Síða 1 af 1
Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort.
Sent: Lau 27. Des 2014 16:01
af flottur
Sælir
Mér finnst ég verða mikið var við að fólk sé að selja AMD R9 2XX skjákortin sín og ég er orðin forvitin afhverju það sé?
Eru þau ekki að standa sig í því sem fólk er að gera eða ?
Getur einhver útskýrt þetta fyrir mér?
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 16:04
af GullMoli
Fólk keypti þau í tonnatali fyrir Cryptocoin mining, kort sem hafa þar af leiðandi verið í 100% álagi 24/7 síðustu mánuði.
Þetta sama fólk gefst svo upp á þessu eða ákveður að hætta af öðrum ástæðum og þarf því að losa sig við kortin.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 16:18
af flottur
GullMoli skrifaði:Fólk keypti þau í tonnatali fyrir Cryptocoin mining, kort sem hafa þar af leiðandi verið í 100% álagi 24/7 síðustu mánuði.
Þetta sama fólk gefst svo upp á þessu eða ákveður að hætta af öðrum ástæðum og þarf því að losa sig við kortin.
Já meinar, ég hef ekki kynt mér þetta mining dæmi þannig að ég hef ekkert vit á þessu, ég gúgglaði nefninlega AMD R9 2XX kortin og sé að þau eru að koma vel út leikjalega séð.
Sérstaklega 280x og 290. Er svona sjálfur að velta því fyrir mér hvort ég eigi að kaupa þetta í krakkatölvuna svo að það krakkarnir geti hangið í Sims og þessu drasli.
Er með að mig minnir AMD Radeon 5700 kort sem virðist vera skíta á sig við einhverja alminnilega notkun.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 16:55
af CendenZ
Þau eru svo að "detta" af markaðinum, það er alltaf endurnýjun

Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 17:42
af kiddi
Eru þetta ekki frábær kort fyrir peninginn? Vegna offramboðs á kortunum er verðið að nálgast 50% af nývirði, og þetta eru dúndurfín kort. Eru þau eitthvað verri ef þau hafa verið undir álagi að því gefnu að þau hafa verið sæmilega kæld? Hefur einhver lent í því að vera með "slitinn" vélbúnað? Ég hefði ekkert á móti því að eiga tvenn svona kort og tengja saman, en ég væri minna spenntur að vera seljandi af svona kortum nú þegar svo mörg kort eru til sölu

Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 17:47
af flottur
kiddi skrifaði:Eru þetta ekki frábær kort fyrir peninginn? Vegna offramboðs á kortunum er verðið að nálgast 50% af nývirði, og þetta eru dúndurfín kort. Eru þau eitthvað verri ef þau hafa verið undir álagi að því gefnu að þau hafa verið sæmilega kæld? Hefur einhver lent í því að vera með "slitinn" vélbúnað? Ég hefði ekkert á móti því að eiga tvenn svona kort og tengja saman, en ég væri minna spenntur að vera seljandi af svona kortum nú þegar svo mörg kort eru til sölu

Það sem kiddi sagði, ég er reyndar ekki að fara standa I crossfire geðveiki enda er þetta bara krakkatalvan.
Ætli maður skelli ekki sér á eitt svona stykki.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 18:02
af GullMoli
kiddi skrifaði:Eru þetta ekki frábær kort fyrir peninginn? Vegna offramboðs á kortunum er verðið að nálgast 50% af nývirði, og þetta eru dúndurfín kort. Eru þau eitthvað verri ef þau hafa verið undir álagi að því gefnu að þau hafa verið sæmilega kæld? Hefur einhver lent í því að vera með "slitinn" vélbúnað? Ég hefði ekkert á móti því að eiga tvenn svona kort og tengja saman, en ég væri minna spenntur að vera seljandi af svona kortum nú þegar svo mörg kort eru til sölu

