Síða 1 af 1

Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fim 02. Apr 2015 20:58
af jörundur85
Sælt veri fólkið.

Ég tók mig til fyrir nokkrum mánuðum og byrjaði á því að uppfæra skjákortið, aflgjafann og vinnsluminnið. Nú var ég að spá í nýtt móðurborð og örgjörva. Hvað mælið þið með fyrir 70-90 þús?? Hugsað sem leikjavél..

Vélin:
Turn: Cooler Master Elite 335U
Móðurborð: msi 870a-g54
Örgjörvi:AMD Phenom(tm) II X6 1055T , 2,8 GHz
Skjákort: ASUS GeForce® GTX 760 DirectCU II 2GB GDDR5
Vinnsluminni: 8GB Kingston HyperX Predator 2133MHz (2x4GB) CL11
Aflgjafi: 600w Corsair CX600 V2 aflgjafi
Microsoft Windows 7 Home Premium Edition 64-bit

Re: Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fim 02. Apr 2015 21:11
af Hannesinn
Ég myndi kaupa mér móðurborð og örgjörva og kassa. skjákort/minni/aflgjafi er fínt.

Corsair 450D, ca. 26 þús.
Asus Z97-K, ca. 22 þús.
Intel 4690K, ca. 37 þús.

Eða eitthvað gott Asus móðurborð (ca. 30 þús) og Intel 4790K (54 þús), endar í svipaðri tölu.

Re: Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fös 03. Apr 2015 10:07
af jörundur85
Hvernig er það, ef ég fer að skipta yfir í Intel í stað AMD, kemst ég þá nokkuð hjá því að kaupa nýtt windows? Á núþegar disk fyrir win 7 sem er settur upp á þessari tölvu, en síðast þegar ég vissi þá er það bundið við núverandi móðurborð??

Re: Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fös 03. Apr 2015 10:30
af flottur
hvernig windows ertu med?

Re: Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fös 03. Apr 2015 11:03
af jörundur85
Windows 7 Home prem

Re: Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fös 03. Apr 2015 11:11
af flottur
eg hef aldrei lent i vandrædum, eg for ur z97 modurbordi yfir i x99 var med sama harda disk og lenti ekki i vandrædum.

edit : ertu med kodan fyrir windows?

Re: Móðurborð og örgjörvi..?

Sent: Fös 03. Apr 2015 11:30
af jörundur85
Ég er með product key já.
Annars er ég búinn að vera að skoða þetta á youtube https://www.youtube.com/watch?v=JZn_hSlT0zk, þannig ég ætti alveg að geta pullað þetta