Mini-ITX tölva
Sent: Lau 20. Des 2014 20:00
Góðan daginn.
Ég hef ákveðið að koma mér aftur í PC-leikjaheiminn og til þess ætla ég að kaupa mér litla Mini-ITX tölvu sem passar í stofuna hjá sjónvarpinu og gæti því einnig virkað sem media center.
Áður fyrr hefði ég keypt mér parta hér og þar og sett tölvuna saman sjálfur en ég hef eiginlega alveg misst áhugann á því og með tveggja mánaða barn á heimilinu þá hef ég ekki orku í það heldur
Þar af leiðandi hef ég verið að skoða tvö pakkatilboð sem mér sýnist vera nokkuð sanngjörn; eitt frá Tölvutækni og eitt frá Kísildal. Hér eru þau:
Tölvutækni
Kísildalur
Mér sýnist Kísildalspakkinn vera mun betra tilboð og hallast ég að honum þrátt fyrir að Silverstone kassinn í Tölvutækni pakkanum sé eflaust mun vandaðri kassi en Xigmatek kassinn.
Ennfremur var ég að pæla í að skafa nokkrar krónur af Kísildalspakkanum með því að fara niður í 8GB vinnsluminni og 4690k örgjörva. Ég væri ekki að fórna mjög miklu með þeim breytingum, er það nokkuð?