Síða 1 af 1
Power supply
Sent: Lau 20. Nóv 2004 20:09
af hahallur
Núna er komið að því að kaupa kassa og psu.
Það eru 2 pælingar í gangi.
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=511
og
http://www.task.is/?webID=1&p=93&sp=114&item=1212
Þetta er svona það sem ég hellst er að pæla í.
Ég er aðeins meira að hallast að silnet X en það kemur flest allt til greina.
Svo var það pæling hvort að 450w væri nóg eða er eitthvað vit í 500w +.
Sent: Sun 21. Nóv 2004 11:57
af Stebbi_Johannsson
Mér hefur heyrst á montpóstunum þínum hér að pabbi þinn skíti peningum þannig að ég myndi taka 520w OCZ Powerstream
Sent: Sun 21. Nóv 2004 12:33
af hahallur
OMG þetta var nú brandari
Það virðast margir á vaktinni taka vaktinni rosa alvarlega.
En við skulum nú hætta að tala um það.
Ég er ekki að fara að kauða psu fyrir meira en 13 þús nema það sé eitthvað mjög nauðsinlegt.
Mér hefur verið sagt að maður fái meira fyrir peningin á Silent X aflgjafanum þ.e. hann er fleiri W.
Svo er sagt að OCz sé hlaðin óþarfa aukabúnaði sem ég hef ekkert við að gera eða hvað ?
Sent: Sun 21. Nóv 2004 13:13
af gumol
hahallur skrifaði:Mér hefur verið sagt að maður fái meira fyrir peningin á Silent X aflgjafanum þ.e. hann er fleiri W.
Svo er sagt að OCz sé hlaðin óþarfa aukabúnaði sem ég hef ekkert við að gera eða hvað ?
Gæti vel verið að hvort tveggja sé satt en Silen X er uppseldur.
Sent: Sun 21. Nóv 2004 14:17
af Stebbi_Johannsson
OCZ aflgjafinn er í rauninni 620w, hann er 520w Peak Power s.s. hann fer ekki niður fyrir 520w í orkugjöf... Ég myndi allavegna frekar taka OCZ aflgjafann
HELD ÉG!!!

Sent: Sun 21. Nóv 2004 14:34
af MezzUp
Stebbi_Johannsson skrifaði:OCZ aflgjafinn er í rauninni 620w, hann er 520w Peak Power s.s. hann fer ekki niður fyrir 520w í orkugjöf...
Skil þig ekki alveg

OCZ 420W er 420 true vött(samkvæmt review'um) þ.e. getur keyrt endalaust á 420W.
,,Peak power" er það sem að aflgjafi getur gefið út í einhvern smá tíma(mínútu?). Sumar aflgjafar (t.d. þessir hræódýru generic 500W) gefa upp peak töluna sem aðaltölu
Sent: Sun 21. Nóv 2004 15:20
af Birkir
hahallur skrifaði:
Það virðast margir á vaktinni taka vaktinni rosa alvarlega.
En við skulum nú hætta að tala um það.
HA? Eigum við semsagt að taka öllu sem nettu gríni sem fer fram hérna? Semsagt þegar ég ætla að fá mér uppfærslu og bið um ráðleggingar, má ég þá búast við að allt sem verði sagt við mig verði sagt í gríni og enginn meini neitt?
Persónulega vill ég fá að taka Vaktina alvarlega og ég býst við að það vilji það fleiri.
Btw. Þetta getur varla verið grín hjá þér miðað við þráðinn "Jólauppfærslan" þar sem þú ætlar að heimta einhverjar vörur uppá 100k eða meira í jólagjöf...

Sent: Sun 21. Nóv 2004 16:20
af hahallur
Birkir skrifaði:hahallur skrifaði:
Það virðast margir á vaktinni taka vaktinni rosa alvarlega.
En við skulum nú hætta að tala um það.
HA? Eigum við semsagt að taka öllu sem nettu gríni sem fer fram hérna? Semsagt þegar ég ætla að fá mér uppfærslu og bið um ráðleggingar, má ég þá búast við að allt sem verði sagt við mig verði sagt í gríni og enginn meini neitt?
Persónulega vill ég fá að taka Vaktina alvarlega og ég býst við að það vilji það fleiri.
Btw. Þetta getur varla verið grín hjá þér miðað við þráðinn "Jólauppfærslan" þar sem þú ætlar að heimta einhverjar vörur uppá 100k eða meira í jólagjöf...

