Síða 1 af 1

Gainward GeForceFX 6800GT 256MB + ABIT VT7

Sent: Lau 20. Nóv 2004 19:44
af noizer
Jæja er að spá í að fá mér nýtt skjákort og er að spá í Gainward GeForceFX 6800GT 256MB
Nú langar mig að vita hvort þetta skjákort virki með ABIT VT7 móðurborðinu mínu? Því það var einn sem sagði mér að þetta myndi sennilega ekki ganga með því :?

Sent: Lau 20. Nóv 2004 21:20
af noizer
ehhhhh einhver

Sent: Lau 20. Nóv 2004 21:41
af Birkir
Ég get ekki séð af hverju þetta kort ætti ekki að passa þar sem móðurborðið er með AGP rauf og það ætti að vera allt sem til þarf :)

Sent: Lau 20. Nóv 2004 22:41
af Grobbi
ég myndi nú bara kaupa nýja tölvu fyrir þennan pening :D hehe

Sent: Lau 20. Nóv 2004 22:47
af fallen
Passar.

Sent: Lau 20. Nóv 2004 23:11
af noizer
Grobbi skrifaði:ég myndi nú bara kaupa nýja tölvu fyrir þennan pening :D hehe
ehhhhhhhhhh veit ekki hvort ég myndi fara að gera það, 53.585 kall :lol:

Sent: Sun 21. Nóv 2004 11:41
af Stebbi_Johannsson
Skjákortið yrði alveg örugglega ekki overkill... en hvernig tölvu ertu annars nákvæmlega með.. segir t.d. ekki mikið að þú sért með Geforce FX kort :lol:

Sent: Sun 21. Nóv 2004 13:09
af noizer
Örgjörfi: Intel P4 Prescott 2.8 GHz
Skjákort: nVidia GeForceFX 5200 - 128 mb
Aflgjafi: ehh einhvernveginn, held 300 og eitthvað W annars stendur ekki á honum hve mörg W hann er :wink:
HD: 160 gb WD
Móðurborð: ABIT VT7
Hljóðkort: Innbyggt á móðurborðið
Vinnsluminni: 2x256 mb

Sent: Fös 26. Nóv 2004 01:14
af Haffi
þarft lágmark 350w psu fyrir nx kortin :)

Sent: Fös 26. Nóv 2004 01:26
af gumol
Sæll.

Undirskriftin má bara að vera ein lína samkv. reglunum. Vinsamlegast minkaðu hana. :)

Sent: Fös 26. Nóv 2004 02:18
af Haffi
:oops: :oops: :oops: :oops:

Sent: Fös 26. Nóv 2004 10:55
af einarsig
ég er að spá..... þar sem ég er með 350w PSU og 2 hdd 3 viftur skrifara og dvd drif + 1 minniskubb og 6800 GT kort ... ekki keyrir kortið e-ð hægar af því að ég sé kannski ekki með nægilegt power í þetta ??
Ég er ekki að lenda í því að fá restart og allt virkar þannig séð... hefði haldið að ef kortið myndi vanta power myndi vélin annað hvort restarta sér annars lagið :?:

Sent: Fös 26. Nóv 2004 11:47
af nomaad
einar: jú það passar, ef kortið fær ekki nóg power þá lætur vélin mjög undarlega. Það fer ekki að keyra hægar, þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því. Ef þú færð einhverntímann nýjan leik sem er rosalega óstöðugur (og enginn annar er það) þá ættirðu að hafa það í huga að PSU'ið sé ekki að pumpa nóg til kortsins.

Sent: Lau 27. Nóv 2004 21:21
af Haffi
kortið fer að væla ef það fær ekki nóg rafmagn... gerði það allavega hjá mér