Síða 1 af 1

Vantar driver fyrir netkort.

Sent: Mið 28. Jan 2015 20:46
af ColdIce
Daginn.

Ég keypti þessa vél:
http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-v5- ... va-stalgra

Lenti í smá brasi með hana strax og ákvað að gera fresh install með W8.1

Málið er að Acer síðan er með 3 drivera fyrir wifi frá 3 mismunandi framleiðendum.
Ég er "nokkuð viss" um að ég hef prófað þetta allt.
Ég er með 100mb ljósleiðara og ég næ 92mb ca á speedtest, en 20-40mb á wifi.
Þessar tölur hafa alltaf verið mjög svipaðar hvort sem ég nota wifi eða cable.
Ég bara hlýt að hafa rangan driver?


Er einhver hér, sem veit 100% hvaða driver þetta er?

Myndi meta það mikils ef hægt væri að fá link á réttan gaur eða allavega réttan framleiðanda fyrir þessa vél.
Hlýtur einhver hér að eiga svona vél?

Kærar þakkir!