Síða 1 af 2

Tímareim

Sent: Þri 16. Sep 2014 13:19
af tanketom
Hvar er hagstæðast að skipta um tímareim á toyotu corollu 96.. verð?

Re: Tímareim

Sent: Þri 16. Sep 2014 17:47
af biturk
Gera það sjálfut, þetta er mjög einfalt

Hvar ertu a landinu

Re: Tímareim

Sent: Þri 16. Sep 2014 17:57
af Yawnk
Ætli það sé ekki hjá Vélalandi, þeir bjóða víst eitthvað fast verð fyrir skipti
Getur varla verið mikið.
http://www.velaland.is/is/timareim/timareimaskipti" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Tímareim

Sent: Þri 16. Sep 2014 19:02
af tanketom
biturk skrifaði:Gera það sjálfut, þetta er mjög einfalt

Hvar ertu a landinu
Kanski einfalt ef þú hefur tólinn og aðstöðuna fyrir það

Re: Tímareim

Sent: Þri 16. Sep 2014 23:38
af biturk
Ef þu værir a norðurlandi :) myndi eg rukka þig 25 fyrir þetta :)

Re: Tímareim

Sent: Mið 17. Sep 2014 01:03
af Sallarólegur
Það er rosalega misjafnt hvað fólk getur gert sjálft - stundum er bara langbest að borga vönum mönnum til þess að gera hlutina fyrir sig.


Re: Tímareim

Sent: Mið 17. Sep 2014 16:39
af Yawnk
Myndi nú ekki fara að gera þetta sjálfur ef þú hefur ekki góða kunnáttu á hvað þú ert að gera, best að borga eitthvað og fara með hann á verkstæði en að gera þetta sjálfur, það er þó ábyrgð hjá verkstæðinu annað en hjá þér ef eitthvað fer úrskeiðis, getur verið mjög dýrt tjón ef þetta klikkar

Re: Tímareim

Sent: Mið 17. Sep 2014 22:09
af jonsig
tanketom skrifaði:Hvar er hagstæðast að skipta um tímareim á toyotu corollu 96.. verð?

Re: Tímareim

Sent: Fös 26. Sep 2014 18:21
af Yawnk
jonsig skrifaði:
tanketom skrifaði:Hvar er hagstæðast að skipta um tímareim á toyotu corollu 96.. verð?
Til hvers ertu að bolda þetta?
Ef ég ætti þennan bíl, þá myndi ég nú frekar vilja sleppa við ónýta vél ef ég ætlaði að halda í bílinn, en þú um það

Re: Tímareim

Sent: Lau 25. Okt 2014 14:42
af Sera
þetta var ekki ódýrt þegar ég lenti í að þurfa að skipta um tímareim í sumar. Ég borgaði 170 þúsund krónur fyrir skipti á tímareim, kerti, vatnsdælu og háspennukefli hjá Bílaraf með varahlutunum. 88 þús. fyrir vinnuna og 79 þús. fyrir varahlutina.
Það voru engar skemmdir á ventlunum. Ath. að það var skipt um tímareim í þessum bíl fyrir 3 árum þegar ég keypti hann og hann aðeins ekinn innan við 30 þús. km. frá þeim tíma. Frekar léleg ending !

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 00:31
af NiveaForMen
Sera skrifaði:þetta var ekki ódýrt þegar ég lenti í að þurfa að skipta um tímareim í sumar. Ég borgaði 170 þúsund krónur fyrir skipti á tímareim, kerti, vatnsdælu og háspennukefli hjá Bílaraf með varahlutunum. 88 þús. fyrir vinnuna og 79 þús. fyrir varahlutina.
Það voru engar skemmdir á ventlunum. Ath. að það var skipt um tímareim í þessum bíl fyrir 3 árum þegar ég keypti hann og hann aðeins ekinn innan við 30 þús. km. frá þeim tíma. Frekar léleg ending !
Lentir í því? Slitnaði hún semsagt?
3 ár og 30þkm er frekar stutt, 4-5 ár og 90þkm er normið, þó stundum er það styttra eða lengra.

Tímareimarskipti innifela oft með sér skipti á vatnsdælu, strekkjara- og leiðarahjólum og pakkdósum. Þetta er misjafnt milli bíltegunda, í sumum er þetta sáraeinfalt og þarfnast engra sérverkfæra. Í öðrum er þetta heldur meira vesen, krefst sérverkfæra og tekur vanan mann töluverðan tíma.

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 10:33
af biturk
Í þessum bìlum þarftu engin sérverkfæri og þarft ekki að skipta um vatnsdæluna eftir svona stuttan tíma

Skiptir samt um strekkjarann í leiðinni

Að borga 88 þúsumd fyrir þetta er rán, þetta er 3 tíma vinna það sem þú telur upp

Engar skemmdir á ventlum? Var heddið tekið úr?

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 11:12
af braudrist
Er eitthvað sem gefur til kynna að tímareim sé að fara? Eða verður maður bara að skipta um hana á 4-5 ára fresti eða 90.000 km?

