Síða 1 af 1
Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 22:31
af svanur08
Tölvan hjá frænda mínum drepur alltaf á sér þegar hún reynir að fara í windows, hann er búinn að fá sér annan harðan disk svo það er ekki það, getur þetta verið aflgjafinn? Kom nebbla líka með nýja diskinn þegar ég reyndi að setja windows inná, drap bara á sér.
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 22:46
af Hrotti
er örgjörva viftan í lagi?
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 22:49
af svanur08
Hann sagðist hafa tekið hana af fyrir nokkrum mánuðum og hreinsað viftuna en ekki sett nýtt kælikrem, ætlaði að prufa það næst, gæti það verið málið?
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 23:00
af arons4
hljómar alveg eins og týpískt ofhitnunarvandamál, prufaðu að fara inná biosinn, ættir að geta séð hitann þar.
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 23:02
af svanur08
Tölvan var samt ísköld þegar ég kveikti á henni, er þetta svona fljótt að hitna?
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 23:16
af gutti
búinn að prófa minni að taka eitt úr ? skeði svipað að tölvann fór ræsa sig þá var minnið gallað
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 23:19
af Minuz1
svanur08 skrifaði:Tölvan var samt ísköld þegar ég kveikti á henni, er þetta svona fljótt að hitna?
já
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 23:19
af Hrotti
svanur08 skrifaði:Tölvan var samt ísköld þegar ég kveikti á henni, er þetta svona fljótt að hitna?
þetta getur hitnað á örfáum sek
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Mán 13. Júl 2015 23:23
af svanur08
Ok ég prufa þetta á morgun, set kælikrem á milli og passa að heatsink sé þétt við örrann, læt ykkur vita hvernig þetta fer, þakka svörin

Re: Tölva drepur á sér
Sent: Þri 14. Júl 2015 02:01
af DJOli
ekki setja of mikið krem, taktu kælinguna fyrst af, láttu kælisökkulinn þétta og dreifa kælikreminu á milli.
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Þri 14. Júl 2015 07:42
af svanur08
DJOli skrifaði:ekki setja of mikið krem, taktu kælinguna fyrst af, láttu kælisökkulinn þétta og dreifa kælikreminu á milli.
Er ekki best að setja bara dropa í miðju eða kannski línu?
Re: Tölva drepur á sér
Sent: Fim 16. Júl 2015 02:33
af svanur08
Þetta var greinilega örrinn að ofhitna, allt í fínu lagi núna.
