Síða 1 af 1
BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 08:52
af machinehead
Hey hey hey,
Nú er ég í bobba, var að vinna í vélinni áðan, fékk upp BSOD upp úr þurru, náði ekki skilaboðunum þar sem vélin restartaði sér áður. Svo byrjar hún að POSTa en fer ekkert lengra, ég slekk á henni og starta aftur og núna kveikja skjáirnir ekki einusinni á sér. Það bara gerist ekkert. Búinn að taka út öll minnin og prófa þau, þannig nú veit ég ekki alveg, er þetta skjákortið að klikka?
ASUS P8P67, GTX570 og i7
Kveðja,
MH
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 08:58
af playman
Myndi byrja á því að redda öðru korti einhversstaðar og sjá hvað gerist.
Verst að þú ert ekki með innbygt skjákort.
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 09:14
af machinehead
Hafði hugsað það, en það er hægara sagt en gert, veit ekki hvar ég gæti komist í það.
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 09:25
af machinehead
Fuck it, kaupi mér bara nýtt, þarf hvort eð er að geta tengt 3 skjái... Nú spyr ég, virka ekki annað hvort þessara með þessi móðurborði og styðja 3 skjái?
http://www.att.is/product/msi-geforce-n ... ing-2048mb" onclick="window.open(this.href);return false;
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2714" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 09:35
af playman
Bæði kortin eru PCI-e tengd, þannig að þau bæði passa, einnig er ég viss um að þau bæði stiðja triple og annað þeirra styðji quad screen.
En til þess að vera öruggur og ekki taka öllu sem þú lest á netinu sem 100% sannleika er best að spyrja í búðinni, þá fellur allaveganna ábyrgðin
á þá og þú gætir fengið annað kort ef að það kort stiður ekki triple screen.
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 09:36
af machinehead
playman skrifaði:Bæði kortin eru PCI-e tengd, þannig að þau bæði passa, einnig er ég viss um að þau bæði stiðja triple og annað þeirra styðji quad screen.
En til þess að vera öruggur og ekki taka öllu sem þú lest á netinu sem 100% sannleika er best að spyrja í búðinni, þá fellur allaveganna ábyrgðin
á þá og þú gætir fengið annað kort ef að það kort stiður ekki triple screen.
Takk fyrir

Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 13:36
af machinehead
Prufaði annað skjákort, ennþá sama vandamálið... Any ideas?
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 13:56
af trausti164
machinehead skrifaði:Prufaði annað skjákort, ennþá sama vandamálið... Any ideas?
Prófaðu nýtt vinnsluminni og ef að það virkar ekki, annað móðurborð.
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 14:43
af machinehead
Er með 4 minni, búinn að prufa öll stök... Á ekki annað móðurborð til að prufa en er eitthvað annað sem kemur til greina? PSU kannski?
Re: BSOD, postar ekki almennt vesen
Sent: Fim 19. Jún 2014 15:36
af playman
Það er ekkert að því að prufa PSU, þá ertu allaveganna búin að því.