Síða 1 af 1
Vantar aðstoð í sambandi við diskastýringar
Sent: Lau 04. Des 2004 00:29
af Guffi
Jæja svo er mál með vexti að mig langaði í nýjann 200gb seagate átti wd 120 fyrir og einn 200gb seagate og virkuðu fínt.Ég keypti mér 200gb disk og disktýringu og sett þetta inn sjálfur eftir minni bestu getu.Ég prófaði að hafa diskin á cable select og Master hvorugt virkaði hvað á ég að gera?
Væri alveg frábært ef eitthver reindari gæti aðstoðað mig við þetta
Sent: Lau 04. Des 2004 01:14
af MezzUp
Finnur diskstýringin ekki diskinn eða? Verður helst að lýsa þessu aðeins betur
Sent: Lau 04. Des 2004 01:14
af gnarr
ertu búinn að installa driverum fyrir stýringuna?
Sent: Lau 04. Des 2004 01:19
af Guffi
Það er eins og stýringinn finni ekki diskinn. Gnarr gerir xp það ekki sjálft?
Sent: Lau 04. Des 2004 01:20
af gnarr
hugsanlega ekki. fylgdu engir diskar með henni?
Sent: Lau 04. Des 2004 01:22
af Guffi
Jú einn floppy. Nú jæja ég set þá upp driveranna. Var að reina komast frá því
. Víst rosaleiðbeiningar og sonna sem ég þarf að lesa fyrir þetta rugl
Engar fyrir Xp þó
Sent: Lau 04. Des 2004 01:45
af Guffi
Þetta er bara rugl það eru engar leiðbeiningar til að setja þetta á xp plús ég reindi að gera eins og 2000 maúelinn sagði en virkaði ekki
.
svo er síðan þeirra ekki að gera neitt gagn heldur framleiðendanum semsagt
Sent: Lau 04. Des 2004 21:21
af TechHead
Sæll Guffi. Vanalega þegar maður setur PCI diskstýringu í tölvu þá ræsir tölvan stýringuna upp í ræsingu, þ.e.a.s strax á eftir POST.
Gott er að fylgjast vel með eftir POST og athuga hvort þú sérð nafnið á diskstýringunni koma upp á skjáinn. Í flestum tilfellum býður stýringin manni þann möguleika að ýta á einhverja 2 lykla til að komast í stillingarnar á spjaldinu þegar það keyrir sig inn.
Mig grunar að þú gætir þurft að "setja diskinn upp" á stýringunni, sérstaklega ef þetta er raid stýring eins og promise og fastrak stýringarnar.
Svo þegar og ef þú ert búinn að setja diskinn upp þar þá hægrismelliru á myComputer í Windows, velur manage og ferð í disk management og localise´ar diskinn og formatar hann
Vona að þetta hjálpi