Síða 1 af 3

Breyting á reglum: Verðlöggur leyfðar, kurteysi skilyrði.

Sent: Sun 22. Feb 2015 13:42
af GuðjónR
Fallið hefur verið frá þeirri snilldarhugmynd að banna verðlöggur! :face
Verðlöggur eru leyfðar áfram en með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.

Frekari reglur verða útfærðar bráðlega en búast má við einhverju í líkingu við þetta:

"Dud, þetta verð er alltof hátt" = Engin rökstuðningur, Aðvörun
"GAUR ERTU HÁLFVITI ÞETTA VERÐ ER BARA STEIK" = Bann
"Mig langar vinsamlega að benda á að sama vara (eða sambærileg) fæst ný hér fyrir þetta verð: *Insert link*" = Samþykkt

Ég hef ákveðið að skipta aðeins um stefnu í garð „verðlögga“. Héðan í frá verður ekki leyfilegt fyrir þriðja aðila að skipta sér af verðlagningu seljanda nema seljandi óski sérstaklega eftir verðmati. Brot á þessari reglu mun varða brottvísun af spjallborði vaktin.is í sólarhring.

Með öðrum orðum, verðlöggur eru ekki leyfðar nema áliti þeirra sé sérstaklega óskað af seljanda.

Það er mín trú að samfélagið okkar verði betri staður fái fólk fær að stunda sín viðskipti í friði frá óumbeðnum álitsgjöfum, sem oftar en ekki snúa söluþráðum upp í neikvæða umræðu sem gagnast engum, hvorki seljanda né samfélaginu í heild sinni. Eftirspurn og framboð á að stjórna verði, en ekki persónulegt mat þriðja aðila.

Hinsvegar er mönnum auðvitað frjálst að senda persónuleg skilaboð til seljanda með vinsamlegri ábendingu um að verðið kunni e.t.v. að vera of hátt, og reyndar hvet ég til þess að verðlöggur geri það framvegis ef þeim finnst illa að væntanlegum kaupendum vegið. En munið að kurteisi kostar ekki neitt.

Með vonir um áframhaldandi gott samstarf fyrir hönd vaktin.is, GuðjónR.

http://spjall.vaktin.is/rules#sala9

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:03
af Sallarólegur
Mjög slæm þróun :thumbsd

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:05
af Tesy
Sallarólegur skrifaði:Mjög slæm þróun :thumbsd
2x
#Bland

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:09
af Einsinn
Sammála fyrri ræðumönnum, slæm þróun.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:10
af jericho
Af hverju má ekki bara kjósa um þetta og leyfa meirihlutanum að ráða?

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:15
af Nariur
Hræðileg þróun. Hvar er thumbs down takkinn þegar maður þarf hann?

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:17
af kizi86
nú finnst mér vaktin algerlega hafa tapað tilgangi sínum..

ástæða þess að ég hef verið að selja og kaupa vörur hér er akkúrat útaf verðlöggum, maður getur verið viss um að ef vara er verðsett of hátt að þá fær maður að vita það (stundum hefur maður ekki 100% vit á verðmati sumra vara), finnst þessar breytingar mikið til hins verra, þar sem maður verður BANNAÐUR fyrir að benda manneskju á að hún sé á villigötum í verðlagningu?? ef þetta á að vera það sem koma skal, þá veit ég ekki hvort ég vilji vera í þessu samfélagi, þar sem ritskoðun er í hámarki og reglum og hlutum er breytt eftir hentugleika. þori að veðja að ef hefðir sett upp könnun um hvort notendur þessa spjallborðs vilji verðlöggur eða ekki, að þá væri niðurstaðan verðlöggum í hag..

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:19
af Moldvarpan
Mjög furðuleg ákvörðun hjá þér Guðjón og finnst þetta slæm "þróun" fyrir vaktina.
Ef það er bannað að tjá sig um verðin, þá er þetta ekki verðvakt. Svo einfalt er það.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:24
af GuðjónR
Rólegir strákar, þetta er ekki meitlað í stein.
Ef það sýnir sig að þetta er röng ákvörðun þá skal ég verða fyrsti maðurinn til að viðurkenna það og breyta til baka.
Gefum þessu séns og sjáum hvað gerist.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:26
af MatroX
GuðjónR skrifaði:Rólegir strákar, þetta er ekki meitlað í stein.
Ef það sýnir sig að þetta er röng ákvörðun þá skal ég verða fyrsti maðurinn til að viðurkenna það og breyta til baka.
Gefum þessu séns og sjáum hvað gerist.
sorry að ég sé að skipta mér af en það er búið að prufa þetta og það heitir bland.is en það er bara mín skoðun þótt aðrir hafa kannski sína, allir eru titlaðir á að hafa eigin skoðun

