Síða 1 af 1
server vél pælingar
Sent: Mið 24. Sep 2014 20:44
af Hjorleifsson
Sælir, (held ég hafi sett þetta í réttan tab)
Mig langar til að búa til eitt stk server vél, planið er að vera með Teamspeak 3 server og svo vera home server 24/7 svo líklega 1-2 fyrir CSGO og fleiri leiki.
Þannig að ég er að leita eftir ráðlagningum hvað ég ætti að kaupa, á skjákort svo það vantar bara Móðurborð, Örgjörva, Vinnsluminni, Aflgjafa og Turn, vill hafa þetta sem minnstan kostnað en samt ekki einhvað algjört junk.
svo endilega hendið inn öllum tillögum og kannski verði ef þið eruð með það annars finn ég það sjálfur
Kv.
Hjorleifsson
Re: smíða server vél
Sent: Fim 25. Sep 2014 07:55
af olafurfo
hvað kallaru sem minnstan kostnað ?
Að kaupa nýja, fína tölvu í dag sem höndlar þetta dót er yfirleitt um 100 þúsund krónur

Re: smíða server vél
Sent: Fim 25. Sep 2014 08:32
af AntiTrust
Verður eiginlega að koma með aðeins nánari lýsingu á því hvað þú vilt að vélin geri sem homeserver?
Re: smíða server vél
Sent: Fim 25. Sep 2014 19:57
af Hjorleifsson
er ekki mikið inni öllu þessu server dæmi :þ en það sem ég er með í huga með homeserver var aðalega bara að öll aukagögn eins og tónlist, bíómyndir, þættir og leikir væri geymt inná henni og allar tölvurnar í húsinu hafi aðgang og svoleiðis, semi basic homesever held ég, þó ég hafi ekki hugmynd :þ en annars var planið aðalega bara að vera með TS3 server uppi og downlaoda 24/7
Re: smíða server vél
Sent: Fim 25. Sep 2014 20:12
af Hjorleifsson
olafurfo skrifaði:hvað kallaru sem minnstan kostnað ?
Að kaupa nýja, fína tölvu í dag sem höndlar þetta dót er yfirleitt um 100 þúsund krónur

minnstan kostanð, kannski ekki rétt orðað hjá mér, en ég vill hafa semi góða vél sem ég reikna með að verði á milli 50-150þús
Re: server vél pælingar
Sent: Fös 26. Sep 2014 11:03
af nidur
Hvað á að setja marga hdd í vélina?
Re: server vél pælingar
Sent: Fös 26. Sep 2014 11:52
af Hjorleifsson
2 til 4 2tb eda 3 tb diska
Re: server vél pælingar
Sent: Fös 26. Sep 2014 13:20
af nidur
http://tl.is/product/heimilistolva-4-cm ... 20silencio" onclick="window.open(this.href);return false;
er þetta ekki fínt bara
Re: server vél pælingar
Sent: Fös 26. Sep 2014 13:22
af AntiTrust
Flestir sem fara í homeserver enda oftast með að fara í Plex - og þá er betra að vera með hærra spekkaðan CPU. i3 dugar alveg en i5 mikið betri kostur.