Síða 1 af 1
Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fim 03. Júl 2014 20:45
af CurlyWurly
Sælir Vaktarar
Mig langar virkilega að kaupa mér almennilega hátalara fyrir tölvuna mína svo ég geti hætt að nota draslið sem ég er með einmitt núna.
Ég veit bara svo lítið um hljóðkerfi og þess háttar að ég hef enga hugmynd um hvað ég á að fá mér
Mig langar í rauninni bara að reyna að fá sem mest fyrir peninginn án þess að vera að eyða miklu. Vil helst halda mig undir um eða undir c.a. 30 þúsund.
Ég hef ekki aðstöðuna í það að setja upp 5.1 eða 7.1 kerfi svo ég er annaðhvort að leita eftir 2.0 eða 2.1 setti (veit ekkert hvort er betra eða hverjir eru kostir og gallar)
Er ekki einhver fróður hérna sem er til í að aðstoða mig?
Kær kveðja, CurlyWurly//HB
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fim 03. Júl 2014 20:56
af gutti
http://www.computer.is/vorur/7593/" onclick="window.open(this.href);return false; mæla með þessu fínt sound auk er fínt bassi í honum
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 00:07
af lukkuláki
Þessir eru frábærir
http://www.elko.is/elko/is/vorur/tolvuh ... etail=true" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 00:18
af worghal
þú getur reynt að finna þér notað logitech z623
http://att.is/product/logitech-z-623-hatalarar" onclick="window.open(this.href);return false;
hef séð nokkur svona fara fyrir um 30þús og ég fékk mitt sett á 25þús
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 00:23
af svanur08
Klárlega þessa eins og hinn sagði ---->
http://att.is/product/logitech-z-623-hatalarar" onclick="window.open(this.href);return false;
Er sjálfur með Logitech Z-2300 eldri týpuna bara flott sound.
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 00:28
af worghal
er fékk mér mitt sett bara fyrir sjónvarpið og gæti ekki verið sáttari.
svo er það með auka aux-in á einum hátalaranum og þar get ég sett símann eða eitthvað annað og spilað þar í gegn án þess að þurfa að aftengja hátalarana frá sjónvarpinu
gargandi snilld og brjálað sound
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 08:42
af Hvati
Ef þú getur komist í góða notaða hátalara eins og z623 þá er það málið en annars myndi ég líka skoða
Kürbis.
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 10:15
af audiophile
Þessir:
http://www.amazon.com/Klipsch-ProMedia- ... B000062VUO" onclick="window.open(this.href);return false;
Búinn að eiga mína í 12 ár og aldrei heyrt í neinu sem getur jafnað þetta.
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 10:45
af MrSparklez
Hvernig tónlist hlustaru á ?
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 10:57
af halldorjonz
úú, þessir lúkka vel, ef ég ætti ekki 5.1 system og þyrfti að velja mér 2.1 þá myndi ég versla þessa held ég
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 13:25
af grimurkolbeins
Logitech alla leid getur annad hvort tekid
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Tolvuh ... etail=true" onclick="window.open(this.href);return false; eg er med thessa og their eru mjog oflugir serstaklega thegar thu ert med gott hljodkort, enn hef heyrt i thessum
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Tolvuh ... etail=true" onclick="window.open(this.href);return false; og their eru rosalegir...
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 14:14
af Baraoli
z5500 all the way
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 16:13
af CurlyWurly
Djöfulsins snillingar eruð þið! Bjóst alls ekki við svona mörgum góðum svörum.
Ég er sjálfur eitthvað aðeins búinn að skoða þetta og einhverra hluta vegna virðast margir vera eitthvað mótfallnir svona 2.1 settum frá Logitech og þessháttar. Er það bara eitthvað kjaftæði?
Ég næ hinsvegar ekki alveg að skilja hver helsti munurinn er á 2.1 og 2.0 settum. Ég veit að það er bassabox í 2.1 settunum en það er svo oft sem það er verið að tala um hvað bassinn er góður í 2.0 settunum
Ef það hjálpar einhverjum eitthvað hlusta ég mest á rokk en hef samt líka gaman af hinu og þessu, þó síst dubstep, techno og svoleiðis.
Annars er ég ekkert að drífa mig í þessum kaupum þannig ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug eftirá megið þið endilega bara henda því hérna inn
EDIT: Minnir að félagi minn hafi einhvertíman fengið sér svona
Thonet&Vander Kürbis hátalara og mælt alveg virkilega vel með þeim. Veit svosem ekki hvort það skipti máli.