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:28
af GuðjónR
MatroX skrifaði:

Ekkert að afsaka, allir hafa rétt á sínum skoðunum.
Ég gerði mér fulla grein fyrir því að það yrðu viðbrögð, poppaði meira að segja! :happy

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:29
af MatroX
GuðjónR skrifaði:

vonandi að þú hafir poppað nóg :megasmile

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:38
af 121310
Moldvarpan skrifaði:Mjög furðuleg ákvörðun hjá þér Guðjón og finnst þetta slæm "þróun" fyrir vaktina.
Ef það er bannað að tjá sig um verðin, þá er þetta ekki verðvakt. Svo einfalt er það.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:43
af Semboy
:crying

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:45
af nidur
Þetta er alveg magnað

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 16:02
af Tw1z
Mér finnst allt í lagi að leyfa verðlöggunum að tjá sig, það er samt óþarfi að æsa sig yfir þessu því það er alltaf hægt að breyta þessu aftur :P

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 16:15
af vesi
Ég sé ekki vandamálið við þessa breytingu. Ef kaupandi er óviss með verð á hlut sem hann er að kaupa gæti hann allveg stofnað nýjan þráð þar sem hann sjálfur óskar eftir verðmati á hlutinum.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 16:21
af rickyhien
en hvað með 70% af nývirði regluna? gildir hún þá ekki lengur, eru verðlöggurnar ekki í flestum tilfellum bara að benda á því ?

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 16:27
af Klemmi
rickyhien skrifaði:en hvað með 70% af nývirði regluna? gildir hún þá ekki lengur, eru verðlöggurnar ekki í flestum tilfellum bara að benda á því ?
Það er viðmið, ekki á nokkurn hátt regla :)

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 16:33
af hfwf
Slæm þróun, er stutt í að rukkað verði fyrir að setja inn auglýsingar?

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 16:50
af GuðjónR
hfwf skrifaði:Slæm þróun, er stutt í að rukkað verði fyrir að setja inn auglýsingar?
hehehehe nei það stendur ekkert til, þið eruð svo dramatískir :)

Sko málið er bara að þó verðlöggur séu ágætar upp að vissu marki þá geta þær farið yfir strikið eins og maroft hefur sést.
Nýlegt dæmi um verðlögguleik sem endaði bara í dísaster: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=64409
Fullt af fólki þorir ekki að setja inn auglýsingar einmitt af þessum orsökum.

Hitt er annað mál að það væri kannski hægt að leyfa verðlöggur áfram en þá með einhverjum fyrirvörum og skilyrðu.
T.d. banna dónaskap og leyfa ábendingar ef reynt er að selja gamlar tölvur sem ný leikjaskrímsli.
En ef hlutur sem kostar nýr 60k og einhver vill fá 50k þá er óþarfi að hella sér yfir viðkomandi og segja að 40k sé hámark (jafnvel þótt það sé rétt),
það er ekki okkar að ákveða hvað er hámark og hvað er lágmark þegar einstaklingar eru að selja dótið sitt. Höfum við áhuga þá getum við alltaf prúttað.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 17:17
af Gúrú
Mér finnst þetta rosalega fyndið. Það er mjög greinilegt að það séu svo til allir ósammála þér og að svo til enginn vilji þessa breytingu.
Þú segist samt ætla að verða fyrstur til að viðurkenna það ef þetta var röng ákvörðun.
Hver dæmir hvort þetta séu mistök ef ekki... allir?

Raunveruleikinn er sá að þú Guðjón, líkt og meirihluti notenda Vaktarinnar, hefur ekki hugmynd um verðlagningu á notuðum íhlutum.
Það er líka allt í lagi. Þú ert svo heppinn að vera á vettvangi þar sem mikið af fólki veit nákvæmlega hvað sé sanngjarnt verð.
Tja, eða varst það, því nú er enginn munur á honum og hverju öðru sölusvæði.

Það er mjög greinilegt að það sem lét þig taka þessa ákvörðun var innleggið mitt. Það skín í gegn.
Eftir það segirðu hluti eins og "banna dónaskap" "þá er óþarfi að hella sér yfir viðkomandi".
Það þykir mér ekki heiðarlegt þar sem ég var ekki með neinn dónaskap né heldur hellti ég mér yfir viðkomandi.