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 12:35
af audiophile
braudrist skrifaði:Er eitthvað sem gefur til kynna að tímareim sé að fara? Eða verður maður bara að skipta um hana á 4-5 ára fresti eða 90.000 km?
Hún fer þegar hún fer. Fara bara eftir uppgefnum tíma frá framleiðanda. Oftast ertu einmitt öruggur með innan 80-90.000km eða 5 ár, hvað sem kemur á undan.

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 13:31
af biturk
Getur líka skoðað hana, þær byrja oft að trosna og gúmíið að springa þegar þær eiga stutt eftir

Ég lít á mínar reimar á 50.000 km fresti, tek þær úr og skoða og svo lít ég á þær í 80.000 og met hvað ég keiri langt í viðbót

Svo má ekki gleima að þetta er gúmmí og aldur segur til sín, skoða þær á lágmarl 2 ára fresti ef keirsla er lítil og þær geta líka skemmst ef bíll ofhitnar oft, það skemmir gúmmíið í þeim og það byrjar að springa

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 15:02
af Henjo
Ekki bíða allt of lengi með tímareim. Ef hún slitnar, þá kostar sú viðgerð margfalt meira en ef þú hefðir bara látið skifta um hana. (ef hún slitnar, þá bogna ventlar og algjört vesen)

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 15:37
af biturk
Þetta er ekki algilt að það bogni ventlar, það er mjog misjafny eftir mótorum og hversu mikill snúningurinn er, ventlar og stimplar ná alls ekkert alltaf saman

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 15:39
af Hargo
Ég myndi fá verð í þetta hjá Toyota umboðinu fyrst og tékka svo á öðrum.

Þegar ég lét gera þetta á Avensis árg. 2000 þá fór ég fyrst á stúfana á almenn verkstæði þar sem mér var gefið upp verð á bilinu 90-120þús fyrir tímareimaskipti með öllum varahlutum. Ákvað svo að gamni að senda línu á Toyota umboðið og þeir gerðu þetta fyrir um 55þús kr með öllu. Ég var bara búinn að gefa mér það að þeir væru dýrari en almennu verkstæðin.

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 16:22
af biturk
Hvaða verkstæði voru að gefa þannig verð? Þetta er rán

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 16:56
af sakaxxx
það er ekkert stórmál ef tímareimin slitnar á 4afe 1.6 eða 4efe 1.3 corollu mótor það verða engar skemmdir ef reimin slitnar þessar vélar eru non interference þannig að stimpilinn mun ekki rekast í ventlana
ef reimin slitnar.

Re: Tímareim

Sent: Sun 26. Okt 2014 18:40
af Hargo
biturk skrifaði:Hvaða verkstæði voru að gefa þannig verð? Þetta er rán
BílaÁttan og tvö í viðbót sem ég man ekki hvað heita, annað þeirra var eitthvað lítið verkstæði í Kópavogi.

Þetta var Avensis beinskiptur 1.6 týpa. Held það sé frekar einfalt að skipta um tímareim í þeim, sem útskýrir kannski verðið hjá Toyota umboðinu. Um 1 og hálft ár síðan þetta var.

Re: Tímareim

Sent: Mán 27. Okt 2014 00:40
af biturk
Hargo skrifaði:
biturk skrifaði:Hvaða verkstæði voru að gefa þannig verð? Þetta er rán
BílaÁttan og tvö í viðbót sem ég man ekki hvað heita, annað þeirra var eitthvað lítið verkstæði í Kópavogi.

Þetta var Avensis beinskiptur 1.6 týpa. Held það sé frekar einfalt að skipta um tímareim í þeim, sem útskýrir kannski verðið hjá Toyota umboðinu. Um 1 og hálft ár síðan þetta var.

jaaa ég skipti um svona fyrr í sumar ogég var rétt um 2 tíma að því svo að já, þetta er helvíti gott tímaverð fynnst mér...

Re: Tímareim

Sent: Mán 27. Okt 2014 00:50
af MatroX
biturk skrifaði:Getur líka skoðað hana, þær byrja oft að trosna og gúmíið að springa þegar þær eiga stutt eftir

Ég lít á mínar reimar á 50.000 km fresti, tek þær úr og skoða og svo lít ég á þær í 80.000 og met hvað ég keiri langt í viðbót

Svo má ekki gleima að þetta er gúmmí og aldur segur til sín, skoða þær á lágmarl 2 ára fresti ef keirsla er lítil og þær geta líka skemmst ef bíll ofhitnar oft, það skemmir gúmmíið í þeim og það byrjar að springa
þetta er það heimskasta sem ég hef heyrt, það er enginn að fara nenna að taka reimina úr til að skoða hana wtf...... þetta er mega easy á sumum bílum en á öðrum er þetta glatað verkefni,

Re: Tímareim

Sent: Mán 27. Okt 2014 19:05
af biturk
Þarft ekki að taka hana úr til þess, ventlalok af og kannski ein hlif a flestum bilum og þa sérpu þetta mep vasaljósi

Dont be stupid

Re: Tímareim

Sent: Mán 27. Okt 2014 19:06
af MatroX
biturk skrifaði:Þarft ekki að taka hana úr til þess, ventlalok af og kannski ein hlif a flestum bilum og þa sérpu þetta mep vasaljósi

Dont be stupid
þú segir þarna orðrétt að Þú takir hana úr og skoðir haha