Í sjálfu sér ekki, eina sem ég hefði áhyggjur af væru vifturnar. Þær geta orðið slappar, legurnar t.d.
Annars mjög góð kort, fyrir utan hitamyndun og hávaða undir álagi (segi ég með GTX480..).
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 18:04
af Xovius
Þetta er sennilega líka bara útaf nýju skjákortalínunum sem komu út. Af því sem ég hef heyrt eru þetta bara fín kort. Annars á ég 7970 hérna í skúffunni hjá mér sem er eiginlega sama kort sem ég er til í að selja á lítið og það hefur ekki verið undir svona álagi.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 18:33
af braudrist
Eigum við ekki bara að segja að nVIDIA er að rústa skjákortamarkaðnum eins og er

/fanboyism
Nei, nei, AMD eru mjög flottir og öll samkeppni er af hinu góða.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Lau 27. Des 2014 20:38
af flottur
GullMoli skrifaði:kiddi skrifaði:Eru þetta ekki frábær kort fyrir peninginn? Vegna offramboðs á kortunum er verðið að nálgast 50% af nývirði, og þetta eru dúndurfín kort. Eru þau eitthvað verri ef þau hafa verið undir álagi að því gefnu að þau hafa verið sæmilega kæld? Hefur einhver lent í því að vera með "slitinn" vélbúnað? Ég hefði ekkert á móti því að eiga tvenn svona kort og tengja saman, en ég væri minna spenntur að vera seljandi af svona kortum nú þegar svo mörg kort eru til sölu

Í sjálfu sér ekki, eina sem ég hefði áhyggjur af væru vifturnar. Þær geta orðið slappar, legurnar t.d.
Annars mjög góð kort, fyrir utan hitamyndun og hávaða undir álagi (segi ég með GTX480..).
Enn fyndið ég á einmitt eitt svoleiðis í skúffuni hérna heima nema það er silent týpan þannig að ég myndi ekki stóla á það í leiki.
Xovius skrifaði:Þetta er sennilega líka bara útaf nýju skjákortalínunum sem komu út. Af því sem ég hef heyrt eru þetta bara fín kort. Annars á ég 7970 hérna í skúffunni hjá mér sem er eiginlega sama kort sem ég er til í að selja á lítið og það hefur ekki verið undir svona álagi.
Það er víst það sem er sagt að þetta sé ný lína en sami gamli búnaðurinn með smá update-um.
En annars fæ ég að hafa þig í huga ef þetta verður til eftir áramót.......það fór of mikill peningur i jólin.
braudrist skrifaði:Eigum við ekki bara að segja að nVIDIA er að rústa skjákortamarkaðnum eins og er

/fanboyism
Nei, nei, AMD eru mjög flottir og öll samkeppni er af hinu góða.
Hef reyndar alltaf verið mikið gefinn fyrir Nvidia en þegar að maður var yngri og minna á milli handana þá fór maður frekar í AMD kortin, núna er maður eldri og hefur ekki alveg jafn mikinn tíma til að leika sér þannig að maður hefur bara verið að kaupa notaða turna á bland.is með AMD kortum og látið það nægja fyrir börnin.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Sun 28. Des 2014 12:32
af Oak
Ég er með eitt 280x í vélinni minni og hugsa að það sé svona á 60-70% mining en þegar að ég ætla að leika mér eitthvað í leikjum þá er ég ekki einu sinni að slökkva á mining en kortið er samt að gefa mér fín afköst í leiknum.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Sun 28. Des 2014 12:41
af Hargo
Eru menn almennt að mine-a ennþá? Ef svo er, hvað þá? Litecoin? Dogecoin?
Var með 2x 270 kort í gangi í mining en nenni því ekki lengur, var ekkert að hafa upp úr þessu annað en stærri rafmagnsreikning.
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Sun 28. Des 2014 12:58
af jojoharalds
280x eru stórglæisleg kort ( ef vatnskælt

)
Re: Hef orðið var við mikið af sölum á AMD R9 280x skjákort
Sent: Sun 28. Des 2014 13:01
af Oak
Er alltaf með vélina í gangi og leyfi þessu svona að malla bara, líklega er ég að eyða meira í rafmagn en ég græði á þessu. En annars er ég bara með þetta á MultiPool sem mine-ar þá bara það sem er svona mesti gróði þá stundina.