Þráðurinn sem þú vitnar í sem disaster inniheldur heldur ekki neinn dónaskap né hellti neinn sér yfir seljanda þar.
Þráðurinn innihélt mun fleiri innlegg en hann hefði ef seljandi sem og aðrir hefðu ekki ruglast á íhlutum og
m.a. sagt að turninn hefði annan aflgjafa en hann hafði. Er líka bannað að benda á slíka misskilninga?
GuðjónR skrifaði:það er ekki okkar að ákveða hvað er hámark og hvað er lágmark þegar einstaklingar eru að selja dótið sitt.
Það var okkar Guðjón. Það var nákvæmlega það sem gerði Vaktina að Vaktinni og það fyrsta sem maður
minntist á þegar maður benti einhverjum á Vaktina og það eina sem maður las um Vaktina þegar maður sá minnst á hana.

Þegar að þú gefur í skyn að t.d. ég og Sallarólegur vitum ekki nákvæmlega virði þessa íhluta þarna
og þar með þessa turns gerirðu það ómeðvitaður um að við höfum sameiginlega keypt og selt/samsett fleiri en fimm og fleiri en sex svona turna
í gegnum árin og það alltaf á 18-24 þúsund krónur (ATH: og það fyrir mörgum árum).

Ég hef takmarkaðan áhuga á því að vera á "Vaktinni" sem er ekki samræm sjálfri sér og
legg til að þú takir einnig út 6. gr. reglnanna svona fyrst þú ert byrjaður.

Þakka samfylgnina í gegnum árin og kem aftur ef Vaktin "kemur" aftur.

Mbk,

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 17:17
af Moldvarpan
GuðjónR skrifaði:
hfwf skrifaði:Slæm þróun, er stutt í að rukkað verði fyrir að setja inn auglýsingar?
hehehehe nei það stendur ekkert til, þið eruð svo dramatískir :)

Sko málið er bara að þó verðlöggur séu ágætar upp að vissu marki þá geta þær farið yfir strikið eins og maroft hefur sést.
Nýlegt dæmi um verðlögguleik sem endaði bara í dísaster: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=64409
Fullt af fólki þorir ekki að setja inn auglýsingar einmitt af þessum orsökum.
Það er tvennt í þessu. Þegar svona auglýsingar verða að "dísaster", það er líka einfaldlega að sama hvað seljandanum er bent á, þá er hann gall harður á sínum verðum. Þótt hægt sé að fá sambærilega hluti í ábyrgð á svipuðu verði, að þá er verið að horfa til einhverjar eldgamallar nótu en ekki nývirði á hlutum útúr búð. Þessi tölva myndi seljast hæglega ef hann myndi lækka sitt verð. Það er enginn sem að ég þekki að fara kaupa notaða tölvu á 250k.
Svo er það hin hliðin, auðvitað eiga menn að vera kurteisir, en það er soldið erfitt þegar menn eru þrjóskari en grjót.
Honum er velkomið að halda sínu verði til streytu, og þótt enginn verðlögga hafi sett út á neitt, þá væri þessi vél enn óseld. Það er ég viss um.

Ef verðlöggur fara yfir strikið þá eiga þeir að fá aðvörun, ekki spurning. En að að banna verðlöggur er útí hött.

Og ég trúi ekki að fólk þorir ekki að setja inn auglýsingar hérna, nema þeir séu að reyna hössla einhvern eða fá gull og græna skóga fyrir eitthvað sem er hvergi þess virði.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 17:27
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:Mér finnst þetta rosalega fyndið. Það er mjög greinilegt að það séu svo til allir ósammála þér og að svo til enginn vilji þessa breytingu
Það heyrist auðvitað hæst í þeim sem eru ósáttir það segir sig sjálft en að fullyrða að "allir" séu á móti þessu stenst ekki.
Gúrú skrifaði:Raunveruleikinn er sá að þú Guðjón, líkt og meirihluti notenda Vaktarinnar, hefur ekki hugmynd um verðlagningu á notuðum íhlutum.
Þarna ertu með stórt og órökstutt komment eins og svo oft áður.
Gúrú skrifaði:Þakka samfylgnina í gegnum árin og kem aftur ef Vaktin "kemur" aftur.
Hættu nú að hóta og stattu við það, ef það væri ekki fyrir hrokagikki eins og þig þá þyrftum við ekki að breyta reglunum.

Re: Ný söluregla: Verðlöggur ekki leyfðar nema þeirra sé óskað

Sent: Sun 22. Feb 2015 17:46
af beatmaster
Verðlöggur eru góðar en dónaskapur er ömurlegur, ef að Guðjón bakkar með þessa ákvörðun (sem er ekki mér að skapi, þetta gerði þetta að betri stað eins og þetta var með verðlöggum) er þá ekki ekki allavega hægt að sleppa því að hrauna kvikyndislega yfir þá sem eru að selja að fyrra bragði?