperMicro meira enterprise miðað, enda hafa þeir oft lagt áherslu á multi CPU support og ECC minni o.sv.frv. Eflaust frábær borð samt.
Annars hef ég sjálfur góða reynslu af Gigabyte, er með nokkur svoleiðis núna og aldrei neitt vesen. Í "denn" var ég mikið með Abit borð, þau voru líka rock solid. Líka MSI og Jetway .... fín líka. Man reyndar ekki til þess að hafa nokkurntíman lent í veseni með móðurborð
