Síða 1 af 1
Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Sun 08. Jún 2014 23:00
af FitnessGuru
Sælir vaktsmenn.
Vantar smá hjálp.
Er með nýlega vél með Þessu móðurborði : GA-890XA-UD3 (rev. 2.0)
og windows 8.1 pro (64bit)
og ég kemst ekki á netið í gegnum kapal. (kemur bara connection limited)
Ef ég fer í device manager/networks adapter að þá er Realtek lan driverin í lagi en fyrir ofan kemur gult viðvörunarmerki við "Microsoft Hyper-V Network Switch Default Miniport"
Er einhver meistari hér með lausn við þessu vandamáli?
Kv Halli
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Sun 08. Jún 2014 23:42
af Mencius
Búin að prufa að gera update driver? Ertu að nota hyper-v?
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Sun 08. Jún 2014 23:53
af FitnessGuru
Eg afsaka fáfræðina en ég bara veit ekki hvað hyper-v er eða hvað það gerir svo ég er alveg lost. Var bara að setja upp þessa vél og hef ekki lennt í þessu vandamáli með aðrar vélar sem ég hef verið að setja upp :/
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Mán 09. Jún 2014 00:09
af Mencius
Hyper-v er sýndarvél sem maður getur notað til að keyra margar "tölvur" inná eini tölvu. En það er þá ekki vandamálið en ertu búin að setja alla drivera inn fyrir tölvuna? gætir prufað að hægri klikka á "Microsoft Hyper-V Network Switch Default Miniport" og gera update driver software? En lan snúran sem þú ert að nota er hún alveg í lagi?
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Mán 09. Jún 2014 02:37
af FitnessGuru
já það virkar ekki að updata, hun finnur ekkert enda er ekkert net og já það var önnur tölva tengd við netið með sömu snuru.
Er þetta eitthvað sem verður að vera í lagi svo að lan tengið sé nothæft?
kv Haraldur
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Mán 09. Jún 2014 15:53
af Xberg
FitnessGuru skrifaði:já það virkar ekki að updata, hun finnur ekkert enda er ekkert net og já það var önnur tölva tengd við netið með sömu snuru.
Er þetta eitthvað sem verður að vera í lagi svo að lan tengið sé nothæft?
kv Haraldur
Hérna er Lan driverinn fyrir þitt móðurborð
http://download.gigabyte.eu/FileList/Dr ... 111_w8.exe
Dl-aðu þvi á einhverjari vel og notaðu USB lykill til að færa skrána yfir í netlausuvélina, athugaðu hvort þetta dugi til.
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Mán 09. Jún 2014 21:42
af FitnessGuru
Sá driver var kominn upp og hann lítur út fyrir að virka en það kemur svo viðvörunnarmerki hjá Þessi microsoft dæmi
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Mán 09. Jún 2014 22:39
af gums38
mætti ég spyrja að einu ef þú ert að nota lan passaðu þá að ekki hafa það í port 4 á routernum
Re: Vandamál að tengjast netinu.
Sent: Þri 10. Jún 2014 03:58
af Mencius
Ég er eiginlega nokkuð viss að "Microsoft Hyper-V Network Switch Default Miniport" hafi ekkert með það að gera að þú komist ekki á netið. Þetta er bara notað ef þú ert að keyra sýndarvélar í tölvuni sem þú ert ekki að gera, svo getur prufað að velja bara disable á "Microsoft Hyper-V Network Switch Default Miniport" ætti ekki að hafa nein áhrif á lan kortið hjá þér.
Farðu í cmd (windows takkinn+X og svo a) skrifaðu ipconfig, í IPV4 Address hvaða tölur færðu þar?
hægri klikkaðu á connections niðrí hægra horninu, opnaðu network and sharing center, farðu svo í change adapter settings. Er eitthvað þar sem heitir hyper-v virtual network adapter? Er ekki bara 1-2 items þarna sem heita ethernet?