Síða 1 af 1
Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Mán 06. Okt 2014 20:02
af SolviKarlsson
Nú er komið að því að bæta við sig skjá.
Núna er ég með BenQ G2020HD 20" skjá. Ég vil kaupa skjá helst undir 40 þús. Ég mun spila tölvuleiki á við LoL, Dota, Counter-strike, Shadow of Mordor o.fl.
En ég hef einnig verið að leika mér við vinnslu í After Effects, Photoshop og því um líkt. Með hvaða skjá mælið þið með að ég skoða.
Og er ég eitthvað að spara ef ég panta skjá að utan, þá gæti ég jafnvel reynt að setja aðeins meira í það.
Fyrirfram þakkir!
EDIT: gleymdi að bæta við þessum tveim sem ég var búinn að hafa augað á,
http://tolvutek.is/vara/benq-rl2455hm-2 ... ar-svartur" onclick="window.open(this.href);return false; og
http://tolvutek.is/vara/benq-ew2440l-24 ... ar-svartur" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Mán 06. Okt 2014 22:31
af Sallarólegur
Ef ég væri að pæla í leikjaskjá núna þá myndi ég klárlega fara í 27"
En ef þú ert að pæla í myndvinnslu þá eru leikjaskjáir alls ekki málið. En mér heyrist þú vera bara að leita að balanced skjá.
Varstu búinn að skoða þessa?
http://www.vaktin.is/index.php?action=p ... lay&cid=12" onclick="window.open(this.href);return false;
Þessi væri fínn í Photoshop á þessu verði:
http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=829" onclick="window.open(this.href);return false;
Myndi skoða þennan fyrir leiki:
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2277" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Mán 06. Okt 2014 23:01
af SolviKarlsson
Takk fyrir, en ég myndi helst halda mig við 24" því ég hef bara því miður ekki pláss á skrifborðinu mínu fyrir stærra

Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Þri 07. Okt 2014 01:41
af Tesy
Ef þú gætir
pantað að utan, allan dag 27" QHD IPS korean skjá eins og Qnix, X-star, I-star, Shimian o.fl. Kostar um 55-60þ að fá þá til landsins en þá þarf skjákortið þitt að vera með Dual-Link DVI port.
EDIT: Sá að þú vilt ekki 27" skjá, hunsaðu þetta.
Á Íslandi:
Ef þú gætir eytt aðeins meira þá:
http://www.tolvutek.is/vara/benq-xl4211 ... ar-svartur" onclick="window.open(this.href);return false;
eða
http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=696" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef ekki þá:
http://www.tolvutek.is/vara/benq-ew2440 ... ar-svartur" onclick="window.open(this.href);return false;
Annars skiptir mjög litlu máli hvaða skjár þú kaupir, allir voða svipaðir í dag (þá er ég að tala um budget < 40k). Flestir sem eru undir 40 þúsund eru með TN panel og gætir alveg eins bara keypt þér
ódýrasta. Fann einn með VA og linkaði þarna fyrir ofan.
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Þri 07. Okt 2014 11:02
af SolviKarlsson
Sá svo einn hér á Vaktinni
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=61944" onclick="window.open(this.href);return false; ætli þessi sé ekki bara ágætur "All-round"? Hvað finnst ykkur?
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Þri 07. Okt 2014 11:15
af Sallarólegur
Þetta er klárlega góður framtíðarskjár ef þú ert að spá í Photoshop og After Effects.
Hversu alvarlegur "gamer" ertu? Ertu að keppa professionally eða notarðu þá bara sem afþreyingu?
Þetta er IPS skjár sem skila réttari litum og þægilegra frá mörgum sjónarhornum.
"Leikjaskjáir" eru yfirleitt TN panels, þeir "feika" liti meira, en þú færð minna response time(lagg) í staðin.
Þessi skjár er 5ms, leikjaskjáir eru yfirleitt um 2ms.
Ég myndi frekar taka IPS fyrir multipurpose anytime.
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Þri 07. Okt 2014 16:04
af SolviKarlsson
Sallarólegur skrifaði:Hversu alvarlegur "gamer" ertu? Ertu að keppa professionally eða notarðu þá bara sem afþreyingu?
Ég myndi ekki segja að ég væri super serious gamer, en ég vil ekki að skjárinn sé að koma í veg fyrir að ég gæti gert mitt besta, skilurðu hvert ég er að fara? Ég er ekkert að fara að krefjast þess að fá skjá með 144hz refresh rate og 1 ms responsiveness.
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Þri 07. Okt 2014 16:13
af Hvati
IPS skjáir eru almennt með meira input lag en það er ekkert sem er að fara virkilega í taugarnar á þér nema þú sért að spila FPS eða MOBA leiki professionally. BenQ BL2411PT skjárinn væri því góður kostur, sérstaklega með 16:10 upplausnina

Hins vegar með 60Hz vs. 144Hz skjáina þá er töluvert meiri munur á því þegar litið er á hversu smooth leikurinn spilast.
Re: Hvaða skjá á ég að kaupa?
Sent: Þri 07. Okt 2014 17:01
af SolviKarlsson
En ef það er möguleiki á bl2411pt að overclocka í 75 hz, er maður að taka eftir miklu, eða truflar input lagið þá bara meira?