Það er nú ekki eins og ég fari að biðja um allt þetta frá foreldrum mínum.
Svo veist þú ekkert um hvernig stendur á hjá mér.
Hættu alltaf að vera með þetta déskotans bögg ég leiðrétti þig ekki í einu og öllu ef þú ruglast.
Ég hef ekkert verið að ljúga af fólki þó ég hafi sagt einhverja vitleysu hefur hún yfirleitt verið leiðrétt.
Svo virðist vera að þú hefur meiri áhuga á að setja útá fólk en að hjálpa því með tölvubúnað sem þetta spjall er um.
Ég hef lokið máli mínu
Sent: Sun 21. Nóv 2004 17:50
af Birkir
hahallur skrifaði:Það er nú ekki eins og ég fari að biðja um allt þetta frá foreldrum mínum.
Svo veist þú ekkert um hvernig stendur á hjá mér.
Hættu alltaf að vera með þetta déskotans bögg ég leiðrétti þig ekki í einu og öllu ef þú ruglast.
Ég hef ekkert verið að ljúga af fólki þó ég hafi sagt einhverja vitleysu hefur hún yfirleitt verið leiðrétt.
Svo virðist vera að þú hefur meiri áhuga á að setja útá fólk en að hjálpa því með tölvubúnað sem þetta spjall er um.
Ég hef lokið máli mínu
1. Fyrst þá viltu meina að ég sé alltaf með eitthvað "déskotans" bögg. Ef það að leiðrétta fólk er bögg þá skal ég viðurkenna að ég er búinn að vera mjög böggandi við þig. (Kannski hefur það einhvern tímann gengið of langt og biðst ég afsökunar á því núna.)
2. Ég sakaði þig
aldrei um að ljúga að fólki en þessar alhæfingar þínar hafa stundum gengið of langt!
3. Ég hef alls ekki meiri áhuga á að setja út á fólk en að fræðast/hjálpa með tölvubúnað en þú hinsvegar alhæfir meira en andskotinn um hluti sem þú veist oftast ekkert um og þá er bara nauðsynlegt að leiðrétta þig.
4. Ég er alveg sammála þér í því að ég veit ekkert um það hvernig stendur hjá þér og vill ég biðjast afsökunar á því hafi ég gefið eitthvað annað í skin.
Ég hef lokið máli mínu.
Sent: Sun 21. Nóv 2004 17:53
af MezzUp
Birkir skrifaði:þú hinsvegar alhæfir meira en andskotinn um hluti sem þú veist oftast ekkert um og þá er bara nauðsynlegt að leiðrétta þig.
Amen to that

Sent: Sun 21. Nóv 2004 18:04
af CraZy
MezzUp skrifaði:Birkir skrifaði:þú hinsvegar alhæfir meira en andskotinn um hluti sem þú veist oftast ekkert um og þá er bara nauðsynlegt að leiðrétta þig.
Amen to that

sammála

Sent: Sun 21. Nóv 2004 20:03
af hahallur
Jæja þetta er kannski rétt.
Ég legg núna niður "my duel pistol" og segi peace.
Ég skal reyna að muna að skrifa "held ég" fyrir aftan pósta í framtíðinni.
Ertu þá sáttur Birkir ég rétti allavega út hægri hendina.
Sent: Sun 21. Nóv 2004 21:31
af Stebbi_Johannsson
hahallur: Djö ertu búinn að vera aktívur samt 360 póstar+ á rúmlega einum mánuði... geri aðrir betur
p.s. Væri samt óskandi að þeir hefðu allir verið góðir/vandaðir

Sent: Sun 21. Nóv 2004 21:43
af axyne
Stebbi_Johannsson skrifaði:hahallur: Djö ertu búinn að vera aktívur samt 360 póstar+ á rúmlega einum mánuði... geri aðrir betur
p.s. Væri samt óskandi að þeir hefðu allir verið góðir/vandaðir

gæði yfir magn segi ég nú.

Sent: Sun 21. Nóv 2004 22:10
af MezzUp
axyne skrifaði:gæði yfir magn segi ég nú.

ójá, þótt að 9,16 bréf á dag séu nú nokkuð mikið
Sent: Mán 22. Nóv 2004 00:11
af Birkir
hahallur skrifaði:Ertu þá sáttur Birkir ég rétti allavega út hægri hendina.
Það er víst ekki hægt að segja neitt nema: Friður..

Sent: Mán 22. Nóv 2004 07:39
af Sveinn
Ég myndi taka SilenX, 420W er alveg nóg ooog hann er ótrúlega hljóðlátur, og allt frá SilenX er líka hljóðlátt.
En hvað veit ég.
Sent: Mán 22. Nóv 2004 11:44
af hahallur
Stebbi_Johannsson skrifaði:hahallur: Djö ertu búinn að vera aktívur samt 360 póstar+ á rúmlega einum mánuði... geri aðrir betur
p.s. Væri samt óskandi að þeir hefðu allir verið góðir/vandaðir

Hehe ég held að ég sé nú ekki svo slæmur.
Fýla allavega vaktina.
Ég er ekkert að reyna að ljúga að fólki þó ég held ég hafi ruglað meira í koníak stofunni en í hardware spurningum
