Síða 1 af 1
Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fim 11. Jún 2015 20:47
af Klara
Hæ hæ
Mig langaði að forvitnast hvort einhverjir af ykkur þekktu til hljóðnema sem henta vel í upptöku á tali fyrir t.d. podcast. Ég var búinn að prufa tölvubúðirnar en þar finn ég lítið annað en einfalda skype hljóðnema og þeir eru ekki alveg það sem ég er að leita eftir.
Mig langaði að komast hjá því að panta að utan en enda eflaust á því. Það sem ég hef verið að sjá eru hljóðnemar á bilinu 50-100 dollarar. T.d. frá Blue Microphones og Samson.
Veit einhver hvort einhver er að selja þessa hljóðnema hérna heima?
kveðjur
Klara
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fim 11. Jún 2015 22:37
af daremo
Það er sennilega best fyrir þig að athuga í hljóðfæraverslunum.
Allt sem tengist hljóði er svakalega lágt á forgangslista hjá tölvubúðunum.
http://www.hljodfaerahusid.is t.d.
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fim 11. Jún 2015 22:45
af moog
Mæli með að kíkja í helstu hljóðfæraverslanir og ath. úrvalið hjá þeim.
Rín (AKG hljóðnemar)
http://www.rin.is
Hljóðfærahúsið/Tónabúðin (Shure,Mxl og fleiri tegundir)
http://www.hljodfaerahusid.is
Tónastöðin (RØDE og SE Electronics hljóðnemar)
http://www.tonastodin.is
Einfaldast er að finna hljóðnema með usb tengi við tölvu, þá þarftu ekki neinn aukabúnað eins og hljóðkort.
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fös 12. Jún 2015 00:58
af Squinchy
Budget?
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fös 12. Jún 2015 01:18
af Klara
Ég var að vonast til að sleppa undir 10 þúsund en sýnist nú öllu að raunhæfara væri 10-15 þúsund.
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fös 12. Jún 2015 02:31
af DJOli
http://www.hljodfaerahusid.is/is/vorur/viewProduct/8063
Er sjálfur með MXL tempo usb mic. Suddalega æðislegt sound.
Keypti minn með stand og pop filter á sirka 27þús.
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fös 12. Jún 2015 08:20
af Squinchy
Ættir ekki að vera svikin af MXL Tempo, mjög flottur entry level hljóðnemi.
Gætir líka farið one up í MXL Studio 1 Red Dot
http://www.hljodfaerahusid.is/is/vorur/viewProduct/5048
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fös 12. Jún 2015 18:15
af frr
Þessi búnaður dugar vel í podcast og gott betur ef þetta er til ennþá.
http://www.hljodfaerahusid.is/is/vorur/viewProduct/2592
Mækinn kemur á óvart (líkist Shure SM58) og mixerinn er fínn, en einungis analog, en það fylgir einfalt digital interface.
Ef þú ert að pæla í studioupptöku á söng, þá er yfirleitt betra að vera með condenser eða ribbon mæk.
Heyrnartólin eru síst af þessu.
Re: Hljóðnemar fyrir upptöku.
Sent: Fös 12. Jún 2015 20:50
af Klara
Ég stökk bara á MXL Tempo. Verðið var líka eiginlega betra en að panta hann að utan.
Núna liggur bara fyrir að læra á þetta.
Lumar einhver á einföldum ráðum í uppsetningu á "hljóðverinu" (sjá gæsalappir
) Þá er ég meira að tala um afstöðu hljóðnema kannski og eins einhverja einfalda skermingu til að takmarka umhverfishljóð.
kv.
Klara