Síða 1 af 1
Er þessi síða lögleg?
Sent: Lau 16. Maí 2015 09:51
af Elmar-sa
Gogglaði nafn og þessi kom upp
http://iceland-business.com/ Þarna kemur fram kennitala og heimilisfang, er þetta í lagi eða eru kennitölur bara ekkert merkilegar lengur og ekkert mál að finna þær.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Lau 16. Maí 2015 09:54
af nidur
Er þetta ekki bara afrit af því sem er að finna í fyrirtækjaskrá rsk.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Lau 16. Maí 2015 11:52
af urban
Kennitala hjá fyrirtækjum er ekkert leyndarmál (og ætti ekki að vera það hjá okkur mannfólkinu heldur)
Annsi mörg fyrirtæki eru einmitt með kennitöluna auglýsta á heimasíðum.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Lau 16. Maí 2015 15:52
af benediktkr
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Lau 16. Maí 2015 21:06
af hfwf
urban skrifaði:Kennitala hjá fyrirtækjum er ekkert leyndarmál (og ætti ekki að vera það hjá okkur mannfólkinu heldur)
Annsi mörg fyrirtæki eru einmitt með kennitöluna auglýsta á heimasíðum.
You kid right? auðvita er auðvelt að verða sér út um kennitölur íslendinga en þær eiga ekki að vera opnar eins og fyrirtæki, þetta er líklega það mest heimskasta sem ég hef séð skrifað hér um persónuvernd, og það er bara það fyrsta sem mér datt í hug við lesturinn.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Sun 17. Maí 2015 01:27
af arons4
hfwf skrifaði:urban skrifaði:Kennitala hjá fyrirtækjum er ekkert leyndarmál (og ætti ekki að vera það hjá okkur mannfólkinu heldur)
Annsi mörg fyrirtæki eru einmitt með kennitöluna auglýsta á heimasíðum.
You kid right? auðvita er auðvelt að verða sér út um kennitölur íslendinga en þær eiga ekki að vera opnar eins og fyrirtæki, þetta er líklega það mest heimskasta sem ég hef séð skrifað hér um persónuvernd, og það er bara það fyrsta sem mér datt í hug við lesturinn.
Hvað í ósköpunum hefur kennatala þín að gera með persónuvernd? Hún er til á skrá, og þjónar þeim tilgangi að gera greinarmun á milli einstaklinga(Á betri máta en nafnagjöf þar sem engir tveir bera sömu kennitöluna). Ef hún væri leyndarmál væri hún gagnslaus.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Sun 17. Maí 2015 01:38
af roadwarrior
Kennitölur fyrirtækja eru ekki það mikið leyndarmál að ef þu ferð inná ja.is og leitar eftir símanúmerið fyrirtækis þá koma upp kennitala og símanúmer upp í sömu niðurstöðu og ef þú ert með kennitölu fyrirtækis og slærð hana inn á ja.is þá færðu upp upplýsingar hvaða fyrirtæki kennitalan tilheyrir
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Sun 17. Maí 2015 19:16
af urban
hfwf skrifaði:urban skrifaði:Kennitala hjá fyrirtækjum er ekkert leyndarmál (og ætti ekki að vera það hjá okkur mannfólkinu heldur)
Annsi mörg fyrirtæki eru einmitt með kennitöluna auglýsta á heimasíðum.
You kid right? auðvita er auðvelt að verða sér út um kennitölur íslendinga en þær eiga ekki að vera opnar eins og fyrirtæki, þetta er líklega það mest heimskasta sem ég hef séð skrifað hér um persónuvernd, og það er bara það fyrsta sem mér datt í hug við lesturinn.
Ef að þú pantar eitthvað einhver staðar, þá gefuru upp kennitöluna þína...
Ef að hún væri leyndarmál þá myndiru væntanlega ekki gera það.
Ætli ég sé ekki búinn að gefa kennitöluna mína upp svona ca 100 sinnum bara á þessu ári, það í síma, samtali og á internetinu.
Þú gætir grafið mína kennitölu upp nokkuð auðveldlega með því að leita örlítið hérna á spjallinu og fara inná nokkrar síður.
Ég bara sé ekki hvernig hún á að vera eitthvað leyndarmál frekar en nafnið þitt.
Ég gef símanúmerið mitt síður upp en kennitöluna.
þar að auki þá geturu andskotann ekkert gert við kennitölu, þar sem að ef að þú gætir það á annað borð, þá væru þær ekki t.d. auðfinnanlegar í þjóðskrá.
Aldrei nokkurn tíman hef ég skilið þessa rosalega hræðslu við kennitölur á þessu landi.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Sun 17. Maí 2015 23:12
af nidur
Seinast þegar ég vissi þá er lítið mál að finna allar kt. inn á posturinn.is
Býrð bara til aðgang og leitar eftir nafni, heimilisfangi eða kt.
Re: Er þessi síða lögleg?
Sent: Mán 18. Maí 2015 17:47
af frr
Mun rugla saman umhverfinu í Bandaríkjunum við það sem er annars staðar.
Það, hvernig þetta er í Bandaríkjunum, á ekki við hér eða í flestum vestrænum ríkjum.
Sakir leti og græðgi banka og kortafyrirtækja þar, þá er fáránlega auðvelt að misnota social security number, sem er nokkurs konar kennitala þar.
Ef það væri vilji fyrir því að breyta því í Bandaríkjunum, þá myndi slíkum svikum stórfækka, við aðeins það eitt að það þurfi gild og áreiðanleg skilríki til að ná í t.d. nýtt kreditkort (og ýmsar aðrar þjónustur), og það væri bannað og á ábyrgð kortafyrirtækis/banka. að senda slíkt í almennum pósti, eða að krefjast ekki skilríkja.
Ef svo væri, yrði engin þörf á fara með social security number sem leyndarmál, ekkert frekar en kennitala er hér, nema upp á að ljóstra upp um aldur fólks.
Identity theft er mun auðveldari þar en víða annars staðar, en er nokkuð algengur í Bretlandi, en oftast vegna kæruleysis þjónustufyrirtæka, opinberra sem og í einkarekstri.
Það er ekkert grín í sumum löndum.