Síða 1 af 1

leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:04
af bu11d0g
Er einhver leið sem hægt er að nota framhjá gagnamælingu símans t.d. vpn eða slíkt ?

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:10
af steinarorri
Auðveldasta leiðin til að komast framhjá slíkum mælingum er sú að skipta við almennilegt netþjónustufyrirtæki sem ekki mælir gagnanotkun. Mæli með Hringiðunni. Einnig er ótakmargað gagnamagn hjá Hringdu.

Geri sterklega ráð fyrir því að það sé líka eina leiðin :)

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:17
af bu11d0g
Fjárhaldsmaðurinn minn breytti netáskriftinni minni .... Fór úr 3 tb í 600 gb ..... það á aldrei eftir að duga mér helvítis fokking fokk....

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:22
af steinarorri
Semsagt færður úr pakka sem kostar 14.850 niður í pakka sem kostar 8.850?
Hvernig væri þá að sýna fjárhaldsmanninum að þér sé alvara og fara í pakka hjá hringiðunni á 7 þúsund (með endalaust niðurhal) eða hringdu á 7.400kr

Frankly þá tel ég alla sem eyða 15 þúsund krónum í Internet hjá símanum eiga að vera með fjárhaldsmann.

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:23
af Oak
Enginn leið framhjá þessu þar sem þeir mæla allt inn og út á tengingunni...VPN hjálpar ekki með það nema að þú værir með frítt innanlands.

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:25
af bu11d0g
ég þarf samþykki hjá fjárhaldsmanninum til að skipta og það versta við þetta hjá símanum er að ef þú ferð yfir gagnamagn í þeirri áskrift sem þú ert í þá borgarðu 1990 kr fyrir hver störtuð 100 gb ....

Re: Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 17:56
af KermitTheFrog
steinarorri skrifaði:Semsagt færður úr pakka sem kostar 14.850 niður í pakka sem kostar 8.850?
Hvernig væri þá að sýna fjárhaldsmanninum að þér sé alvara og fara í pakka hjá hringiðunni á 7 þúsund (með endalaust niðurhal) eða hringdu á 7.400kr

Frankly þá tel ég alla sem eyða 15 þúsund krónum í Internet hjá símanum eiga að vera með fjárhaldsmann.
Þetta er væntanlega í gegnum eitthvað fyrirtæki. Þeir eru alveg 100% ekki að borga fullt verð fyrir þetta.

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 18:19
af AntiTrust
bu11d0g skrifaði:ég þarf samþykki hjá fjárhaldsmanninum til að skipta og það versta við þetta hjá símanum er að ef þú ferð yfir gagnamagn í þeirri áskrift sem þú ert í þá borgarðu 1990 kr fyrir hver störtuð 100 gb ....
Þessi umræddi fjárhaldsmaður hlýtur að skilja kostina við "meira fyrir minna" ?

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Þri 26. Maí 2015 18:53
af Hrotti
steinarorri skrifaði: Frankly þá tel ég alla sem eyða 15 þúsund krónum í Internet hjá símanum eiga að vera með fjárhaldsmann.


=D> =D> =D>

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Mið 27. Maí 2015 03:33
af bu11d0g
reyni að tala hana til annars verð ég verulega ósáttur ....

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Mið 27. Maí 2015 03:59
af Xovius
Fáránlegt að vera að borga formúgu fyrir gagnamagn þegar þú getur sleppt því.

Re: leið framhjá gagnamælingu

Sent: Mið 27. Maí 2015 11:18
af hagur
Ef "fjárhaldsmaðurinn" þinn vill endilega henda 15k á mán í þetta, láttu hann/hana svissa yfir til hringdu og smella svo 8þús króna mismuninum í eitthvað gott málefni :-)