Síða 1 af 1

GTX 770 hljóð

Sent: Fös 06. Jún 2014 23:55
af Frost
Góða kvöldið. Ég og félagara mínir vorum að fara í smá uppfærslu og keyptum okkur GTX 770. Fyrsta skjákortið virkar fínt, hinavegar þegar við tengdum annað skjákortið þá virkaði það fínt fyrir utan leiðinda hljóð.



Kemur bara fram í leikjum og þetta er ekki líkt þessu týpíska ískri þegar FPS-ið verður of hátt.

Dettur einhverjum eitthvað í hug?

Re: GTX 770 hljóð

Sent: Lau 07. Jún 2014 08:59
af FuriousJoe
Kemur þetta úr seinna kortinu eða aflgjafanum?

Lélegir þéttar myndi ég giska á, hef oft heyrt þetta úr aflgjafa sem er af ódýrari endanum (og útfrá honum jafnvel, gæti heyrst úr kortinu þrátt fyrir að það séi ekkert að því)

Re: GTX 770 hljóð

Sent: Lau 07. Jún 2014 09:59
af brain
Eruð þið búnir að prófa bæði kortin í vélini sem er með þetta hljóð ?

Re: GTX 770 hljóð

Sent: Lau 07. Jún 2014 12:26
af Frost
Ætlum að prófa annað skjákort í dag og sjá hvað gerist. Maður hefði nú haldið að Zalman aflgjafarnir væru með ágætis þétta.

Skal láta vita hvernig fer.

Re: GTX 770 hljóð

Sent: Lau 07. Jún 2014 23:30
af frikki3005
er með þetta sama hljóð í gtx570 hef ekki en komist að því hvað þetta er buin að skipta um aflgjafa og fara með þetta í viðgerð var alveg eins :S

Re: GTX 770 hljóð

Sent: Sun 08. Jún 2014 01:25
af Frost
frikki3005 skrifaði:er með þetta sama hljóð í gtx570 hef ekki en komist að því hvað þetta er buin að skipta um aflgjafa og fara með þetta í viðgerð var alveg eins :S
Félagi minn sem fékk kortið með þessu hljóði ætlar bara að sætta sig við það eins og staðan er núna. Á eftir reyndar að prófa skjákortið mitt og vonandi verður það ekki með neitt vesen :megasmile