Síða 1 af 1

Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 02:51
af Stufsi
Fyrir rúmum 3 klukkutímum var stolið grænni Toyora Corrolu Station bíll.
Bílnum var stolið fyrir aftan Olís í Mjódd kl 23:43 nákvæmlega Sunnudaginn 27.04.14

Minnst 3 einstaklingar tóku þátt í þjófnaðinum, voru það 2 aðilar sem tóku bílin og fóru á honum á meðan sá 3 fór á bílnum sem þeir komu á.

Lýsing á aðilunum sem tóku bílin:
Einn þeirra var í Adídas peysu og buxum með dökkt hár og var það hann sem keyrði bílnum burt.
Hinn aðilinn var í grárri hettupeysu.

Bílinn sem þeir komu á var blá Toyota Carine E líklegast árgerð 96-99
Þeir fóru útaf olís planinu hægra megin við stöðina og fór því líklegast á Aðalbrautina sem liggur að Sæbrautinni

Tegund: Toyota Corolla Station
Árgerð: 1999
Skráningarnúmer: PL 240
Litur: Grænn
Mynd af bílnum
Mynd
Ef þú hefur upplýsingar varðandi bílin, vinsamlegast hafðu þá samband við lögregluna.

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 05:12
af littli-Jake
Eru ekki einhverjar myndavélar þarna?

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 09:46
af Stufsi
Já, þessvegna voru lýsingar aðeins á bílnum og á þeim.
En það er greinilegt að þeir vissu hvað þeir væru að gera og lika einnig eins og þeir hafi verið bunir að vakta planið lengi.
Númerið á bílnum varð bara hvítt í myndavélinni, öllum myndavélunum.

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 17:14
af Lexxinn
Stufsi skrifaði:Já, þessvegna voru lýsingar aðeins á bílnum og á þeim.
En það er greinilegt að þeir vissu hvað þeir væru að gera og lika einnig eins og þeir hafi verið bunir að vakta planið lengi.
Númerið á bílnum varð bara hvítt í myndavélinni, öllum myndavélunum.
Ef það sést hvernig bíll þetta er, litur, árgerð og ca aldur á eiganda er líklega séns að tala við umferðarstofu og reyna að finna bílinn. Veit ekki hvort það sé hægt en gæti verið.

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 18:45
af Stufsi
Bílinn er fundinn :)

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 18:46
af Yawnk
Stufsi skrifaði:Bílinn er fundinn :)
Og hvað ?? skemmdur?

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 18:54
af worghal
það er nú gott að hann sé fundinn.
maður hefði haldið að svona með mission væri bíllinn tekinn í næsta skúr og rifinn.

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 19:09
af capteinninn
Til hamingju með að finna bílinn aftur, passaðu þig nú bara á tryggingunum að þeir neiti að borga og passaðu þig á því að lögreglan kæri aðilana sem stálu bílnum eða geri eitthvað í þessu svo þú lendir ekki í því sama og ég

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 20:25
af playman
Stufsi skrifaði:Bílinn er fundinn :)
Moar Details man

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 22:52
af Stufsi
Jæja búin að sækja bílinn. Búið var að stela Ipod(Ekki buin að vera notaður lengi), Radarvara(sem aldrei er notaður) og einnig concerta töflum sem ég tek vegna ADHD, og Aux snúru og 2 usb snúrum einni fyrir ipod og annað fyrir android. Búið var að róta aðeins í tösku sem var fullur af fötum og fötunum dreyft út um allan bíl.
Engar sjáanlegar skemmdir voru á bílnum og ekki mikið keyrður.

Útvarpið, Símastandin og eithvað aðeins fleirra slapp við skrekkin.
Frekar skrítið að útvarpið hafi ekki verið tekið þar sem þetta er nýlegt útvarp og slíkt.

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 23:36
af JohnnyX
Náðust gæjarnir ekki?

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Mán 28. Apr 2014 23:42
af Stufsi
Er ekki viss. Bróðir minn fór og sótti bílin fyrir mig, lögreglan beið eftir honum en þegar lögreglan var farinn þá sá bróðir minn Dökk bláan bíl Nissan Primera sem passaði við bílinn sem gæjarnir voru á.
Einnig voru 3 aðilar í þessum bíl sem voru að fylgjast með honum, hann tók niður númerið og er búin að láta lögregluna fá númerið. Fann síðan vasahníf í bílnum sem ég kannast ekkert við, ætla láta lögregluna fá hann á mrgn.

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Þri 29. Apr 2014 06:47
af IceThaw
Vonandi finnast þeir, etv. fingraför á vasahnífnum? Það er kannski ekkert gert svoleiðis? Þá miða ég við ef bílnúmerið á bláa bílnum og þar af leiðandi þeim sem í honum voru myndu passa við fingraför:P
Hahah einn bjartsýnn hérna heh en já vonandi finnast þeir!

Re: Grænni Corollu stolið

Sent: Þri 29. Apr 2014 07:47
af littli-Jake
IceThaw skrifaði:Vonandi finnast þeir, etv. fingraför á vasahnífnum? Það er kannski ekkert gert svoleiðis? Þá miða ég við ef bílnúmerið á bláa bílnum og þar af leiðandi þeim sem í honum voru myndu passa við fingraför:P
Hahah einn bjartsýnn hérna heh en já vonandi finnast þeir!
Hef littla trú á að löggan sé að fara að taka fingrafara test út af máli þar sem eini virkilegi skaðinn var ipad og radarvari.