Síða 1 af 1
Enn eitt vandamálið ._.
Sent: Fös 11. Júl 2014 23:48
af Desria
Jæja, hingað er ég mættur með enn eitt vandamálið. Ég lét skipta út aflgjafanum og voila, fixed en ég lét setja h80i í fyrir mig um leið.
En það er bara eingannveginn að gera sitt, keyrir í 40c í idle a stock clocks og ég prufaði prime95 og þá stökk í 95c og var að hækka svo ég drap á því strax. Hvernig getur þetta verið að ske ._.
Re: Enn eitt vandamálið ._.
Sent: Fös 11. Júl 2014 23:50
af Klaufi
Það fyrsta sem mér dettur í hug er léleg samsetning.
Þ.e. of mikið, eða of lítið af kælikremi, illa áfest kæliblokk osfrv.
Re: Enn eitt vandamálið ._.
Sent: Fös 11. Júl 2014 23:54
af Desria
bah ._. á ekki til kæli krem og hef aldrei neinn tíma til að rífa þetta í sundur og saman. annars, er push pull intake betra eða exhaust? hef spáð í þessu smá.
Re: Enn eitt vandamálið ._.
Sent: Fös 11. Júl 2014 23:55
af mercury
þessar kælingar koma með kælikremi ef ég man rétt svo það er sennilega hægt að útiloka það. myndi halda að hún sitji ekki rétt á örgjörfanum eða dælan sé gölluð.
Re: Enn eitt vandamálið ._.
Sent: Fös 11. Júl 2014 23:57
af Klaufi
mercury skrifaði:þessar kælingar koma með kælikremi ef ég man rétt svo það er sennilega hægt að útiloka það. myndi halda að hún sitji ekki rétt á örgjörfanum eða dælan sé gölluð.
Ég er með nýja H100i hérna á borðinu hjá mér, það er engin "bót" á henni, þess vegna datt mér þetta í hug..
Re: Enn eitt vandamálið ._.
Sent: Fös 11. Júl 2014 23:59
af Desria
Ætli ég þurfi ekki að grúska í þessu þegar ég kemst í vaktafrí. + það var ekkert smá vandamál að koma Corsair Link í gang á Windows 8.1
Takk fyrir ráðleggingar annars.