Síða 1 af 1

"Nova sjonvarpid" einhver keypt svona?

Sent: Sun 21. Des 2014 17:32
af handsaumur
Nova er að selja virðist þrusuflott tæki á þrusudíl, 50" 3D Samsung á (edit: 196k). Hefur einhver reynslu af þessu tæki eða heyrt frá eigendum?

Mynd

Þetta er SAUE50H6475SUXXE, hér er Vaktara spjall um það, ég er búinn að senda nonesenze PM og benda honum á þennann þráð.

Samsungsetrið er að selja 6475, 48" á 190k.

Re: Nova að selja sjónvarp - reynsla?

Sent: Sun 21. Des 2014 17:44
af Sallarólegur
handsaumur skrifaði:
BTW -- Fólk er að segja að maður eigi að bíða þangað til eftir áramot með að kaupa TV því að þau muni öll lækka útaf þessu vörugjaldsdæmi?!
Flott verð.
Ætli afhendingartími sé ekki 2 vikur og þau verða þá flutt inn eftir áramót? \:D/

Re: Nova að selja sjónvarp - reynsla?

Sent: Sun 21. Des 2014 18:08
af tanketom
mín reynsla hjá NOVA :thumbsd ef einhver galli sé þá þarftu bókstaflega að laga það sjálfur, kaupi aldrei raftæki frá NOVA aftur, fékk gallaðan síma hjá þeim en fékk hann alltaf til baka frá þeim og þeir sögðu að allt væri í góðu lagi.. Það var ekki fyrr en ég var kominn með símann til þeirra í 5 skipti sem þeir loks gáfu undan.

Re: Nova að selja sjónvarp - reynsla?

Sent: Mán 22. Des 2014 03:19
af suxxass
Ég svosem hef ekki reynslu af gallaðri vöru frá þeim. En ég hef bara fengið topp þjónustu frá þeim þau 5 ár sem ég hef verið í viðskiptum við þá. Þjónustu sem ekki þekkist hér á landi.


Vegna vinnu minnar nota ég farsímann minn gífurlega mikið. Á tímabili var ég 3-4 mánuði í röð búinn að fara með símreikninginn minn upp yfir 15.000 kallinn. Persónulega skipti það mig litlu máli þar sem að ég rukkaði vinnuna.

En viti menn. Ég fékk símtal frá Nova upp úr þurru. "Hey, þú ert að borga alltof mikið. Hér er áskriftardíll, 6900 á mánuði og þú borgar bara ef þú notar meira gagnamagn eða hringir í já eða erlendis".

Endaði á því að borga ca 8000 með auka GB í símann. Töluvert minna en áður.

Nova fær allt mitt props eftir þetta. (Mögulega ætlunin, en samt, vel gert!).

Re: Nova að selja sjónvarp - reynsla?

Sent: Mán 22. Des 2014 05:01
af Gúrú
Ég kann enga skýringu á því af hverju allar niðurstöðurnar eru frá Norðurlöndunum en hér er Google leit að þessu sjónvarpi eftir módel númerinu.

UE50H6475SUXXE

Engin búð á Íslandi er að selja þetta módel. Hérna eru 48" og 55" tæki úr sömu seríu (H6475):

http://www.samsungsetrid.is/vorur/935/" onclick="window.open(this.href);return false;

http://www.samsungsetrid.is/vorur/934/" onclick="window.open(this.href);return false;

Hérna er umræða á Vaktinni þar sem þessi sería frá Samsung kemur til umræðu:

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=62608&p=575020" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: "Nova sjonvarpid" einhver keypt svona?

Sent: Sun 08. Feb 2015 17:18
af handsaumur
keypti svo einhver svona?