Kveðja CurlyWurly//HB
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 17:32
af MrSparklez
CurlyWurly skrifaði:Djöfulsins snillingar eruð þið! Bjóst alls ekki við svona mörgum góðum svörum.
Ég er sjálfur eitthvað aðeins búinn að skoða þetta og einhverra hluta vegna virðast margir vera eitthvað mótfallnir svona 2.1 settum frá Logitech og þessháttar. Er það bara eitthvað kjaftæði?
Ég næ hinsvegar ekki alveg að skilja hver helsti munurinn er á 2.1 og 2.0 settum. Ég veit að það er bassabox í 2.1 settunum en það er svo oft sem það er verið að tala um hvað bassinn er góður í 2.0 settunum
Ef það hjálpar einhverjum eitthvað hlusta ég mest á rokk en hef samt líka gaman af hinu og þessu, þó síst dubstep, techno og svoleiðis.
Annars er ég ekkert að drífa mig í þessum kaupum þannig ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug eftirá megið þið endilega bara henda því hérna inn
EDIT: Minnir að félagi minn hafi einhvertíman fengið sér svona
Thonet&Vander Kürbis hátalara og mælt alveg virkilega vel með þeim. Veit svosem ekki hvort það skipti máli.
Kveðja CurlyWurly//HB
2.1= 2 hátalarar, eitt bassabox.
2.0= 2 hátalarar.
Sama gildir með 5.1 og 7.1 sem sagt fyrri talan þýðir hversu margir hátalarar eru og seinni hversu mörg bassabox.
Annars varðandi hvað þú átt að kaupa, getur farið í Tölvutek og fengið að prófa fullt af hátölurum þar til þess að sjá muninn á 2.0 og 2.1, ég til dæmis fýla ekki 2.1 sett, alltof mikill bassi fyrir mig enda hlusta ég á djazz, klassískt rokk, blues og álíka. Svo er að mínu mati alls ekki slæm hugmynd að skoða gamla stereo magnara og hátalara á bland eins og t.d. sem ég er með í undirskrift kostaði allt saman 24.500, maður verður bara að vera heppinn og hitta á réttu hlutina.
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 23:51
af Tesy
Ég er sjálfur að leita af tölvuhátalara á svipuðum budget!
Hérna eru hátalararnir sem mér lýst best á en veit ekki hvað ég ætti að velja:
Harman Kardon Soundstick III
Logitech Z623 (Svolítið dýrir og erfitt að finna notað)
Thonet&Vander Kürbis
M-AUDIO AV40 II
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 04. Júl 2014 23:56
af Yawnk
http://tolvutek.is/vara/thonet-vander-h ... ar-svartir" onclick="window.open(this.href);return false;
Fékk að heyra í þessum í Tölvutek fyrir stuttu og fannst þeir hljóma bara asskoti vel fyrir verðið.
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Lau 05. Júl 2014 00:14
af worghal
hef fengið að heira úr hátölurum frá þessum thonet & vander og ég var ekki impressed.
er ekki enþá búinn að finna 2.0 hátalara sem mér finnst eitthvað varið í fram yfir 2.1 nema þessa pro audio monitora eins og m-audio eða yamaha og þannig dót
ég kýs 2.1 alla leið.
svo er þetta harmon kardon soundstick svo ógeðslega ljótt
mér finnst mikið skemmtilegra balance í 2.1 settum en 2.0
er búinn að vera með Altec Lansing CS21 2.1 sett í 10 ár núna. mæli með þeim líka ef þú sérð notað
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Sun 13. Júl 2014 23:55
af Tesy
Keypti mér notað Logitech Z623 á 20 þúsund í dag. Mjög góðir og ég mæli grimmt með þeim. Ef þú finnur þannig á 25k eða undir, go for it!
Re: Hvernig tölvuhátalara á ég að fá mér?
Sent: Fös 18. Júl 2014 15:06
af CurlyWurly
Jæja, ég er ekki búinn að snerta þennan þráð í svolítinn tíma en er búinn að skoða þetta og er farið að langa virkilega mikið í
Corsair SP2500 hátalara en sýnist þeir ekki fást hérna.
Er einhver sem veit hvar ég gæti fengið þá hérna heima eða kannast eitthvað við þetta?
Væri líka æðislegt ef einhver hefði heyrt í svona hátölurum og væri til í að gefa input