Er með þennan, ein besta router reynsla mín, og ég hef prufað þá marga.
Búinn að vera uppi núna í hálft ár, ekkert hikst, ekkert reboot.
Eina vandamálið er að maður pælir þá í... kannski hefði maður átt að fá sér AC útgáfuna.
Hver er helsti munurinn? Það er allt að 100% verðmunur á þessum Asus routerum.
Re: Bang for the buck - Broadband router (ljósleiðari)
Sent: Lau 28. Jún 2014 10:26
af berteh
Helsti munurinn er að sjálfsögðu sá að þú ferð úr N 300mbit upp í AC 1200mbit en annars er líka munur á að það er mikið líf í custom firmwares fyrir ac routerinn en ekki fyrir n
Re: Bang for the buck - Broadband router (ljósleiðari)
Sent: Sun 29. Jún 2014 12:34
af Sallarólegur
Er nokkuð viss um að það sé sterkur leikur að taka AC router.
Þessi lítur mjög vel út, Asus RT-AC56U.
Hvernig eru þessi ódýru merki, TP-LINK og TRENDNET að standa sig?
Er með Trendnet AP hérna heima og ég er ekki hrifinn. Ágætlega stabíll, en þvílíkt puð sem þetta uppsetningarferli er, tók mig hátt í hálftíma að fá hann í gang. Hvorki hraði né drægni er neitt til þess að hrópa húrra fyrir. Er með hann tengdan í switch, beintengd tölva í switch er að fá fullan ljósnetshraða - Asus Zenbook vél er að fá í kringum 10-20Mb á Trendnet WIFI, nokkrum metrum frá AP, engir veggir á milli.
Fæ þessa á svipuðu verði, er Cisco Linksys frekar málið? Það sem Asusinn hefur fram yfir er að hann er með tvö USB tengi, svo ég gæti verið með flakkara og prentara á honum.
edit:
Er líka að pæla í þessum, hann er ac og kostar ekki nema 3þ. kr meira en hinir tveir: