Síða 1 af 1

Vinnur þú hjá Advania

Sent: Þri 04. Ágú 2015 00:09
af CendenZ
Sælir...

Var ekki einn meðlimur hér að vinna hjá EJS/Advania ?

Mig vantar(langar) svo að uppfæra lappann í aðeins nýrri útgáfu, Ég get gert það með að kaupa hana notaða í BNA og pabbi kemur með hana.
Ég á nefnilega docking station og langar að nota hann áfram ;)

En mér finnst eins og einn af meðlimum hérna er að vinna hjá Advania... þannig ég var að pæla hvort þeir ættu ekki eina notaða E6430 vél á lager.. væri ekki verra ef það fylgdi win 7 leyfi -> win10 \:D/ og maður fengi hana á góðu verði og auðvitað með reikning. Harður diskur er óþarfi, ég set nýjan SSD í.

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Þri 04. Ágú 2015 09:44
af AntiTrust
Var ekki lukkuláki að vinna þar?

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Þri 04. Ágú 2015 10:07
af rapport
Win7 volume license er ekki upgradeable í Win10... var það?

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Þri 04. Ágú 2015 10:48
af gRIMwORLD
volume license er ekki með "free" upgrade

Annars þá ættu engin fyrirtæki að láta frá sér vélar með þeim lykli þar sem það er brot á volume samningnum. Allar vélar eiga líka að vera með OEM lykil (límmiða - þar sem volume license er upgrade only) svo ef fyrirtæki eru að láta frá sér notaðar vélar þá eiga þær að vera með sitt eigið OEM win license

strauja -> afhenda

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Þri 04. Ágú 2015 11:46
af lukkuláki
Var þar en það eru rúmlega 4 ár síðan ég hætti.

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Þri 04. Ágú 2015 16:14
af hanxer
Ég skil ekki alveg hvað er verið að byðja um hérna en þú getur skoðað þetta og svo reynt að prútta við sölumennina.
https://www.advania.is/vefverslun/tolvu ... fartolvur/

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Mið 05. Ágú 2015 23:49
af CendenZ
hanxer skrifaði:Ég skil ekki alveg hvað er verið að byðja um hérna en þú getur skoðað þetta og svo reynt að prútta við sölumennina.
https://www.advania.is/vefverslun/tolvu ... fartolvur/

Ég þarf að kaupa tölvu og verð að fá reikning, að auki þarf tölvan að passa við dokkuna mína.
Það sem passar í dokkuna og er þess virði að uppfæra er Dell Latitude E6430.

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Fim 06. Ágú 2015 11:14
af svensven
Getur þú ekki líka farið í E7440, þær nota sömu dokku.

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Fim 06. Ágú 2015 16:58
af CendenZ
svensven skrifaði:Getur þú ekki líka farið í E7440, þær nota sömu dokku.
Hmmm jú, það sýnist mér... ég las greinilega eldgamlar upplýsingar :)
Ég get farið í
Latitude E6430s
Latitude E6440
Latitude E6500
Latitude E6510
Latitude E6520
Latitude E6530
Latitude E6540
Latitude E7240
Latitude E7250
Latitude E7440
Latitude E7450

En svo bara ætla ég ekki að eyða meira en kannski 80 þús í uppfærsluna O:)

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Fim 06. Ágú 2015 21:50
af lukkuláki
Sorry en sem fyrrverandi starfsmaður þarna þá finnst mér þetta mjög langsótt hjá þér.
Myndi allavega ekki reikna með að þetta gangi upp hjá Advania nema eitthvað mikið hafi breyst á þessum árum.

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Fim 06. Ágú 2015 22:00
af CendenZ
lukkuláki skrifaði:Sorry en sem fyrrverandi starfsmaður þarna þá finnst mér þetta mjög langsótt hjá þér.
Myndi allavega ekki reikna með að þetta gangi upp hjá Advania nema eitthvað mikið hafi breyst á þessum árum.

Já ætli ég kaupi þetta ekki bara af amazon eða af dell. Það kostar 500 dollara að fá E7240.
Hvað verður af öllum þessum latitude/enterprise vélum sem eru í rekstrarleigu hjá hinum og þessum fyrirtækjum ? endar þetta allt erlendis?

Re: Vinnur þú hjá Advania

Sent: Lau 08. Ágú 2015 12:43
af svensven
Við skiptum út rúmlega 200 vélum í fyrra. Lang stærsti hlutinn var seldur til okkar starfsfólks. Restin fór aftur til Advania, en það voru ekki margar vélar.
CendenZ skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Sorry en sem fyrrverandi starfsmaður þarna þá finnst mér þetta mjög langsótt hjá þér.
Myndi allavega ekki reikna með að þetta gangi upp hjá Advania nema eitthvað mikið hafi breyst á þessum árum.

Já ætli ég kaupi þetta ekki bara af amazon eða af dell. Það kostar 500 dollara að fá E7240.
Hvað verður af öllum þessum latitude/enterprise vélum sem eru í rekstrarleigu hjá hinum og þessum fyrirtækjum ? endar þetta allt erlendis?