Síða 1 af 1

ECC Móðurborð og Minni

Sent: Sun 02. Nóv 2014 18:27
af nidur
Hæ,

Hefur einhver séð ECC minni og móðurborð til sölu á íslandi.

Veit að nýherji er með DDR3 ECC minni, en er ekki að finna nein móðurborð sem passa.

Einnig hefur einhver verið að selja Supermicro móðurborð, hef ekki fundið þau til sölu.

Er að leita að eftirfarandi fyrir Freenas server, vantar 2xintel nic, 10xsata port, innbyggt skjákort, má vera 1150 eða 2011 borð.

Re: ECC Móðurborð og Minni

Sent: Sun 02. Nóv 2014 22:08
af odinnn
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6813157475" onclick="window.open(this.href);return false; ? Finnst þetta borð mjög spennandi fyrir heimaserver, hlítur að vera einhver á klakanum sem er að selja ASROCK og getur tekið þetta með í næstu pöntun.

Re: ECC Móðurborð og Minni

Sent: Mán 03. Nóv 2014 21:11
af nidur
Flott móðurborð það er alveg pottþétt. Var einmitt að skoða svipað, einhverra hluta vegna þá hallast ég meira að því að kaupa CPU sér, en veit ekki alveg af hverju.

Re: ECC Móðurborð og Minni

Sent: Mán 03. Nóv 2014 22:53
af odinnn
Skil þig, sjálfur hef ég mest verið að fylgjast með rafmagnsnotkun og stærð og benti því á þetta.

Ertu með einhverjar fleiri hluti sem þú ert að leitast eftir, x margar pci-x raufar, x margar minnisraufar/x mörg Gb, EATX/ATX/ITX stærð, verð... það er náttúrulega svo ógeðslega mikið af borðum þarna úti að það er erfitt að velja eitt útfrá 2x intel nic (sem flest hafa held ég) og 10x sata (sem er pínu vesen þar sem fá eða engin borð styðja svona mörg 6Gb sata port þannig að þú gætir þurft að bæta við sata controller eins og IBM M1015 ef þú vilt tengja öll í 6Gb).