Örri úr plasti.
Sent: Fim 17. Apr 2003 14:43
Þetta er í "Lifandi Vísindi" blaðinu sem datt innum bréflúguna mína í gær. Hvernig líst mönnum á örgjörva úr plasti ?Örgjörvi úr Plasti kynni að verða að veruleika innan árs. Þetta segja menn hjá fyrirtækinu "Plastic Logic" sem hefur þróað rafleiðandi plast. Þessir ódýru örgjörvar verða ekki jafn hraðvirkir og kísillflögunar en þó nógu góðir í farsíma, sjónvarpstæki og flata skjái.